Fréttablaðið - 08.07.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veiðiÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 Zpey-veiðistangirVinsæl nýjung á Íslandi
BLS. 2
Flugfélag ÍslandsBýður upp á veiðiferðir
til Nuuk
BLS. 2
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR SUMAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Elvar Þór Karlsson er ungur maður í toppformi, sem tókþátt í 10
áhuginn aukist og líkamsr korðið k
Vatt kvæði sínu í kross
Elvar Þór Karlsson telur Boot Camp hafa breytt lífi sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GOTT Í GRILLVEISLUNAÍTR leigir út hjólbörugrill í veislur og annan mann-fagnað.
SUMAR 3
ÞINN RÉTTUR
er yfirskrift nýrra pistla frá Tryggingastofnun ríkisins sem munu birtast mán-aðarlega í Allt-inu.
HEILSA 2
49,72%
36,3%
69,94%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
24
st
un
di
r
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 41% meiri
lestur en 24 stundir og 93%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið 18–49 ára.
skv. könnun Capacent í febrúar - apríl 2008
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
8. júlí 2008 — 184. tölublað — 8. árgangur
VEIÐI
Ódýr veiðisvæði og
nýjungar á markaði
Sérblað um veiði
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ELVAR ÞÓR KARLSSON
Tók nýverið þátt í 100
kílómetra hlaupi
heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Gerir sér
glaðan dag
Ragnar Arnalds
fagnar sjötugs-
afmælinu í faðmi
dætra sinna.
TÍMAMÓT 18
DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON
Aftur í
Gettu betur
Þórhallur fær reynslubolta á skjáinn
FÓLK 30
Falleg eins og
jökull
Aníta Briem fær góða
dóma fyrir leik sinn
í Leyndardómum
Snæfellsjökuls.
FÓLK 25
12 16
14
1616
HÆGVIÐRI ÁFRAM Í dag verður
hæg norðlæg eða breytileg átt.
Víðast nokkuð bjart veður en hætt
við þokulofti með ströndum. Hiti
10-22 stig, hlýjast til landins vestan
til en mun svalara í þokunni.
VEÐUR 4
Baldursnesi 6
Akureyri
0501414imíS
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Opið virka daga frá 8 -18
Heilsunuddpottar
KVIKMYNDAGERÐ „Hann er goðið,“
segir Baltasar Kormákur kvik-
myndaleikstjóri sem hefur nú
ráðið leikskáldið og kvikmynda-
leikarann Sam Shepard til að fara
með viðamikið hlutverk Holly-
wood-mynd sem hann er að taka í
Nýju-Mexíkó.
Baltasar Kormákur var staddur
á Íslandi í stuttu stoppi og brá sér
á Landsmót hestamanna á Hellu.
Hann er rokinn aftur til Ameríku
en tökur á mynd hans Run for her
Live eru nú hálfnaðar. Skömmu
áður en hann sté í flugvélina til
Íslands bárust honum þau tíðindi
að gengið hefði eftir það sem hann
hafði þá unnið að um skeið: Að fá
Sam Shepard til að fara með hlut-
verk stjórnmálamanns sem er
tvöfaldur í roðinu. „Honum leist
vel á handritið. Það hlýtur þá að
vera eitthvað í því,“ segir Baltasar
og ekki á hverjum degi sem menn
fá hrós frá einhverju virtasta leik-
skáldi veraldar.
Sam Shepard á að baki tilkomu-
mikinn feril sem kvikmyndaleik-
ari en er líklega þekktari sem leik-
skáld. Eftir hann liggja verk á
borð við Fool For Love, Buried
Child og True West.
Fyrirhugað er að tökum á Run
for her Live ljúki í byrjun ágúst en
aðalhlutverk eru í höndum Derm-
out Mulrony og Diane Kruger.
Myndin kostar 80 milljónir dollara
í framleiðslu og er líklega sú dýr-
asta sem íslenskur leikstjóri hefur
gert á erlendri grund. - jbg/sjá síðu 30
Gamall draumur kvikmyndaleikstjórans Baltasars Kormáks rætist:
Sam Shepard í mynd Baltasars
SAM SHEPARD Hrósaði Baltasar fyrir
handritið að Run for her Live og hefur
fallist á að fara með hlutverk í myndinni.
FLÓTTAMENN Ef íslenskt samfélag
getur tekið við þeim Paul,
Rosemary og Fídel frá Kenía „þá
er það krafa Jesú frá Nasaret að
hann fái hæli,“ segja prestarnir
Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni
Karlsson.
Þetta kom fram í predikun
þeirra hjóna í kvöldmessum á
sunndagskvöld og birt er á
bloggsíðu þeirra. Þar segir enn
fremur að þótt ekki sé hægt að
bjarga öllum flóttamönnum, ætti
fólk að gera það sem það gæti.
Allsherjarnefnd Alþingis
fjallar um flóttamenn í dag, að
beiðni þingflokks Vinstri
grænna. Kona Keníamannsins
Pauls Ramses fór stuttlega á
sjúkrahús í gær, en hún segist
mjög kvíðin. Brottvísun hans
verður kærð til dómsmálaráð-
herra.
- kóþ /sjá síðu 6
Prestar um Paul Ramses:
„Krafa Jesú
frá Nasaret að
hann fái hæli“
ORKUMÁL „Við höfum byrjað við-
ræður við sveitarfélög víðs vegar
um landið og olíufélög um að koma
fjölorkustöðvum kringum landið.
Ökumenn sem kjósi að aka bifreið-
um knúnum af innlendum endur-
nýjanlegum orkugjöfum geti tekið
orkugjafa eins og metan, vetni, raf-
magn, metanól og lífeldsneyti,“
segir Össur Skarphéðinsson iðnað-
arráðherra.
Rætt hefur verið við Akureyrar-
bæ, Fjarðabyggð, Höfn í Horna-
firði, Reykjanesbæ og Hafnarfjörð
um samvinnu við að koma á fót
slíkum stöðvum.
Vinnan er komin lengst í Hafnar-
firði. Metanstöð á vegum N1 á
Hellnahrauni á að vera tilbúin í
ágúst. Hafnarfjörður vinnur að því
að skipta út bílaflota sínum fyrir
metanbíla. Stefnt er að því að því
verði lokið í lok árs 2009, að sögn
Guðmundar Ragnars Árnasonar,
innkaupastjóra Hafnarfjarðar.
Guðmundur segir að metan sé
helmingi ódýrara en bensín auk
þess að vera miklu umhverfis-
vænna. „Þetta er eitt best varð-
veitta leyndarmál á Íslandi,“ segir
hann.
Ætlunin er að olíufélögin reki
stöðvarnar en að ríki og sveitarfé-
lög tryggi þeim markað á fyrstu
skrefunum með því að skipta út
opinbera bílaflotanum fyrir bif-
reiðar sem ganga fyrir endurnýj-
anlegu eldsneyti. Forsenda þess er
að slíkt eldsneyti verði í boði
víðar.
Fjölorkustöðvarnar eru hluti af
áætlun iðnaðarráðuneytisins um
að gera Íslendinga síður háða jarð-
efnaeldsneyti. „Við höfum verið að
búa Ísland undir orkuskiptin. Það
er ekki spurning um hvort heldur
hvenær það þarf að skipta úr olíu í
endurnýjanlega orkugjafa. En það
er ekki hægt nema dreifileiðir séu
fyrir hendi,“ segir Össur.
Hann telur að Íslendingar hafi
forskot í þessum efnum. „Íslend-
ingar eru mjög framarlega í vetnis-
tækni þar sem Ísland hefur verið
tilraunaland með vetnisbíla. Sömu-
leiðis er metannotkun komin vel á
veg,“ segir hann. „Við höfum einn-
ig gnótt grænnar raforku sem er
ódýr í samanburði við rafmagn
erlendis.“ - gh
Ódýr og vistvæn orka
seld við hringveginn
Iðnaðarráðuneytið undirbýr í sameiningu við sveitarfélög að koma á fót fjöl-
orkustöðvum. Þar verður hægt að setja metan, vetni og rafmagn á bifreiðar.
BYGGÐAMÁL Ný vatnsleiðsla var
lögð frá Bakkafjöru til Vest-
mannaeyja í gær. Leiðslan er um
tólf kílómetra löng og því lengsta
vatnsleiðsla í heiminum sem
liggur eftir hafsbotni.
Leiðslan var dregin úr flutn-
ingaskipinu Henry P. Lading upp
í Bakkafjöru, og var haldið á floti
með sérstökum flotkútum á
meðan enda hennar var komið
fyrir í fjörunni. Þegar hafist var
handa við að leggja sjálfa
leiðsluna voru flotkútarnir teknir
af og leiðslan látin sökkva til
botns. Annar endi leiðslunnar var
festur við land á Landeyjasandi í
gærmorgun. Gert var ráð fyrir
því að lokið yrði við lögn
leiðslunnar nú í morgun.
Danska fyrirtækið NTK sér um
verkið, en það lagði einnig fyrstu
vatnsleiðsluna til Eyja fyrir 40
árum. - þeb
Lengsta leiðsla sinnar tegundar:
Vatnsleiðsla
lögð til Eyja
Útlitið er orðið
slæmt
Fylkir, ÍA og HK eru
áfram í þremur
neðstu sætum
Landsbanka-
deildarinnar eftir
töp í gær.
ÍÞRÓTTIR 26
LEIÐSLA Í LÓÐSI Til stóð að halda
verkinu áfram síðdegis í gær en þungir
hafstraumar komu í veg fyrir það. Þess í
stað var fyrirhugað að hefjast handa að
nýju um klukkan þrjú í nótt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
Ó
SK
A
R
F
R
IÐ
R
IK
SS
O
N
Lífið er óvissa
„Enginn gerir ráð fyrir ísbjarnar-
heimsóknum og skjálftum, bæði
í viðskiptalífi og jarðskorpunni,“
segir Jónína Michaelsdóttir.
Í DAG 16
VEÐRIÐ Í DAG