Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.07.2008, Qupperneq 68

Fréttablaðið - 05.07.2008, Qupperneq 68
46 5. júlí 2008 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. grútur, 6. kúgun, 8. skjögur, 9. bar að garði, 11. mun, 12. hólf, 14. yfirstéttar, 16. tveir eins, 17. hlaup, 18. flan, 20. tveir eins, 21. slagæð. LÓÐRÉTT 1. tónlistarstíll, 3. bogi, 4. eyja í Mið- jarðarhafi, 5. svelg, 7. eldsneyti, 10. samhliða, 13. iðn, 15. óhapp, 16. kvk nafn, 19. sjó. LAUSN LÁRÉTT: 2. lýsi, 6. ok, 8. rið, 9. kom, 11. ku, 12. klefi, 14. aðals, 16. gg, 17. gel, 18. ras, 20. yy, 21. ósæð. LÓÐRÉTT: 1. rokk, 3. ýr, 4. sikiley, 5. iðu, 7. kolagas, 10. með, 13. fag, 15. slys, 16. gró, 19. sæ. „Þrisvar hef ég reynt að fá viðtal við Kára en – nei,“ segir Vestur- Íslendingurinn og kvikmynda- gerðarmaðurinn Hörður Arnar- son eða H.A. Arnarson. Hörður er að gera sjónvarps- þáttaseríu um Kára Stefánsson og deCODE-ævintýrið. „Ég er loksins búinn að klippa fjóra hálftíma þætti af sex. Þetta verð- ur þriggja tíma þáttaröð sem byrjar með athyglisverðri frétt á RÚV frá árinu 1998 þar sem sagt er frá samningi Kára við Hoffmann-la Roche,“ segir Hörður sem starfar í Los Angel- es sem leikstjóri og klippari. Hann hefur þrisvar verið til- nefndur til Emmy-verðlauna en hans þekktustu verk eru líklega þau í tengslum við raunveru- leikaþáttinn Survivor sem hann hefur klippt og svo sem leik- stjóri atriða í Ripley´s Believe it or not. „Það þyrfti að borga mér mikið fyrir að tala um samstarf mitt við Mark Burnett [framleið- anda vinsælustu raunveruleika- þátta veraldar] en klippiher- berginu er staðurinn þar sem hlutirnir gerast og nei verður stundum já.“ Mynd Harðar um Kára hefur verið lengi í vinnslu og fylgt Herði allt frá því að hann var að hasla sér völl í Bandaríkjunum. Hörður sá frásögn um fyrirtæk- ið og taldi þarna hafa komið eitt- hvað fyrir sig. „Þetta byrjaði sem hefðbundin fréttaheimild- armynd árið 1999. Ég vildi að hún yrði mitt fyrsta verkefni á þessu sviði og steinféll fyrir öllu „PR-inu“ frá Kára: Gjöf Íslend- inga til heimsins og svo fram- vegis. Hörður kom til Íslands 1999 og hóf að taka viðtöl bæði við menn sem voru með og á móti. Allt hékk þó á viðtali við Kára. „Ég var búinn að filma í sex vikur, mæti og kynni mig. Kári mælir mig og kvikmynda- tökuliðið út. Segir þá að ég hafi talað við Jóhannes Jónsson, Erlu Eyfjörð og fleiri sem höfðu krít- iserað hann og henti okkur svo öfugum út. Ég sat þá uppi með rjúkandi rúst í höndunum.“ Myndin fór á ís en Hörður hefur síðan unnið að henni sam- hliða öðrum verkefnum. Ekki er ákveðið hvenær og hvar þætt- irnir verða sýndir en Hörður hefur ekki áhyggjur af því að henni verði ekki fundinn staður. Hörður segir sögu deCODE, ris og fall, ævintýralega, eða allt frá því að Davíð Oddsson hélt 17. júní-ræðu 1999 og í kjölfarið keyptu ríkisbankarnir upp upp- runalega fjárfesta og seldu íslenskum fjölskyldum fyrir ævintýralegar fjárhæðir. „Ég fór að kaupa í deCODE þegar gengið var komið í 3,5 dollara. Hugsaði, þeir geta ekki látið þetta lognast út af. Það er of vandræðalegt. Nú er gengið í einum dollara en ég myndi segja að gengi mitt sem kvikmynda- gerðarmanns hafi hækkað meðan það hefur lækkað í de CODE,“ segir Hörður. jakob@frettabladid.is H.A.ARNARSON: HEIMILDARÞÁTTASERÍA UM KÁRA STEFÁNSSON OG DECODE Kári henti þeim öfugum út HÖRÐUR MEÐ STJÚPDÓTTUR SINNI GEORGIA RAE DEL GEORGE Hefur nú klippt fjóra þætti af sex í þriggja tíma heimildarmynd um Kára Stefánsson og ævintýralegt ris og fall deCODE. KÁRI STEFÁNSSON Mynd Harðar verður honum líklega ekki að skapi, í það minnsta hefur hann ekki viljað ljá máls á viðtali, að sögn Harðar. „Við lögðum af stað sautjánda júní og þetta er búið að vera mjög ævintýralegt,“ segir Guttormur Þorsteinsson sagnfræðinemi í Háskóla Íslands, sem fór keyrandi ásamt fjórum vinum sínum á tón- listarhátíðina í Hróarskeldu. „Snorri vinur minn á 1986 módel af Toyota Camri sem við ferðuð- umst á austur og tókum Norrænu þaðan. Bíllinn var auðvitað troð- fullur af farangri, enda vorum við fimm saman. Þegar við vorum lögð af stað uppgötvuðum við að það voru bara fjögur belti í bíln- um, svo pabbi sendi mér bílbelti með flugpósti til Egilsstaða sem við settum sjálf í bílinn áður en við fórum í Norrænu,“ útskýrir Guttormur. „Við vildum gera svolítið ferða- lag úr þessu og keyra um Noreg og Svíþjóð, en fyrst vorum við í þrjár nætur í Þórshöfn í Færeyj- um. Þar keyrðum við um eyjarnar og gerðum örugglega allt sem hægt var að gera í Færeyjum á þeim tíma,“ segir Guttormur og hlær, en þegar komið var til Nor- egs tók torfarnari vegur við. „Leið- in milli Björgvinjar og Óslóar ligg- ur í 1200 metra hæð á kafla og bíllinn var oft við það að ofhitna á erfiðustu köflunum. Við þurftum þá stundum að stoppa, jafnvel í miðjum göngum eða á þröngu veg- unum í Harðangursfirði, en Snorri er góður bílstjóri svo þetta hafð- ist,“ segir Guttormur. -ag Fór keyrandi á Hróarskeldu GUTTI Á HRÓARSKELDU Keyrði frá Íslandi á tónlistarhátíðina vinsælu. FRÉTTABLAÐIÐ/KOLBRÚN Bryndís Björgvinsdóttir Aldur: 26 Starf: Nemi. Fjölskylda: Unnustinn heitir Haukur Már Helgason Foreldrar: Katrín Bára Björnsdóttir húsmóðir og Björgvin Þór Jóhanns- son kennari. Búseta: Bý í Hafnarfirði. Stjörnumerki: Ég er hrútur með fiska rísandi. Bryndís er nemi í þjóðfræði og nýráðinn ritstjóri Stúdentablaðsins. Logi Bergmann Eiðsson sást á föstudaginn rogast með fjóra bjór- kassa í sinn fjölskyldubíl. Reyndist það hans hlutur í EM-potti Stöðvar tvö manna en Logi, sem ávallt er potturinn og pannan í félagslífi hvers vinnustaðar þar sem hann er, hefur árum saman staðið fyrir vinnustaða- veðmálum þegar mikið liggur við. Logi vann pottinn að þessu sinni og eftir því sem næst verður komist mun þetta vera í fyrsta skipti sem hann vinnur slíkt veðmál. En ljóst er að potturinn hefur verið stór því Logi deildi honum með fimm öðrum sem giskuðu á að Spánn myndi vinna keppnina. Ólafur Stephensen, ritstjóri Morg- unblaðsins, heldur áfram að koma á óvart með mannaráðningum sínum. Nýjasti blaðamaður hans er Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ekki það að Þóra Kristín sé slæmur blaða- maður nema síður sé og er hún varaformaður Blaðamannafélags Íslands. En móðir hennar er Sigríður Jóhannesdóttir, fyrrum þingmað- ur Samfylkingarinnar, og tilheyrir róttækari vinstri armi hennar enda úr Alþýðubandalaginu. Óhugsandi hefði verið í tíð Styrmis Gunnarssonar að slíkur uppruni þætti í lagi í Moggabygg- ingunni. Umboðsmanni Merzedes Club, Valgeir Magnússyni, barst nýverið fyrirspurn frá breska tónlistartíma- ritinu Music and Media + vegna nýs lags með hljómsveitinni og Haffa Haff. Það kom Valla nokkuð á óvart hversu mikið blaðamaðurinn vissi um þessi fyrirbæri en til stendur að skrifa grein um þau í blaðið. Valli stendur annars í ströngu við að undirbúa prufu sem verður í dag á Tunglinu klukkan tvö fyrir söngkonu sem fær að ferðast með MC til Portúgal eftir hálfan mánuð. Og hefur áhyggj- ur af aðsókn vegna þess að allt stefnir í að helgin verði ein mesta ferða- helgi ársins. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI „Tjahhhh…,“ sagði stúlkan og yppti öxlum þegar Dr. Gunni, umboðsmaður neytenda í Frétta- blaðinu, spurði hana hvort hún færi ekki fram á persónuskilríki þeirra sem hún skipti við. Stúlkan var með rauðvínskynningu í Hag- kaupum Skeifunnar á fimmtudag- inn og mun þetta vera í fyrsta skipti sem staðið er fyrir vínkynn- ingu í matvöruverslun hér á landi. Vínið sem var verið að kynna er Tommasi sem Mekka Wines and Spirits flytur inn. Framkvæmda- stjóri þar er Jón Erling Ragnars- son og hann vildi nú ekki kannast við það að verið væri að hella víni ofan í viðskiptavini Hagkaupa nema síður sé. „Fyrir þá sem hafa aldur til. Við lítum á þetta sem ráðgjöf: Hvaða vín getur farið vel með helgarsteikinni. Botnfylli í plastsnafsaglasi,“ segir Jón Erling sem hefur varla ímyndunarafl til að geta sér til um hversu mörg slík þyrfti svo menn færu að finna á sér. Og Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, tekur í sama streng og segir þetta hluta matarmenningar lands- manna. „Þetta er ráðgjöf. Og við viljum prófa okkur áfram með þetta og sjá hvernig viðskiptavin- urinn bregst við. Því við erum til fyrir hann,“ segir Gunnar Ingi. Hann er sér meðvitaður um að þetta kunni að reynast á gráu svæði, jafnvel að þetta sé jarð- sprengjusvæði. „Við megum því miður ekki selja vín þó við glaðir vildum. Við höfum til þess betri aðstöðu en víðast býðst. Og margar kannanir sýna að fólki finnst eðlilegt að geta keypt léttvín með matar- innkaupum. En svo fara „lobbý- istavélarnar“ í gang þegar talað er um að þetta eigi að fara í búðirn- ar,“ segir Gunnar Ingi. Hagkaups- menn hafa áhuga á að prófa sig áfram með þetta í sumar og tengja grillstemningunni sem þá mynd- ast. „Við sjáum til hvað verður eftir helgi.“ - jbg Vínkynning og smökkun í matvöruverslun VÍNKYNNING Í MATVÖRUBÚÐ Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Hagkaupa, lítur á kynninguna sem ráðgjöf en ekki vínsmökkun. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1. Ingrid Betancourt. 2. Will Smith. 3. Ögmundur Jónasson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.