Fréttablaðið - 15.07.2008, Page 36
20 15. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Hraðinn drepur. Gefðu
þér tíma. Á fleygiferð
inn í eilífðina? Leggðu
þig í fimmtán mínút-
ur. Fyrirgefðu ég sá
þig ekki. Hvað ætli við
höfum séð margar
„sjokkerandi“ aug-
lýsingar á seinustu
árum? Og ekki bara
frá Umferðarstofu og
tryggingafélögunum heldur frá
vínbúðunum og ég veit ekki
hverjum. Á undan hverri bíómynd
sem sýnd er í kvikmyndahúsum er
heil romsa af auglýsingum sem
eiga að telja mann af því að láta
eins og fífl. Eins og það sé engan
veginn sjálfsagt að fólk hafi
grundvallarþekkingu og -færni í
mannlegum samskiptum. Auðvitað
er þörf á því að minna fólk á að
keyra varlega en virka þessar
auglýsingar? Í fyrsta skipti sem
maður sér hverja þeirra, þá slær
hún mann aðeins. Í hundruð skipta
þar á eftir geispar maður og snýr
sér að öðru.
Subbulegri herferð var rekin
gegn reykingum um árið, þar sem
kransæðar voru kreistar og lungu
skoðuð í smásjá. Þegar þessar
auglýsingar birtust á skjánum
mátti telja upp að þremur áður en
mamma mín kveikti sér í. „Til að
komast yfir sjokkið, þetta var svo
ógeðslegt.“ Þær auglýsingar höfðu
sem sagt þveröfug áhrif á hana.
Ég veit ekki hvernig það er með
ökuþórana. Er það ekki bara eins
og með reykingarnar? Það hugsa
allir: Þetta kemur ekki fyrir mig.
Umbúðalaus áróður væri líklegast
ekkert betri: Ef þú ert ekki í belti
þá drepstu fíflið þitt. Djöfull ertu
með lítið undir þér ef þú þarft að
keyra Sæbrautina á 120 km/klst.
Ef þú ert með svona mikla sjálfs-
eyðingarhvöt af hverju stútarðu
þér þá ekki bara? Ertu fáviti?
Það eiga allir með bílpróf að
þekkja lögin. Það eiga allir að vita
að brennivín er varasamt. En eins
og margir telur Umferðastofa
gamla máltækið satt. Það hefur
enginn tapað peningum á að van-
meta gáfur almennings. Það versta
við það er að þau hafa rétt fyrir
sér. Þeim sem látast í bílslysum
fækkar ár frá ári.
STUÐ MILLI STRÍÐA Að gera ráð fyrir að fólk sé fífl
KOLBRÚN BJÖRT SIGFÚSDÓTTIR VELTIR FYRIR SÉR HVORT ALMENNINGUR ÞURFI FORSJÁ FYRIRTÆKJA
Ég var að fá
mér nafnspjald
og útdeili þeim
hægri vinstri!
Alveg eins
og asni!
Jói! Þinn
maður í tónlist
og mynda-
sögum! Áttu
nafnspjald?
Ég skil þig
Baddi!
Þetta er satt!
Það ættu allir
að vera með
nafnspjald!
Til dæmis
leigumorð-
ingjar! Hvar
finnurðu
leigumorð-
ingja þegar þig
vantar slíkan?
Ragnar „undir grænni torfu“
leigumorðingi! Allt sem þig
vantar!
Hringdu í 555-555
og fáðu gott tilboð!
Þetta er
eitthvað
fyrir mig!
Af hverju viltu ekki segja mér
hvernig það kom gat á vegginn
á baðherberginu
þínu? Af því að þá
muntu álíta að
ég sé hálfviti.
Palli, ég er
mamma
þín! Ég mun
aldrei sjá þig
sem hálfvita!
Ég var
að drepa
flugur með
kjöthamrin-
um þínum.
Spaða, eða
kannski
sleif...
Sjáðu bara!
Ég vissi það!
Mannætumatstofan
Að sjá þig nú... Allur blautur og rotinn!
Hver hlær nú?
Hvað er
þetta?
Ég var að kenna
Söru leik. Ég ætlaði að sýna henni að tívolí-leikir eru fyrir vitleysinga, en...
Júhú!
Ég
rústaði
þessu!
Vel
gert.
... það gekk
ekki betur en
svona.
Réttur
dagsins
Borðaðu
þann sem
þú vilt fyrir
1.000 krón
ur.
krónum lagið
Frá
Fylltu á iPodinn · Farsímann · Tölvuna
Fyll'ann takk!
Á Tónlist.is getur þú nálgast yfir 50.000
lög og fyllt spilarann þinn af
topptónlist. Allt efni á Tónlist.is er ólæst
(DRM laust) og kostar frá 79 krónum
lagið. Þannig getur þú fært tónlistina
hindrunarlaust á milli tölvunnar,
spilarans og farsímans.
Nýtt á Tónlist.is
- lögin beint inn í iTunes á tölvunni!
Nú getur þú tengt Tónlist.is beint við
iTunes eða Windows Media Player.
Öll lög sem þú kaupir fara sjálfvirkt yfir í
spilarann þinn.
Vertu tilbúinn
í sumarfríið!
iPod og iTunes eru vörum
erki í eigu Apple, Inc.