Fréttablaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 8. júlí 2008 19
„Þegar foreldrar mínir voru að skíra mig settu
þeir fimm nöfn á miða, skelltu þeim í glas og
drógu seinna nafnið þannig. Nafnið Hróar er því
alveg út í bláinn,“ útskýrir Steinþór Hróar, út-
varpsmaður á X-inu, og bætir við að í glasinu
hafi leynst alls konar skrítin nöfn.
Fyrra nafnið, Steinþór, er hins vegar ögn hefð-
bundnara en Hróar og er það í höfuðið á afa
Steinþórs Hróars. „Ég er þriðji Steinþórinn þar
sem afi hét Steinþór og pabbi heitir líka Stein-
þór. Ég er hins vegar kallaður Steindi junior af
því afi var alltaf kallaður Steindi,“ segir Steinþór
Hróar sem notar sjaldnast bæði nöfnin, enda
oftast kallaður Steindi junior. „Ég hef nú lítið
notað Hróarsnafnið og hef ekki hitt neinn annan
með því nafni. Það er samt ágætt að eiga eitt
nafni inni,“ segir Steinþór Hróar og hlær.
NAFNIÐ MITT: STEINÞÓR HRÓAR STEINÞÓRSSON
Nafnið dregið úr glasi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Gengið verður um þjóðgarð
Snæfellsjökuls klukkan 14
í dag. Þetta er ein af viku-
legum göngum sem farnar
verða í sumar um þjóðgarð-
inn og nefnist hún Lífið í
bjarginu. Landverðir munu
taka á móti gestum hjá bíla-
stæðinu við Svalþúfu. Rölt
verður um Þúfubjarg þar
sem Kolbeinn og kölski
kváðust á forðum. Gangan
mun taka á bilinu einn til
tvo tíma.
„Landverðirnir segja frá
jurtunum, jarðfræðinni,
fuglalífinu og sögunni,“
segir Guðbjörg Gunnars-
dóttir þjóðgarðsvörður.
Hún segir leiðina fallega,
fjölbreytta, skemmtilega og
færa fyrir flesta.
„Við erum með fjórar
fastar gönguferðir í hverri
viku. Einnig bjóðum við
upp á fleiri göngu ferðir
yfir sumarið sem eru þó
ekki alltaf vikulegar. Þetta
er mjög fjölbreytt dagskrá
sem við höfum verið með
sem er líka skemmtileg
fyrir krakka.“
Guðbjörg segir veður og
göngufólk ráða mestu um
hversu langan tíma göngu-
ferðin tekur. „Þetta fer auð-
vitað alltaf svolítið eftir
veðri. Fólk gengur hægar
og vill vera lengur að dóla
ef veðrið er gott. Það fer
líka eftir því hvað fólk spyr
mikið og er að spá og spek-
úlera.“
Hún segir flesta sem
koma í ferðirnar ferðamenn
og hafi margir útlendingar
gengið um svæðið í sumar.
Upplýsingar um ferðir í
þjóðgarði Snæfellsjökuls
má finna á www.ust.is
- mmf
Gengið um
þjóðgarð
GANGA Farið verður um þjóðgarð Snæfellsjökuls klukkan 14 í dag.
Bryggjuhátíðin Brú til
brottfluttra verður haldin á
Stokkseyri dagana 10. til 14.
júlí.
Hrútavinir við Suður-
ströndina sjá um hátíð-
ina í umboði breiðfylk-
ingar meðal heimamanna.
Bryggjuhátíðin er nú hald-
in í fimmta sinn og að þessu
sinni verða samstarfsaðil-
ar Ungmennafélag Stokks-
eyrar, sem fagnar 100 ára
afmæli, og Búnaðarfélag
Stokkseyrarhrepps, sem á
120 ára afmæli.
Ljósmyndasýning verð-
ur opnuð við Shell-skálann
klukkan 20.30 þann 10. júlí.
Daginn eftir verður flug-
eldasýning klukkan 20.00,
kveikt á varðeldi og sung-
ið undir stjórn Árna John-
sen. Bændaball verður á
bryggjunni klukkan 21 og
hljómsveitin Karma leikur á
Draugabarnum klukkan 23.
Dagskráin hefst með
íþróttahátíð klukkan 15
þann 12. júlí. Fleira verður
á döfinni þann daginn og má
nefna bryggjutónleika ungl-
ingahljómsveita, sælgætis-
leik, grillveislu í görðum og
hljómsveitin Vítamín leikur
fyrir dansi á Draugabarnum
um kvöldið.
Hópreið verður klukkan
13 á sunnudegi og klukkan
15 sama dag verður farið í
söguferð um sveitina með
Búnaðarfélagi Stokkseyrar-
hrepps.
Söfn og sýningar verða
höfð opin dagana sem hátíð-
in stendur yfir.
-mmr
Brú til brottfluttra
HÁTÍÐ Bryggjuhátið á Stokkseyri
heppnaðist vel í fyrra.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Þorbjargar Svavarsdóttur
Arahólum 2, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild
Landakotsspítala fyrir einstaka alúð og umönnun.
Svavar Þorvaldsson Elzbieta Lul
Selma Þorvaldsdóttir
Ásgeir Jóhannes Þorvaldsson Kristín Alexandersdóttir
Elísabet Þorvaldsdóttir Guðmundur Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir, afi, sonur og
tengdasonur,
Bjarni Jónas Ingimarsson
Akurbraut 46, 260 Reykjanesbæ,
andaðist á HSS sunnudaginn 6. júlí. Útför verður
auglýst síðar.
Sara Harðardóttir
Sara Ross Bjarnadóttir
Ásta Vigdís Bjarnadóttir Gabríel Orri Karlsson
Ásta Vigdís Bjarnadóttir Ingimar Elíasson
Sarah Ross Helgason
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eigimaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
Sigurður Ben Þorbjörnsson
vélvirki, Pósthússtræti 1, Keflavík,
lést á Landspítalanum v/Hringbraut, föstudaginn, 4.
júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, fimmtudag-
inn 10. júlí kl. 14.00.
Maja Sigurgeirsdóttir
Ásta Ben Sigurðardóttir Erlingur Bjarnason
María Ben Erlingsdóttir Eyjólfur Ben Erlingsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Jón Sigurgrímsson
frá Holti, Seftjörn 12, Selfossi,
sem lést sunnudaginn 29. júní á hjúkrunarheimilinu
Ljósheimum verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 10. júlí kl. 14.00.
Jóna Ásmundsdóttir
Unnur Jónsdóttir Guðmundur S. Halldórsson
Ásmundur Jónsson Ufouma Overo Tarimo
Guðlín Katrín Jónsdóttir
Ingveldur Björg Jónsdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir Ólafur Unnarsson
Sigurgrímur Jónsson
og barnabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir afi,
langafi og langalangafi,
Indriði Indriðason
ættfræðingur,
lést á dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík
föstudaginn 4. júlí 2008.
Indriði Indriðason
Ljótunn Indriðadóttir
Sólveig Indriðadóttir Björn Sverrisson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Lilja Guðlaugsdóttir
Víðilundi 24, Akureyri, áður til heimilis að
Hafnarstræti 33,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn 11. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
Margrét Þórhallsdóttir Karl Eiríksson
Þórhalla Þórhallsdóttir Hjörtur Hjartarsson
Valdimar Þórhallsson Inga Hjálmarsdóttir
Gylfi Þórhallsson
Eyþór Þórhallsson Margrét Sigurðardóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar,
Brynhildur Jónsdóttir
garðyrkjukona,
lést sunnudaginn 6. júlí að dvalar- og húkrunar-
heimilinu Ási, Hveragerði.
Björk Snorradóttir
Steingrímur E. Snorrason
Snorri P. Snorrason
Kristján Snorrason
Elskuleg móðir okkar,
Sigríður Egilsdóttir
Austurbyggð 17, Akureyri,
lést fimmtudaginn 3. júlí. Útför hennar verður auglýst
síðar.
Sigþór Bjarnason
Ingibjörg Bjarnadóttir
Egill Bjarnason
Þórdís Bjarnadóttir
Sigurður Bjarnason
Elskuleg föðursystir okkar,
Helga Guðjónsdóttir
Garðvangi, Garði, áður til heimilis að
Tjarnargötu 18, Keflavík,
er látin. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstu-
daginn 11. júlí kl. 14.00.
Guðlaugur Eyjólfsson
Elísabet Ólafsdóttir
og aðrir aðstandendur.