Fréttablaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 06.07.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 SUNNUDAGUR 6. júlí 2008 — 182. tölublað — 8. árgangur [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM ÍÞRÓTTIR ] Sport júlí 2008 MEIRI METALL Í KVENNABOLTANUMÍÞRÓTTAMÖMMURNARVONARSTJÖRNUR KVENNABOLTANSDÓMARAR FÁ ÞJÁLFARA FYLGIR Í DAG Þúsundir titla í boði á ótrúlegum verðum OPIÐ 11 - 19 ALLA DAGA VIKUNNAR BYÐU ÖSSURI MEÐ Í ÚTILEGU Sigurlaug M. Jónasdóttir og Sigmar B. Hauksson settust á rökstóla AÐ LIFA KREPPUNA AF Tilboðsmatur, afgangar og salat úr garði nágrannans. Hagsýnir ráðgjafar gefa sparnaðarráð. VIÐSKIPTI „Gengi íslensku krón- unnar er hagstætt fyrir útlend- inga og við finnum fyrir því,“ segir Sandra Jóhannsdóttir, starfsmaður í Víkurprjóni í Vík í Mýrdal. Sandra segir að salan hafi auk- ist mjög hjá fyrirtækinu milli ára. Aukningin nemi líklega þrjá- tíu til fjörutíu prósentum. „Það er mjög mikill munur á gengi krónunnar nú og í fyrra og við heyrum minna um að útlend- ingarnir kveinki sér yfir verðlag- inu á Íslandi,“ segir Sandra. „Við höfum orðið vör við lítils háttar söluaukningu milli ára,“ segir Bryndís Sigurðardóttir, verslunarstjóri í Rammagerð- inni. Bryndís segir meira keypt af litlum minjagripum og minna af dýrari varningi í ár en áður. „Við höfum fengið færri stóra kaup- endur nú en oft áður,“ segir Bryndís. Bryndís segir að þrátt fyrir að gengið sé hagstætt fyrir erlenda ferðamenn í ár vegi verðhækkan- ir þar upp á móti og minnki áhrif gengisbreytinganna. - ht Gengi íslensku krónunnar mun hagstæðara fyrir erlenda ferðamenn en í fyrra: Sala á prjónavörum rýkur upp GEGN GUÐI OG GÓÐU SIÐFERÐI Aldarfjórðungur er liðinn síðan Úlfar Þormóðsson, útgefandi Spegilsins, var dæmdur fyrir guðlast og klám. HELGAREFNI 16 1410 VEÐRIÐ Í DAG ENDURREISN STÓRVELDIS Uppgangur rússneska fótboltans og hvernig valdhafar nýta íþróttir sér í hag. HELGIN 12 SIGURHRINGURINN FH-ingar sigruðu í 43. bikarkeppni FRÍ sem lauk á Kópavogsvelli í gær en þetta var fimmtánda árið í röð sem Hafnarfjarðarliðið vinnur keppnina. Liðið sigraði í bæði karla- og kvennaflokki og fyrirliðarnir Silja Úlfarsdóttir og Björgvin Víkings- son hlaupa hér fremst í flokki með sigurlaunin. Sjá síðu 26 FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL TOKYO, AP Japanskur ævintýra- maður, Kenichi Horie, sigldi um 7.800 kílómetra leið milli Honululu á Hawaii og Wakayama í Vestur-Japan á snekkju, knúinni af afli frá sjávaröldunum. Kenichi Horie kom í land í fyrradag en ferðin hófst í mars. Ástæðuna fyrir því hversu ferðin gekk seint segir Horie vera þá að veðrið hafi verið gott og sjórinn lygn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hinn 69 ára gamli Horie siglir á náttúruvænu afli en árið 1992 fór hann á fótstignum báti milli Hawaii og Japan til að vekja athygli á vistvænum ferðakostum. - rat Sigldi á afli sjávaraldna: Veðrið var of gott til siglinga 17 12 16 19 16 22 20 20 BJART MEÐ KÖFLUM Í dag verður hægviðri eða hafgola. Bjart með köflum og hætt við þokulofti með ströndum, einkum norðan og austan til. Hiti 12-22 stig, hlýjast til landsins vestan til. VEÐUR 4 HESTAR Ekki náðist að slá heims- metið í 100 metra skeiði á Landsmóti hestamanna í gær, líkt og stefnt var að. Landsmótinu lýkur í dag þegar úrslit verða ljós í öllum keppnisgreinum. „Það hefur allt gengið upp þrátt fyrir vitlaust veður um tíma,“ segir Sigurður Ævarsson móts- stjóri. Hingað hafa komið um 12- 15 þúsund manns og fólk er enn að drífa að.“ Sigurður er ánægður með hvernig til hefur tekist með landsmótið og segir tímaáætlanir hafa staðist. „Veðrið er mjög gott núna og hér eru frábærir hestar að keppa. Við erum ánægð með mótið og fáum ekkert nema góð viðbrögð frá fólki.“ - rat Landsmót hestamanna: Heimsmet ekki slegið í skeiði FÍNAR PEYSUR Erlendir ferðamenn skoða vöruúrvalið hjá Rammagerðinni. FÉTTABLAÐIÐ/ANTON SIGURÐUR ÆVARSSON Mótsstjóri er ánægður með landsmótið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FLÓTTAMENN „Ef þeir senda mig til Kenía bið ég um að einhver sjái um konuna mína og litla barnið mitt. Ég get ekki til þess hugsað að það verði fátækur betlari á götunum, ef ég verð drepinn. Ég get ekki beðið um neitt mikilvægara en þetta,“ segir Paul Ramses flóttamaður. Paul dvelst nú í Sentrone-búðun- um fyrir utan Róm og er vondaufur um að Ítalir taki við honum, fyrst að „ríkt land eins og Ísland vildi ekki gera það“. Í samtali við Fréttablaðið segist hann biðja fyrir íslenskum stjórn- völdum, sem hafi ef til vill sent hann í opinn dauðann. Á Íslandi séu sönnunargögn sem sýni að hann sé á „dauðalista“ í heimalandinu. „Og við erum þá samábyrg ef hann verður myrtur,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. „Við gætum tekið upp símann og fengið hann til baka á morgun. Ítalir myndu fagna því. Tilfinningalega kemur það líka við hjartað að sonur hans hafi fæðst á Íslandi. Mér finnst hann verða svo- lítill Íslendingur við það. Það er ansi kaldranalegt ef við ætlum að fara að sparka nýfæddum börnum úr landi,“ segir hann. Birgir Ármannsson, formaður allsherjarnefndar, hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort mál hælisleit- enda verði tekin fyrir í nefndinni, en Steingrímur hefur farið fram á að nefndin skoði mál Pauls. Birgir útilokar þetta ekki. „En nefndin hefur ekki úrskurðarhlutverk um málefni einstaklinga eins og í þessu tilfelli,“ segir Birgir. Spurður álits á framkvæmd þess- ara mála, í ljósi þess að hælisleit- endur eru iðulega sendir til Evrópu á grundvelli Dyflinnar-samnings, segir Birgir: „Við höfum framfylgt samningnum með þessum hætti og ég held að það hafi ekki valdið nein- um sérstökum vandræðum fyrir okkur.“ - kóþ/ sjá síðu 6 Paul biðst vægðar fyrir litla barnið sitt Paul Ramses er vonlítill um að ítölsk yfirvöld taki við honum. Hann biður þess að kona hans og fimm vikna gamalt barn verði ekki send til Kenía líka. „Ansi kald- ranalegt að sparka nýfæddum börnum úr landi,“ segir formaður Vinstri grænna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.