Fréttablaðið - 05.07.2008, Side 56

Fréttablaðið - 05.07.2008, Side 56
34 5. júlí 2008 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is Það er engu minni þraut að þýða ljóð en yrkja og ljóðaþýðingar Gyrðis Elíassonar eru mikið þrek- virki, birta íslenskum ljóða- unnendum úrval heimsbókmennta og í sömu andrá ný alíslensk úrvalsljóð. Í þýðingum Gyrðis er frummálið horfið, hvergi leifar af annarlegum tungum, glittir hvergi í snörun, ekkert sem ekki er hugs- að frá grunni á íslensku. Listasmíð sem ber mikla virðingu fyrir feg- urð tungumálsins okkar og eykur því ætt. Í bókinni eru 120 ljóð eftir 27 höfunda frá 8 þjóðlöndum, öll eru skáldin karlar, utan tvö. Ljóðið á bls 143 er ekki nefnt í efnisyfirliti og er það við fyrstu sýn eini feill bókarinnar. Ljóðunum er raðað eftir áreiti og hugboðum þannig að hvert skáld tekur við kyndli annars og glæðir eldinn, sérhvert ljóð á sér samhljóm í öðrum sem smám saman safnast í sveipi sem síðan mynda eina margóma hviðu með vaxandi styrk bókina á enda. Úrvalsljóð eftir einkar spennandi skáld. Mikill fjársjóður. Ljóðaþýðing er í orði kveðnu þversögn. Ljóð, ekki síst nútíma- ljóð, eru fyrst og síðast smíðuð úr orðum og inntak ljóðanna þá oftar en ekki rígbundið þeim orðum. Merking ljóðsins getur falist í rit- tákninu ekki síður en viðmiðinu og er þá lokleysa án þess. Í nútíma- ljóðum geta smæstu einingar borið merkingu og falið í sér bæði inntak og innræti ljóðsins – verið óafmáanlegur hluti þess, jafnvel hljóð, tónar, þagnir, stafirnir, stærðir, útlit, greinarmerki, upp- runi orðanna, margræðni þeirra, tónlist þeirra, lögun, litur, rithátt- ur, blær og saga. Svo fátt eitt sé nefnt. Ljóðið er þá ekki hægt að segja með öðrum orðum, þá er það ekki lengur til. Þýðing er þá stað- leysa og tilgerð. Umorðun og endur sögn á texta sem bundinn er eigin orðum er misskilningur og mótsögn, óvinur ljóðsins, gengur ekki upp. Í þessu er fólginn höfuðvandi þýðandans; að yfirfæra á nýtt tungumál texta sem í eðli sínu er orð fyrir orð með aðferð sem er „hugsun fyrir hugsun“ og skilar því ekki „réttum“ orðum – af því hin klassíska þýðingaraðferð, „orð fyrir orð“, skilar í tilfelli ljóðsins aldrei „heilli“ hugsun og getur því ekki orðið að ærlegu ljóði. Flókin gáta sem ráða má ef þýðandinn er „andanum vaxinn“, er sjálfur lif- andi partur af sínu móðurmáli, er sjálfur skáld með öll skynfæri opin: Þá hverfur allt smælkið hér að framan (frá hljóði til sögu) átakalaust inn í samsvarandi heildarmynd á alveg nýrri tungu, inn í íslensk orð og íslenska mál- hugsun, íslenska hefð og íslenska „forskrift“, inn í alíslensk ljóð sem spegla skáldskap frumtungunnar í öllum greinum án þess að spegla tunguna sjálfa. Þýðandinn/skáldið leikur þá á orðin án þess að svíkja þau. Bókin er til vitnis um að þetta er hægt – og um leið hverfur ská- strikið. Gyrðir leysir þrautina af stöku listfengi, vinnubrögð hans öguð og sjálfstæð. Gömul bókstafstrú kennir að „virðing við höfundinn“ felist í því að þýðing sé tvífari frumtextans, hér er hún gott betur, jafningi. Gyrðir snarar ekki orðum skáldanna á íslensku, hann kennir þeim íslenska tungu áður en þau yrkja ljóðin, það er galdurinn, veislan í farangrinum – og án þess að eigna sér heiðurinn. Flautuleikur álengdar er afburðagóð ljóðabók, „einsog að fá ástarbréf frá tré“ (52). Sigurður Hróarsson Lesið af ljóðatrjám GYRÐIR ELÍASSON SKÁLD OG ÞÝÐANDI BÓKMENNTIR Gyrðir Elíasson: Flautuleikur álengdar. Ljóðaþýðingar. ★★★★★ Menningarráð Vesturlands og Skógrækt ríkisins á Vesturlandi vinna saman að eflingu listar og útiveru í skógum svæðisins í sumar með því að styrkja lista- menn til þess að sýna útilista- verk sem unnin eru úr efniviði skóganna. Listsýning af þessu tagi verður opnuð í fallegum lundi í Jafnaskarðsskógi við Hreðavatn kl. 14 á morgun og mun standa þar út sumarið. Guðbjartur Hann- esson, þingmaður Norðvestur- kjördæmis, opnar sýninguna. Listafólkið sem sýnir í skóginum á allt rætur að rekja til Vestur- lands, en litið var til þess við skipulagningu sýningarinnar að efla samstarf á milli listamanna á Vesturlandi og auka áhuga fyrir myndlist á svæðinu. Samvinnan við skógræktina lýtur einnig að því að auka fjölbreytilega nýtingu skógarins í þágu almennings. Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Anna Leif Elísdóttir frá Leirá, Ása Ólafsdóttir frá Lækjar- koti, Ásdís Sigurþórsdóttir frá Hvanneyri, Dögg Mósesdóttir frá Grundarfirði, Guttormur Jónsson frá Akranesi, Helgi Þorgils Frið- jónsson frá Dölum, Lára Gunnars- dóttir frá Stykkishólmi og Páll Guðmundsson frá Húsafelli. Sýningin er tilraunaverkefni, en ef vel tekst til verður hugsanlega haldið áfram með svipuð uppá- tæki sem vekja athygli almennings bæði á fagurri náttúru Vesturlands og því spennandi myndlistarlífi sem þrífst á svæðinu. - vþ List unnin í tré Myndlistarkonan Mar- grét Zóphóníasdóttir opnar myndlistarsýn- inguna Vistarverur veruleikans í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, í dag kl. 16. Verkin sem Margrét sýnir þar eru olíumálverk á striga sem öll eru unnin á síðustu tveimur árum. Margrét á rætur að rekja til tveggja landa: Íslands og Danmerkur. Á sýningunni fléttar Margrét saman minn- ingarbrotum sem mynda munstur og tengjast þessum tveimur löndum. Margrét lauk for- skóla Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1977 og útskrifaðist úr Danmarks Design háskólanum í Kaup- mannahöfn árið 1981. - vþ Minningar tveggja landa fléttast MINNINGARBROT Málverk eftir Margréti Zóphónías- dóttur. Kl. 20.30 Söngvaka verður haldin í Minjasafn- inu á Akureyri, nánar tiltekið í Minjasafnskirkjunni, í kvöld kl. 20.30. Áhorfendur verða leiddir í söngferðalag í tali og tónum um íslenska tónlistarsögu frá miðöldum til okkar daga. Efnisskráin er afar fjölbreytt og spannar allt frá drótt- kvæðum miðalda til þjóðlaga frá tuttugustu öld. Eigendur sýningarrýmisins Gall- erí + á Akureyri eru þau Joris Rademaker og G. Pálína Guð- mundsdóttir. Á morgun kl. 16 opna þau saman sýningu á sínum eigin verkum í galleríinu, en þau hafa aldrei sýnt þar saman áður. Joris hefur þó haldið tvær einkasýning- ar þar og Pálína eina. Pálína sýnir gömul og ný mál- verk og Joris skúlptúra, bæði nýja og gamla. Joris valdi verkin á sýn- inguna og reyndi að hafa einhvers konar samsvörun eða samræður á milli verkanna. Joris er Hollendingur og hefur verið starfandi myndlistarmaður á Akureyri frá árinu 1991. Pálína nam myndlist í AKI í Hollandi og svo Jan van Eyck-akademíunni í Maastricht 1987-89. Þau hafa tekið þátt í samsýningum og/eða haft einkasýningar meira eða minna árlega síðan þau út skrifuðust sem myndlistar- menn. Verk Joris eru unnin úr náttúru- legum efnum og fundnum hlutum. Pálína vinnur aðallega með andlits- myndir, málverk, ljósmyndir og texta út frá stjörnukortum. Á þess- ari sýningu eru eingöngu olíumál- verk. Gallerí + er til húsa að Brekku- götu 35 á Akureyri. - vþ Andlitsmyndir og fundnir hlutir GALLERÍ + Notalegt sýningarrými á Akureyri. UNNIÐ Í EFNIVIÐ SKÓGARINS Anna Leif Elísdóttir vinnur að verki sínu fyrir myndlistarsýninguna í Jafnaskarðsskógi. Enn fást menn við að endurbæta kvikmyndir frá elstu árum kvik- myndalistarinnar þótt þúsundir kvikmynda frá fyrstu áratugunum séu glataðar og enn séu lifandi leikstjórar að gera nýjar útgáfur á verkum sínum. Nú hefur fundist eintak af langri gerð myndar Fritz Lang, Metropolis, frá 1927 og þar eru 25 mínútur af upphaflega verk- inu sem til þessa hafa talist glatað- ar. Vantar þá enn fimm mínútur í verkið. Kvikmyndasafnið Pablo Ducrós Hicken í Búenos Aíres átti í hirsl- um sínum eintakið af löngu útgáf- unni. Metropolis er af mörgum talin einn margra tinda í kvik- myndalist Evrópu milli stríða meðan sá iðnaður í álfunni var stærri og afkastameiri en kvik- myndaiðnaður Bandaríkjanna. Metropolis var framleidd 1927 og var þá ein dýrasta mynd sem fram- leidd hafði verið, kostaði þá 200 milljónir dala og átti að vera 150 mínútur að lengd. Eins og margar lengri myndir var hún klippt grimmilega í dreifingu. Adolfo Z. Wilson, dreifingaraðili í Argentínu, keypti löngu útgáfuna 1928 til sýningar þar í landi. Ein- takið komst í einkaeigu eftir það uns safnari seldi Listasjóði Arg- entínu eintakið á sjöunda áratugn- um. Það komst í hendur Kvik- myndasafnsis 1992 og þegar nýr stjórnandi tók þar við taumum um áramótin var eintakið skoðað og kom þá í ljós að þar voru langir bútar sem ekki voru áður þekktir. Er eintakið í slæmu ásigkomulagi og mun taka langan tíma að hreinsa það ramma fyrir ramma með staf- rænni tækni. Lengsta útgáfa Metr- opolis var fyrir fáum árum sýnd á Berlínarhátíðinni, en fyrir þann tíma hafði þýski tónlistarmaður- inn Giorgio Moroder gert sína útgáfu af verkinu með mörgum þekktum stefjum frá helstu tón- listarmönnum poppsins. Metropolis er ein þekktasta „sci- ence fiction“-mynd sögunnar. Hún var gerð af Fritz Lang sem var Austurríkismaður en starfaði mest í Þýskalandi uns hann flúði til Bandaríkjanna á tíma nasista. Hún var tekin í Babelsberg-kvikmynda- verinu og byggði á handriti Langs og konu hans, Theu von Harbou sem hafði samið framhaldssögu sama efnis 1926. Sagan gerist í býsna tæknivæddum heimi skýja- kljúfa og loftfara. Róbotar þjóna yfirstétt sem býr við vellystingar meðan þrælar strita í djúpunum. Kvikmyndin gerist 2026 og hefur haft gríðarleg áhrif á framtíðar- sýn kvikmyndagerðarmanna allt til okkar dags. - pbb Bætist við Metropolis KVIKMYNDIR Úr Metropolis. Vélmennið og vísindamaðurinn. Listamennirnir Friðrik Örn Hjaltested, Þóranna Dögg Björnsdóttir, Þórunn Björns- dóttir og Viðar Þór Guðmunds- son opna vinnustofur sínar í Mýrargötu 28, gömlu fisk- geymsluhúsi og núverandi húsgagnaverslun, kl. 15 í dag og standa þar fyrir sýningunni Alliance fram til 31. júlí. Sýningarrýmið nefnist Él og kennir þar ýmissa grasa. Þóranna sýnir hljóðskúlptúr- inn Strengir, Þórunn hefur glætt húsgögn verslunarinnar Saltfélagið lífi, Viðar Þór sýnir málverkaröðina Sjóndeildar- hringur og Friðrik Örn birtir nýjan kafla í verkefninu 1:. - vþ Él í fisk- geymslu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.