Fréttablaðið - 15.07.2008, Qupperneq 46
30 15. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
„Það bara fer ágætlega saman,“
segir Elías Ingi Árnason útvarps-
og knattspyrnumaður. Elías
starfar á FM957 um helgar en
spilar fótbolta með ÍR í 2. deild.
Elías er næstmarkahæstur í
deildinni með níu mörk í tíu
leikjum. „Þeir eru skilningsríkir
hvor um sig, yfirmaðurinn og
þjálfarinn,“ segir Elías, sem
kallaður er Elli. Hann sprakk
fyrst út sem leikmaður síðastlið-
ið sumar undir stjórn Ásgeirs
heitins Elíassonar og skoraði ell-
efu mörk og lagði upp önnur ell-
efu. Í haust voru fjölmörg lið í
Landsbankadeildinni og 1. deild
á eftir Ella en hann vildi sanna
sig betur áður en hann tæki
næsta skref. „Ég vildi sanna mig
fyrir sjálfum mér einna helst,“
segir Elli.
Elli kann þó skýringar á því
hvers vegna honum fór að ganga
svo vel í fyrrasumar. „Ég byrj-
aði á föstu og þá fór mér að
ganga svona vel. Ég sé eftir því
að hafa ekki fundið þessa stelpu
þegar ég var átján ára,“ segir
Elli en hann og kærasta hans,
Thelma Ýr Tómasdóttir, eiga von
á barni í byrjun janúar.
Skemmtana- og glamúrlíf
útvarpsmannsins er eitthvað
sem Elli stundar lítið. Það er
liðin sú tíð er hann starfaði á
Kissfm og gekk undir nafninu
Partí-Elli. Hann segir raunar að
starfsmenn FM957 séu miklir
reglumenn upp til hópa. Á daginn
starfar Elli hjá fyrirtækinu
Nordic Sea við að keyra út vörur.
„Það er alveg frábær vinna með
fótboltanum. Ég vinn frá sjö til
þrjú svo ég get hvílt mig vel
fram að æfingu,“ segir marka-
skorarinn og útvarpsmaðurinn
Elías Ingi Árnason. - shs
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. örverpi, 6. eftir hádegi, 8. örn, 9.
skora, 11. samanburðartenging, 12.
helgitákn, 14. beikon, 16. ætíð, 17.
mánuður, 18. utan, 20. átt, 21. hávaði.
LÓÐRÉTT
1. starf, 3. guð, 4. fjölmiðlar, 5. málm-
ur, 7. örmjór, 10. eldsneyti, 13. er, 15.
ávöxtur, 16. arr, 19. ung.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. urpt, 6. eh, 8. ari, 9. rák,
11. en, 12. kross, 14. flesk, 16. sí, 17.
maí, 18. inn, 20. nv, 21. gnýr.
LÓÐRÉTT: 1. verk, 3. ra, 4. pressan,
5. tin, 7. hárfínn, 10. kol, 13. sem, 15.
kíví, 16. sig, 19. ný.
„Humarinn á veitingahúsinu
Við Tjörnina er rosalega góður,
annars er það bara kjörbúðin
svona dags daglega.“
Daníel Ágúst Haraldsson tónlistarmaður.
VEISTU SVARIÐ
1. 194 milljarðar.
2. Bandalag Miðjarðarhafsríkja.
3. Í Frakklandi.
Þröstur Jónsson, fyrrum bassa-
leikari hljómsveitarinnar Mínuss,
er sem kunnugt er kominn á sjó
og stundar nú sjómennskuna af
lífi og sál á togaranum Barða NK
120. Þessa dagana er hann þó í fríi
og er kominn norður á land í hey-
skap. Þröstur ber sjómennskunni
vel söguna en þetta er ekki í
fyrsta sinn sem hann fer á sjó.
„Það er eðall að vera á sjó og ég
var alltaf á sjónum þegar ég var
yngri. Svo eru þetta allt snillingar
og þungarokkarar sem eru á tog-
aranum með mér.“
Þröstur segist þó ekki vera
alfarið hættur í tónlistinni og seg-
ist oft grípa til gítarsins á sjón-
um. „Ég er bara í pásu frá tónlist-
inni, á meðan er maður loks farinn
að taka alvöru túra.“ Þröstur
segist ætla að vera áfram á sjón-
um í einhvern tíma og segist vera
best geymdur þar. „Það er best að
vera á sjónum einmitt núna þegar
krónan er í rugli því maður fær
svo mikið fyrir aflann. Þannig að
ég held mig við sjómennskuna í
bili.“
Togarinn Barði NK 120 er gerð-
ur út frá Neskaupstað þar sem
þungarokkshátíðin Eistnaflug var
haldin um helgina. Þröstur segist
hafa verið á hátíðinni fyrri dag-
inn ásamt hinum skipverjum
Barða og segir hátíðina hafa verið
magnaða. „Þetta var magnað, ég
mæli með því að allir mæti næsta
ár. Allavega allir alvöru þunga-
rokkarar.“
Von er á Þresti í bæinn bráð-
lega en að eigin sögn er hann
orðinn helmassaður og tannaður
af útiverunni og sjómennskunni.
Þegar hann er spurður hvort hann
hafi áhuga á að ganga til liðs við
hina helmössuðu og tönnuðu með-
limi Merzedes Club að sjómennsk-
unni lokinni segist hann ekki hafa
áhuga á því þrátt fyrir að vera
mikill aðdáandi hljómsveitarinn-
ar. Annars ber það hæst í þessum
mánuði hjá Þresti að hann mun
halda upp á þrítugsafmæli sitt í
lok mánaðarins og stefnir á að
fagna því í Kaupmannahöfn með
vini sínum, útvarpsmanninum
Andra Frey Viðarssyni. Eiga þá
Danir von á illu í lok júlí? „Nei, ég
er mjög stilltur og drekk ekki
nema einstaka rauðvínsglas með
góðum mat,“ segir Bassafantur-
inn að lokum. sara@frettabladid.is
ÞRÖSTUR JÓNSSON: FÍNT AÐ VERA Á SJÓNUM Í KREPPUNNI
Bassafanturinn í heyskap
FANTURINN HVÍLIR BASSANN Þröstur Jónsson, fyrrum basaleikari í Mínus, sækir nú sjó fyrir austan. Hann fagnar þrítugsafmæli
sínu síðar í mánuðinum en segist ekki munu halda upp á afmælið með látum. Hann drekki enda ekki nema einstaka rauðvíns-
glas með góðum mat.
„Þetta kom mér algerlega í opna
skjöldu. Ég átti ekki von á neinu,“
segir Lýður Ægisson, tónlistar-
maður og fyrrverandi skipstjóri,
sem á dögunum varð sextugur. Í
viðtali við Fréttablaðið sem birtist
á afmælisdegi Lýðs hinn 3. júlí
sagðist hann ekki ætla að blása til
veisluhalda. Annað kom á daginn
því fjórir synir hans og fóstur-
dóttir hans blésu til óvæntrar
veislu í Sandgerði. „Vinur minn
bauð mér bara á rúntinn til þess að
gera eitthvað og við enduðum
suður í Sandgerði,“ segir Lýður en
þar biðu hans ættingjar og sam-
ferðamenn. „Þetta voru gamlir
gaurar af sjónum. Til dæmis frá-
farandi bæjarstjóri Grindavíkur,
Ólafur Örn Ólafsson, hann byrjaði
hjá mér 16 ára gamall á sjónum
austur á Hornafirði.“ Einnig mætti
móðir Lýðs ásamt bróður hans,
Séra Sigurði Ægissyni, presti á
Siglufirði en þau komu keyrandi
þaðan. Gylfi Ægisson, bróðir Lýðs,
lét sig heldur ekki vanta og söng
með sonum Lýðs. „Þetta stóð langt
fram eftir kvöldi. Matur og flott-
heit en ekkert vín. Enda er ég
búinn að vera edrú í 32 ár. Svo það
ætti að vera runnið af mér,“ segir
hinn sextugi Lýður Ægisson.
- shs
Fékk óvænta afmælisveislu
LÝÐUR ÆGISSON Fékk óvænta afmælis-
veislu í Sandgerði sem fjórir synir hans
og fósturdóttir höfðu skipulagt á laun í
fjóra mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
MARKASKORARI Elías Ingi skorar
grimmt með ÍR og starfar einnig
sem útvarpsmaður á FM957.
Byrjaði að skora þegar ég kynntist kærustunni
Skessuhorn greindi í síðustu viku
frá auðmönnum sem fóru með
þyrlu úr Kjarrá til að fá sér pylsu
í Hyrnunni í Borgarnesi. Fylgdi
sögunni að fyrirhyggjan hefði ekki
verið meiri en svo að þeir mættu
veskislausir í Hyrnuna og þurftu
að fá lánað fyrir snæðingnum.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins var hér um að ræða
Bakkavararbræðurna Lýð og Ágúst
Guðmundssyni og menn tengda
Existu og Bakkavör.
Þeir bræður komust líka í fréttirnar
á síðasta ári þegar þeir voru við
veiðar í Kjarrá. Þá bókuðu þeir
Pétur Örn Guðmundsson og
tvo aðra meðlimi hljóm-
sveitarinnar Dúndur-
frétta til að spila fyrir
sig í veiðihúsinu.
Fengu tónlistar-
mennirnir allt að 150
þúsund krónur á
mann fyrir að mæta
og spila óskalög fyrir
auðmennina. Vinsæl-
ustu lögin voru Nína
og Álfheiður Björk,
en þau voru spiluð þrisvar hvort
og hefðu fengið að hljóma oftar
hefðu tónlistarmennirnir ekki tekið
í taumana.
Það vakti athygli viðskiptavina
Skífunnar í byrjun síðustu viku að
ný plata Bubba Morthens, Fjórir
naglar, var ekki fáanleg í verslun-
inni. Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var þetta vegna deilna
Skífunnar og Senu, sem gefur
Bubba út, en síðarnefnda fyrirtækið
var á sama tíma með útsölumarkað
í Laugardalshöll. Vildu Skífumenn
meina að ósanngjarnt væri að
plata Bubba væri á útsöluverði á
markaði Senu á meðan
þeir þyrftu að selja hana
fullu verði. Þessi deila
var leyst fljótt og vel
og plata Bubba var
aftur til sölu hjá
Skífunni einum eða
tveim dögum síðar.
- hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI