Fréttablaðið - 15.07.2008, Side 24
● fréttablaðið ● börn 15. JÚLÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR4
Að mati Hildar Kristjánsdóttur,
grunnskólakennara í Austurbæjar-
skóla, er mikilvægt að halda lestri
barna við yfir sumartímann.
„Mín reynsla sem kennari og móðir
er sú að lestrarfærni barna detti svo-
lítið niður þegar þau koma aftur í skól-
ann eftir sumarið ef lestrinum hefur
ekkert verið haldið við yfir sumar-
tímann.“
Hún bendir þó á að nauðsynlegt sé
að gefa börnunum eitthvað frí. „Lestur
á ekki að vera kvöð og mikilvægt er að
gera hann spennandi. Þegar börn eru
komin á vissan hraða í lestrinum þá er
það æfingin sem skiptir öllu máli.“
Að sögn Hildar er mikilvægt að
hætta ekki að lesa fyrir börnin þó þau
geti farið að lesa sjálf. „Það er auð-
vitað nauðsynleg þjálfun fyrir börnin
að æfa sig að lesa sjálf, en það er líka
mikilvægt að lesið sé fyrir þau aðeins
þyngri texti og hann útskýrður, því
það eykur orðaforða og skilning.“
Hildur segir sniðugt að skipta niður
köflum í bókum til að fá börnin til
að lesa meira sjálf. „Barnið les einn
kafla, svo foreldrið einn og með tím-
anum eykur maður hlut þeirra í lestr-
inum,“ útskýrir Hildur. - kka
Æfingin skapar meistarann
Hildur Kristjánsdóttir telur það mikilvægt að
börn æfi sig í lestri yfir sumarið. FRETTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Stuttar og einfaldar
bækur henta þeim yngstu
sem nýlega eru orðin læs.
Teiknimyndasögur eru vin-
sælar hjá krökkunum, en
að sögn Hildar er ekki gott
að lesa þær eingöngu.
Fantasíubækur eru vinsælar
meðal krakka og draugasögur
mikið leigðar á bókasöfnum
borgarinnar. Unglingar leigja
einnig bækur sem snúast um
félagsleg málefni.
„Nýútgefnar bækur eru alltaf vin-
sælastar,“ segir Þorbjörg Karls-
dóttir bókasafnsfræðingur í
Borgar bókasafninu í Tryggvagötu,
þegar hún er spurð um hvers konar
bækur séu eftirsóttastar meðal
yngstu safngestanna. Ingibjörg
Ösp Óttarsdóttir, bókavörður í úti-
búinu í Gerðubergi tekur undir það
en bætir því við að misjafnt sé eftir
aldurshópum hvers konar bækur
verða fyrir valinu. „Eldri krakk-
arnir spyrja helst um einhverja
ákveðna bók. Hjá yngri krökkun-
um fer valið meira eftir foreldrun-
um, hvað þeir höfðu sjálfir gaman
að í æsku,“ segir Ingibjörg.
Varla kemur á óvart að margir
leigi sér nýjustu Harry Potter-bók-
ina um dauðadjásnið en Þorbjörg
segir yngri krakkanna byrjaða á
fyrstu bókunum. „Svo eru drauga-
sögurnar alltaf vinsælar. Til dæmis
norræna smásögubókin Draugur-
inn sem hló,“ segir hún og bætir
því við krakkarnir elski spennu-
sögur. Fantasíubækur eru afskap-
lega mikið teknar núna, jafnvel
enn meira en áður og telur Ingi-
björg kvikmyndir hafa þar nokkuð
að segja. „Krakkar eru til dæmis
mikið að lesa Narníu-bækurnar svo
sem Ljónið, nornin og skápurinn,
aftur enda hafa samnefndar mynd-
ir verið sýndar í kvikmyndahúsum
síðustu ár.“
Athygli vekur að tvær nýjar
bækur sem báðar fjalla um ungl-
inga og samkynhneigð njóta mik-
illa vinsælda. Önnur þeirra nefnist
Strákarnir með strípurnar og hin
heitir Kossar og ólífur. „Krökkum
finnst voða gaman að lesa bækur
um lífið eins og það er. Einnig er
verðlaunabókin Loforðið eftir
Hrund Þórsdóttur mikið lesin en
hún fjallar einmitt um ákveðna
lífsreynslu,“ segir Þorbjörg. - mþþ
Fantasíur og draugasögur
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir er bóka-
vörður í Gerðubergssafni.
„Stelpurnar eru mikið fyrir
alls konar prinsessubækur,“
segir Ingibjörg.
Þorbjörg Karlsdóttir er bókasafnsfræð-
ingur í aðalsafni Borgarbókasafnsins.
Loforðið eftir Hrund Þórs-
dóttur var kosin vinsælasta
bók síðasta árs af börnum.
Þessi vinsæla bók fjallar um
unglinga og samkynhneigð.
Ungu krakkarnir eru
nú að byrja á Harry
Potter-bókunum.
Sænska fyrirtækið Elodie Details hannar töff fylgihluti fyrir börn.
Gengið er út frá þeirri hugmyndafræði að þó menn og konur verði að
foreldrum minnki ekki áhuginn á flottri hönnun sé hann yfir höfuð
fyrir hendi. Mikið hefur hingað til verið lagt upp úr barnafatahönnun,
barnavagnahönnun, hönnun burðarpoka og barnarúma en Elodie
Details leggur áherslu á fylgihluti.
Þau þrjú ár sem fyrirtækið hefur starfað hefur það reynt að glæða
þá hluti sem yfirleitt fylgja litlum krílum skemmtilegu lífi. Þetta eru
til dæmis snuð, snudduhaldarar, pelar, stútkönnur, smekkir, teppi og
svefnpokar. Sumir hlutirnir láta barninu í té ákveðna afstöðu og geta
þau til dæmis boðað frið með friðardúfusnuði. Aðrir hlutir skarta
myndum af fjögurralaufa smárum eða eru gull- og silfurslegnir.
Hauskúpur þekja suma hlutina og henta sérstaklega hörðum nöglum
ásamt hinum ýmsu hlutum í felulitum.
Hlutina má nálgast í gegnum vefverslun á slóðinni www.elodie-
details.com en þeir fást einnig í Hnokkum og hnátum á Skólavörðu-
stíg og Baby Sam svo dæmi séu tekin. - ve
Fyrir litla töffara
Felulita-
pelar.
Baby Love heitir þessi
dudda.
Happa-
smekkur.
Hægt er að fá
snudduhaldara í
stíl við snuðin.
Snuð í felulitunum er
óneitanlega töff.
Fyrir stelpur sem eru
harðar af sér.
Ekkert minna en
gull dugar fyrir
þessa dömu.
Útsala
Allt a 60%
af barna - og ullarfatnai!
Þumalína ehf, Skólavörðustígur 41, 101 Reykjavík, 551 2136
http://www.thumalina.is