Fréttablaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 2
2 15. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
flugfelag.is
Aðeins eitt símtal í 570 3400 og málið er afgreitt.
Sækjum og sendum
– hratt og örugglega
á hagstæðu verði.
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
FÆREYJARVESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
GRÆNLAND
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
NARSARSSUAQ
KULUSUK
CONSTABLE POINT
NUUK
Til/frá Reykjavík
Akureyri 8-12 ferðir á dag
Egilsstaðir 5-7 ferðir á dag
Ísafjörður 2-3 ferðir á dag
Vestmannaeyjar 2-3 ferðir á dag
UMHVERFISMÁL Varaformaður
Orkuveitu Reykjavíkur, Ásta
Þorleifsdóttir, segist dást að
hugsjón Saving Iceland-samtak-
anna, sem nú halda úti mótmæla-
búðum á Hellisheiði.
Hún hafi spurt félaga í samtök-
unum hvort þeim hafi ekki komið
til hugar að sækja um styrk hjá
Orkuveitunni, en fyrirtækið hefur
oft stutt umhverfisverndarsam-
tök, til að mynda Landvernd. „Það
er afar gagnlegt að fá sjónarhorn
svona samtaka fram,“ segir Ásta.
Gagnrýni sé Orkuveitunni holl.
Svar Saving Iceland var
skorinort; það kæmi ekki til mála
að þiggja fé frá fyrirtækinu. - kóþ
Varaformaður Orkuveitunnar:
Saving Iceland
hafnaði styrk
FRAKKLAND, AP Fjölmargir þjóðarleiðtogar tóku þátt
í hátíðarhöldum á þjóðhátíðardegi Frakka í París í
gær.
Auk Nicolasar Sarkozy Frakklandsforseta voru
þar bæði Bashar Assad Sýrlandsforseti og Ehud
Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sem ekki hafa
viljað hafa mikið saman að sælda til þessa, ásamt
Mahmoud Abbas, forseta Palestínustjórnar, og
Michel Sleiman, forseta Líbanons.
Fjölmargir aðrir leiðtogar Evrópusambands-
ríkja, Mið-Austurlandaríkja og Afríkuríkja tóku
einnig þátt í hátíðarhöldum á Bastilludeginum, þar
sem franski herinn efndi að venju til veglegrar
sýningar á liðstyrk sínum á breiðstrætinu Champs-
Elyseés.
Leiðtogarnir komu til Parísar á sunnudag til að
stofna bandalag Miðjarðarhafsríkja, sem stefnir að
efnahagssamvinnu og ætlar að gera landsvæði
ríkjanna gereyðingarvopnalaust.
Umdeildastur gestanna er Assad Sýrlandsfor-
seti, en Sarkozy vísaði á bug gagnrýni mannrétt-
indasamtaka og fjölmargra annarra fyrir að leyfa
honum að vera við hátíðarhöldin í gær.
Sarkozy notaði einnig daginn til þess að heiðra
Ingrid Betancourt, sem fyrr í þessum mánuði
losnaði úr gíslingu hjá FARC-skæruliðasamtökun-
um í Kólumbíu. - gb
FYLGST MEÐ FRÖNSKUM HERÞOTUM Nicolas Sarkozy Frakk-
landsforseti, Hosni Mubarak Egyptalandsforseti, Tarja Halonen
Finnlandsforseti og Bashar Assad Sýrlandsforseti á hátíðar-
höldum í París. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sarkozy Frakklandsforseti í umdeildum félagsskap á þjóðhátíð Frakka:
Tugir þjóðarleiðtoga fögnuðu
SAMGÖNGUR Yfir tuttugu umferðar-
óhöpp hafa orðið á vegunum að
Dettifossi undanfarin fimm ár. Oft-
ast var um bílveltur að ræða sam-
kvæmt upplýsingum frá Lögregl-
unni á Húsavík.
„Erlendir ferðamenn lenda oft-
ast í óhöppum þarna,“ segir Bjarni
Höskuldsson lögregluþjónn. „Oft
og tíðum er ekki ofsaakstri um að
kenna heldur vanþekkingu á
íslenskum malarvegum.“
Bjarni segir bifreiðum oft velt á
ótrúlega lítilli ferð við fossinn.
„Miðað við fjölda óhappa er ótrú-
lega lítið um slys á fólki en margir
bílar hafa farið mjög illa.“
„Flest tjón verða þegar malbik-
aður vegur breytist í malarveg,“
segir Margrét Líndal, markaðs- og
gæðastjóri hjá bílaleigunni Hertz.
Margrét segir tjónum þó hafa
fækkað milli ára og þakkar mikilli
áherslu sem lögð sé á öryggismál.
„Hver einasti ferðamaður fær nú
möppu með margs konar upplýs-
ingum um aksturinn hér á landi.
Einnig höfum við gert vel heppnað-
ar breytingar á bílaflota okkar.“
Nýr vegur að Dettifossi vestan
megin er í undirbúningi en fram-
kvæmdir gætu tafist þar sem samn-
ingar hafa enn ekki náðst við land-
eigendur á svæðinu.
„Margt bendir til þess að gera
þurfi eignarnám en það skýrist
betur á næstu vikum,“ segir Stefán
Erlendsson, lögfræðingur hjá Vega-
gerðinni. Enn er óljóst hvenær
framkvæmdir við nýja veginn geta
hafist. - ht
Erlendir ferðamenn lenda oftast í umferðaróhöppum við aksturinn að Dettifossi:
Yfir tuttugu óhöpp síðustu ár
BÍLVELTA VIÐ DETTIFOSS Nýr vegur að
Dettifossi vestan megin er í undirbún-
ingi en framkvæmdir gætu tafist þar
sem samningar við landeigendur hafa
ekki náðst.
INNFLYTJENDUR „Ég hef oft sótt um
vinnu hjá hinu opinbera og fæ allt-
af nei. Ég sendi umsókn til
Umhverfisstofnunar og þeir sögðu
mér að laganemi hefði verið ráð-
inn, en auglýst var eftir lögfræð-
ingi,“ segir Xavier Rodríguez lög-
fræðingur.
Xavier er með embættispróf í
lögfræði frá háskóla í Barcelona
og meistaragráðu í alþjóða- og
umhverfisrétti frá Háskóla
Íslands. Hann hefur sótt um störf
hjá Háskóla Íslands, umhverfis-
ráðuneytinu og Umhverfisstofnun
en aldrei verið boðaður í viðtal.
Þrjú ár eru síðan hann flutti til
landsins og hann talar mjög góða
íslensku. Í ráðningarferli
Umhverfisstofnunar var hann
ekki boðaður í viðtal.
„Ég var með meiri menntun en
hinir umsækjendurnir. Þetta lykt-
ar af fordómum. Umhverfisstofn-
un sagði í bréfi sem þeir sendu
mér að fimm hefðu sótt um og
tveir verið boðaðir í viðtal. Fyrir
mig er þetta móðgun,“ segir Xavi-
er.
Xavier starfar nú í Alþjóðahús-
inu og kennir fjölmiðlatækni við
Flensborgarskólann í Hafnarfirði.
„Ég vil koma fram með þetta svo
aðrir útlendingar fái ekki sömu
meðferð og ég,“ segir Xavier og
segist fullviss um að þetta sé
vegna þess að hann er ekki íslensk-
ur.
„Vinkona mín sem er líka erlend
lenti í þessu sama. Hún fékk alltaf
nei þrátt fyrir að vera búin að búa
á Íslandi í átta ár. Síðan kláraði
hún doktorsnám í lögfræði og fékk
loksins vinnu,“ segir Xavier.
Sigrún Valgarðsdóttir, starfs-
mannastjóri Umhverfisstofnun-
ar, segir að yfirleitt séu ekki allir
umsækjendur boðaðir í viðtöl.
Xavier hafi beðið um rökstuðn-
ing fyrir ráðningunni og í rök-
stuðningnum er að sögn Sigrúnar
ítarlega rökstutt af hverju laga-
neminn hafi verið ráðinn.
„Laganeminn er að klára og
verður ráðinn í september þegar
hann gerir það. Í bréfinu rök-
styðjum við ítarlega að hann hafi
verið hæfastur,“ segir Sigrún.
Hún segir ráðningarferlið hjá
Umhverfisstofnun vera mjög
faglegt þegar fólk er ráðið og allt
sé skoðað vel og vandlega.
„Það er alveg bókað að sjónar-
mið um uppruna hans hefur engu
ráðið varðandi ráðningarferlið,“
segir Sigrún.
vidirp@frettabladid.is
Lögfræðingur frá
Spáni fær alltaf nei
Spænskur lögfræðingur sem talar góða íslensku hefur sótt um störf hjá hinu
opinbera en alltaf verið hafnað. Umhverfisstofnun tók laganema fram yfir
hann. Starfsmannastjóri stofnunarinnar segir uppruna hans engu hafa skipt.
XAVIER RODRÍGUEZ Hann segir vinnubrögð Umhverfisstofnunar lykta af fordómum
því hann hafi verið með meiri menntun en allir aðrir umsækjendur.
KÁRAHNJÚKAR Starfsemi Umhverfis-
stofnunar er mjög viðamikil og fer eftir
tugum lagabálka og reglugerða.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ég var með meiri mennt-
un en hinir umsækjend-
urnir. Þetta lyktar af fordómum.
XAVIER RODRÍGUEZ
LÖGFRÆÐINGUR
Börkur, gefur ríkið bara skít í
ferðamál?
„Já, svo virðist sem ferðamenn séu
nýttir til uppgræðslu á náttúruperl-
um landsins.“
Börkur Hrólfsson leiðsögumaður segir
salernisaðstöðu fyrir ferðamenn ófull-
nægjandi. Þeir þurfi jafnvel að ganga
örna sinna úti í náttúrunni.
TYRKLAND, AP Á níunda tug Tyrkja
var í gær ákærður fyrir hryðju-
verkastarfsemi. Þeir eru sakaðir
um að hafa ætlað að steypa stjórn
landsins.
Í hópnum eru nokkrir fyrrver-
andi yfirmenn í hernum og einn
stjórnmálamaður úr stjórnarand-
stöðunni. Allir aðhyllast þeir hina
veraldlegu stjórnskipan landsins,
sem gerir ráð fyrir skýrum
aðskilnaði trúar og stjórnmála.
Þeir hafa gagnrýnt núverandi
stjórnvöld fyrir að vilja blanda
þessu tvennu saman.
Stjórnarandstaðan segir
ákærurnar lið í tilraun stjórn-
valda til að þagga niður í gagn-
rýnisröddum. - gb
Deilur um trú í Tyrklandi:
Tugir manna
ákærðir í gær
Pakistan styðji hryðjuverk
Afgönsk yfirvöld sendu í gær frá
sér yfirlýsingu þar sem þau saka
pakistönsku leyniþjónustuna um
aðild að árásum talíbana í Afganistan.
Pakistanar neita ásökununum.
AFGANISTAN
SKIPULAGSMÁL Nágrannar
Þorsteins Jónssonar, forstjóra
Vífilfells, á Laufásvegi óttast
skemmdir á eignum sínum af
sprengingum vegna stækkunar
húss hans. Þetta kemur fram í
athugasemdum sem eigendur
tveggja húsa sendu skipulagsyfir-
völdum í Reykjavík þar sem
umsókn Þorsteins um stækkunina
er til afgreiðslu.
Að þessu sinni barst ekki athuga-
semd frá forsetaembættinu, sem
áður hafði vitnað til þess mats rík-
islögreglustjóra að öryggi í gesta-
húsi forsetans handan götunnar
væri teflt í hættu með fram-
kvæmdunum. Stækkunarumsókn-
inni var á sínum tíma hafnað á
þessari forsendu en sú synjun var
felld úr gildi og Þorsteinn reynir
nú aftur að fá byggingarleyfi. - gar
Stækkun húss á Laufásvegi:
Íbúar óttast
sprengingar
LAUFÁSVEGUR Gera á mikið jarðhýsi á
Laufásvegi 73.
Íbúar snúa heim
Íbúar í Kaliforníu eru farnir að snúa
aftur til síns heima eftir að rýma
þurfti stór svæði vegna skógarelda.
Hagstæð veður skilyrði hafa gert
slökkviliðsmönnum kleift að ná
tökum á eldunum, sem kviknuðu í
þrumuverðri.
BANDARÍKIN
Í lagi með hjarta Cheneys
Hinn 67 ára gamli varaforseti Banda-
ríkjanna, Dick Cheney, fór í árlega
hjartaskoðun síðastliðinn sunnudag.
Að sögn fjölmiðlafulltrúa Cheneys er
allt í lagi með hjarta hans, en hann á
langa hjartveikisögu að baki.
REYKJAVÍK Lítið hefur verið af
mávum í Reykjavík í sumar miðað
við undanfarin ár. Engar kvartanir
hafa borist Meindýravörnum
Reykjavíkurborgar vegna máva
við Tjörnina. Í fyrra voru hins
vegar skotnir milli þrjú og fjögur
hundruð mávar í borginni.
Guðmundur Björnsson,
rekstrarstjóri Meindýravarna,
segir helst bera á kvörtunum
vegna máva við veiðiár. „Líklegast
er nóg æti í sjónum þannig að
mávurinn þarf ekki að sækja
fæðið annað. Þetta er allt annað en
þegar við vorum að skjóta tíu
þúsund fugla fyrir nokkrum
árum.“ - kóp
Lítið skotið af mávum:
Fáir mávar í
Reykjavík núna
SPURNING DAGSINS