Fréttablaðið - 15.07.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
49,72%
36,3%
69,94%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
24
st
un
di
r
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 41% meiri
lestur en 24 stundir og 93%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið 18–49 ára.
skv. könnun Capacent í febrúar - apríl 2008
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
15. júlí 2008 — 191. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN SUMAR FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Íslenska hásumarið dregur Áslaugu Dóru
Eyjólfsdóttur, sérfræðing í menntamálaráðu-
neytinu, og hennar fjölskyldu út áá ið
kaffihús í kaupfélaginu í Norðurfi ði
ekki síður u h
Með Vestfjarðabakteríu
„Við fengum mjög gott veður á Vestfjörðunum í fyrra, glampandi sól allan tímann og spáin er alveg sæmileg núna, en við tökum
samt að sjálfsögðu regngallana með,“ segir Áslaug Dóra, sem hér er ásamt tvíburunum Stefáni og Sólveigu Nordal.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SUMAR Í HÖMRUMTónlistarfélag Ísafjarðar stendur fyrir tónleikaröð-inni Sumar í Hömrum í júlí og ágúst og hefst hún á fimmtudaginn með tónleikum tónleika-hópsins Slyngs.
SUMAR 3
OFNÆMI Í HÁMARKIÓvenjumikið hefur verið af frjókornum í loftinu í sumar og því hafa margir sem ekki hafa áður fundið fyrir frjókornaofnæmi verið greindir með slíkt ofnæmi núna.
HEILSA 2
VEÐRIÐ Í DAG
ÁSLAUG DÓRA EYJÓLFSDÓTTIR
Tilhlökkunarefni að
gista alveg við úthafið
sumar ferðir
Í MIÐJU BLAÐSINS
Flóttamenn á Íslandi
„Langar okkur til að búa í hinni
vernduðu virkisborg sem búið
er að reisa í kringum okkur eða
viljum við annars konar heim?“
spyr Sverrir Jakobsson.
Í DAG 16
börnÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008
Hildur Kristjánsdóttirsegir mikilvægt að halda lestrar-kunnáttu barna viðBLS. 4
Ný vefsíða
helguð frístundum barna
BLS. 2
Klukkan er núll
Þorleifur Örn Arnarsson
er þrítugur í dag. Hann
stendur á tímamótum;
mun brátt ljúka námi
sínu og fram undan eru
mörg krefjandi
verkefni.
TÍMAMÓT 18
STJÓRNSÝSLA Þrír ljósleiðaraþræðir
sem Atlantshafsbandalagið (NATO)
lét leggja á Íslandi í kringum 1990,
iðulega kallaðir NATO-ljósleiðarar,
eru taldir til eigna NATO í aug lýs-
ingu utan ríkisráðuneytisins. Það
samræmist ekki samningi um lagn-
ingu ljós leiðaranna frá 1989, þar
sem segir skýrum stöfum að þeir
séu og verði eign Íslendinga.
Í varnarmálalögum er kveðið á
um að utanríkisráðuneytið skuli
birta lista yfir mann virki og fjar-
skiptakerfi NATO sem Varn-
ar málastofnun ber ábyrgð á. Slík
auglýsing var birt 19. júní. Á list-
anum eru ljósleiðaraþræðirnir
þrír auk fjölda annarra eigna.
Samningur um lagningu ljós-
leiðaranna frá 1989 kveður hins
vegar afdráttarlaust á um að þeir
séu eign íslenska ríkisins, nánar
til tekið Póst- og fjarskiptastofnun-
ar. Bandaríkin, fyrir hönd NATO,
skuli þó hafa óheftan aðgang og
afnot af þeim þar til varnar samn-
ingi þjóðanna frá 1951 verði rift.
Undir samninginn rita Þor steinn
Ingólfsson, þáverandi ráðu neytis-
stjóri í utanríkis ráðu neytinu, og
Thomas F. Hall frá NATO.
Þetta eignarhald hefur verið
ítrekað margsinnis í opinberum
skjölum, meðal annars í samningi
Landssímans, utanríkis- og
sam göngu ráðuneytisins frá 2001
um eignarhald, meðferð, rekstur
og viðhald ljósleiðaranna, og að
auki í tveimur skýrslum einka væð-
ingar nefndar frá 2001 og 2005.
Þórir Ibsen, yfirmaður varnar -
málaskrifstofu utanríkisráðu-
neytis ins, staðfesti við Fréttablaðið
í gær að ráðuneytið teldi ljós leið-
arana eign NATO.
Leiga á tveimur þráðunum af
þremur var nýverið boðin út á
grundvelli ákvæðis í varnar-
mála lögum sem segir að Varnar-
mála stofnun sé „heimilt […] að
veita gegn gjaldi samningsbundin
afnot af mannvirkjum og búnaði
[NATO] sem stofnunin hefur
umsjón með […]“ Tekjurnar skuli
renna til stofnunarinnar til við-
halds mann virkjana, í þessu til-
viki ljósleiðaranna. - sh
Ljósleiðarar ríkisins
skráðir í eigu NATO
Yfirvöld telja svokallaða NATO-ljósleiðara til eigna Atlantshafsbanda lagsins.
Það er á skjön við samning um lagningu ljósleiðaranna frá 1989, þar sem stend-
ur skýrum stöfum að ljósleiðararnir séu og verði alfarið í eigu íslenska ríkisins.
BÖRN
Útivist, listsköpun og
önnur frístundaiðkun
Sérblað um börn
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ÞRÖSTUR JÓNSSON
Kominn í heyskap
Bassafanturinn notar tímann milli
túra á sjónum
FÓLK 30
Raðar inn mörkum
Útvarpsmaðurinn Elías
Ingi Árnason er með
markahæstu mönnum í
annarri deildinni í
fótbolta.
FÓLK 30
ÞURRT SYÐRA Í dag verða
norðvestan 5-10 m/s víðast hvar.
Rigning norðan til og austan en
þurrt syðra og sums staðar bjart
með köflum. Hiti 7-18 stig, hlýjast til
landsins syðra.
VEÐUR 4
13
9
10
12
17
BÖRN Letetia Beverly Jonsson
hefur safnað saman upplýsingum
um þá möguleika til frístundaiðk-
unar sem bjóðast börnum.
Upplýsingarnar birtast nú á nýrri
vefsíðu, fristundir.is, og eru á
þremur tungumálum; íslensku,
ensku og pólsku.
„Ísland hefur breyst, það er ekki
eins og áður þegar hér voru bara
Íslendingar. Núna er mikið af
erlendu fólki sem er með börn.
Nauðsynlegt er að taka tillit til
þarfa þess,“ segir Letitita.
Fyrsta kastið taka upplýsingar
til frístundaiðkunar á höfuðborgar-
svæðinu en á næsta ári verður
upplýsingum af öllu landinu bætt
við. - stp / sjá sérblað um börn
Vefsíða um tómstundir barna:
Allar upplýsing-
ar á einum stað
DÝRALÍF Smyrill nokkur fékk
gistingu í bílskúrnum hjá Jóni
Reyni Sigurvinssyni, skólameist-
ara Menntaskólans á Ísafirði,
aðfaranótt sunnudags. Jón varð
var við að fugl flygi inn í bílskúr-
inn. „Þegar þangað var komið sá
ég hvar smyrillinn sat í mestu
makindum á hjóli og ekkert
fararsnið á honum.“ Jón taldi
fuglinn jafnvel lemstraðan og
leyfði honum því að gista. Daginn
eftir vitjaði hann næturgestsins.
„Ég fékk hann til að setjast á
höndina á mér og þar sat hann sem
fastast.“ Svo flaug hann á brott en
sat á umferðarskilti skammt frá
síðast þegar Jón Reynir sá hann.
„Ég held að honum muni bara
vegna vel.“ - jse
Næturgestur skólameistara:
Smyrill gisti
í bílskúrnum
JÓN REYNIR OG SMYRILLINN Vel fór á
með Jóni Reyni og smyrlinum sem fékk
gistingu um helgina hjá skólameistaran-
um. MYND/MAGNÚS HREINN JÓNSSON
FUNDUR FORSÆTISRÁÐHERRA Geir Haarde forsætisráðherra boðaði blaðamenn til fundar í Stjórnarráðinu í gær. Geir kvaðst
telja það óraunhæft að Íslendingar næðu samningum við Evrópusambandið um upptöku evru án inngöngu í sambandið.
FRÉTTABLAÐIÐ STEFÁN
EFNAHAGSMÁL „Miðað við mínar
upplýsingar er þessi leið ekki fær.
Það er ekki hægt að stytta sér leið
þarna inn,“ segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkis ráðherra um
hugmyndir Björns Bjarnasonar
dómsmálaráðherra um evru sem
þriðju stoðina í samstarfinu við
Evrópusambandið (ESB), sam-
hliða samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið og Schengen-
samkomulaginu.
Ingibjörg telur engar lögform-
legar hindranir fyrir hugmynd-
inni en dregur mjög í efa að pólit-
ískur vilji sé fyrir þessu hjá
Evrópusambandinu. „Um það
höfum við fengið skýr skilaboð frá
Evrópusambandinu,“ segir Ingi-
björg Sólrún.
Hún segir það merkilega yfir-
lýsingu hjá Birni að hann telji nú
að Íslandi sé best borgið innan
myntbandalagsins. Þá yrðu 27 ríki
ESB að samþykkja að Íslendingar
tækju upp evru áður en málið
kæmist lengra.
„Við höfum talið þetta fjarlægan
möguleika,“ sagði Geir H. Haarde
forsætisráðherra í gær. Hann segir
að innan hugmyndar Björns rúm-
ist einnig að krónan verði tengd
evrunni. Það verði kannað frekar.
Björn vísar til 111. greinar stofn-
sáttmála ESB. Þar sjáist að sam-
bandið hafi heimild til að semja við
þriðja ríki um evru aðild. „Ég hef
sagt að lögheimildir skorti ekki, ef
pólitískan vilja skortir er það
annað mál.“
Spurður hvort hann hafi heyrt af
viðhorfsbreytingu innan ESB segir
hann að mat sitt byggist á uppnámi
í ESB eftir að Írar höfnuðu Lissa-
bon-sáttmálanum.
Percy Westerlund, sendiherra
Evrópusambandins gagnvart
Íslandi, segir hins vegar að þessi
túlkun á 111. grein stofnsáttmál-
ans standist ekki.
- ikh / sjá síðu 10 og 12
Deilt um hvort hér sé hægt að taka upp evru án aðildar að Evrópusambandinu:
Ekki hægt að stytta sér leið
Keflvíkingar
á toppinn
Þórarinn Kristjánsson
skoraði bæði mörkin
í 0-2 sigri Keflavíkur
gegn Fram í gær-
kvöld.
ÍÞRÓTTIR 26
BANDARÍKIN, AP Skoðanakannanir í
Bandaríkjunum benda til þess að
58 prósent Bandaríkjamanna telji
John McCain, forsetaframbjóðana
Repúblikana-
flokksins, of
gamlan.
McCain verður
72 ára gamall
þegar hann tekur
við forsetaemb-
ættinu, nái hann
kjöri. Sitji hann
tvö kjörtímabil,
hámarkið sem leyfilegt er, verður
hann áttatíu ára þegar hann lætur
af störfum.
44 prósent Bandaríkjamanna
telja Barack Obama, frambjóðanda
Demókrataflokksins, of ungan
samkvæmt skoðanakönnunum. - gh
Fleiri telja McCain of gamlan:
Áhyggjur af
aldri McCain
JOHN MCCAIN