Fréttablaðið - 24.07.2008, Page 49

Fréttablaðið - 24.07.2008, Page 49
FIMMTUDAGUR 24. júlí 2008 29 Tré júlímánaðar er silfurreynir eða sorbus inter- media. Hann er í garði við Skólavörðustíg 4b en húsið sem silfurreynirinn stendur upp við var byggt árið 1901. Þar var lengi Hannyrðaverslun- in Baldursbrá en núverandi eigendur eru Hann- es Lárusson og Kristín Magnúsdóttir. Eyjólfur Eyfells listmálari og Ingibjörg kona hans gróðursettu silfurreyninn um 1920 en þau eignuðust húsið árið 1919 og bjuggu í því til dauðadags. Tréð hefur vaxið og dafnað vel síðan og mælist nú 11 metra hátt og er ummál 1,52 metrar í 1,20 metra hæð. Tréð var gróðursett býsna nærri húsinu og vex upp með gafli þess og hefur á seinni árum fikrað sig inn yfir þakið. Hér er því um að ræða skemmtilega sambúð, eða allt að því samvöxt, trés og húss. Króna tré- sins er umfangsmikil og setur það mikinn svip á garðinn og nágrenni hans. Schierbeck landlæknir var mikill áhrifamað- ur og frumkvöðull í garðyrkju og flutti silfurreyni fyrst til landsins frá Danmörku á síðari hluta þar- síðustu aldar. Talið er að elsta tré borgarinnar sé silfurreynirinn í Aðalstræti sem gróðursettur var árið 1884. Silfurreynir er talinn þola loftmengun í borgum betur en flestar aðrar trjátegundir og er hann því vinsæll sem götutré erlendis. Silfur- reynir getur orðið um 200 ára gamall og á tréð við Skólavörðustíg 4b samkvæmt því eftir að lifa og dafna vel næstu hundrað árin. Ábending um silfurreyninn kom frá Ásu Hauksdóttur sem býr í næsta nágrenni. Skógræktarfélag Reykjavíkur óskar eftir ábendingum um Tré mánaðarins og má senda þær á netfangið tre@heidmork.is. TRÉ MÁNAÐARINS: SILFURREYNIR VIÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍG 4B Skemmtileg sambúð trés og húss „Ég er ánægður með nafnið mitt. Það eru ekki mjög margir sem deila því með mér sem er bara ennþá skemmtilegra,“ segir Bryngeir Bryn- geirsson starfsmaður á smíðavellinum við Foldaskóla. Hann kveðst heita eftir ömmu föður síns sem hét Bryngerður og var frá Sölvholti í Flóa. „Faðir minn hét reyndar Bryngeir líka en ég var ekki skírður í höfuðið á honum heldur langömmu,“ tekur hann fram og bætir við. „Bróðir afa míns hét Magnús Bryngeir svo þetta er þekkt nafn í ætt- inni.“ Þó nafnið hans Bryngeirs minni á vopn og verjur kveðst hann enginn bardagamaður vera og kannast ekki við að nafnið hafi nýst honum í strákaleikjunum. „Margir sem ég hef hitt muna samt eftir nafninu mínu, segir hann. „Því er yfirleitt nóg að segja „Halló, þetta er Bryn- geir,“ þegar ég hringi í þá og þeir kannast strax við mig. Sumir sem ég hitti segja mér frá því ef þeir þekkja annan með sama nafni og ein vinkona mín þekkir okkur tvo. Það er visst afrek.“ - gun NAFNIÐ MITT: BRYNGEIR BRYNGEIRSSON Nafnið er þekkt í ættinni BRYNGEIR SEGIR EKKI MJÖG MARGA DEILA MEÐ HONUM NAFN- INU OG FINNST ÞAÐ BARA BETRA. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN. TRÉ JÚLÍMÁNAÐAR SILFURREYNIR Skógræktarfélag Reykjavíkur skóla- vörðustígur. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar Brynhildar Jónsdóttur garðyrkjukonu, Hveragerði. Björk Snorradóttir Steingrímur E. Snorrason Snorri P. Snorrason Kristján Snorrason Elskulegi bróðir okkar, Tommy Vinther húsasmíðameistari, búsettur í Esbjerg í Danmörku, lést fimmtudaginn 17. júlí. Útförin fer fram í Þórshöfn í Færeyjum sunnudaginn 27. júlí. Fyrir hönd vandamanna á Íslandi Lilja Þorsteinsdóttir Sigurður Þ. Þorsteinsson Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs eigin- manns míns, föður, tengdaföður og afa, Jóns Sigurgrímssonar frá Holti, Seftjörn 12, Selfossi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Ljósheima fyrir þeirra frábæru umönnun og hlýju. Jóna Ásmundsdóttir Unnur Jónsdóttir Guðmundur S. Halldórsson Ásmundur Jónsson Ufuoma Overo Guðlín K. Jónsdóttir Ingveldur B. Jónsdóttir Ingibjörg Jónsdóttir Ólafur Unnarsson Sigurgrímur Jónsson og barnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, afa og langafa, Jóhannesar Þorbergs Kristinssonar Víðihvammi 15, Kópavogi. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinga Karitas og starfsfólks deildar 11E á Landspítala við Hringbraut fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Anna Jóhannsdóttir Jóhann Þ. Jóhannesson Svanhildur I. Jóhannesdóttir Guðmundur G. Kristinsson Kristinn Jóhannesson Guðrún F. Guðmundsdóttir Ólafur Jóhannesson Ingibjörg G. Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Oddur Guðjón Örnólfsson Hlíf II, Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 26. júlí kl. 14.00. Kristín Guðrún Jónsdóttir Þórhildur Oddsdóttir Jónatan Hermannsson Margrét Oddsdóttir Ólafur G. Jónsson Örnólfur Oddsson Védís Ármannsdóttir Jón Halldór Oddsson Martha Ernstdóttir Gunnar Oddsson Sólveig Guðnadóttir Bára Elíasdóttir Óskar Ármannsson barnabörn og barnabarnabarn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Þráins Pálssonar Heiðarbrún 67, Hveragerði. Guð blessi ykkur öll. Auður Aðalsteinsdóttir Andrea Margrét Þráinsdóttir Guðjón Sigurðsson Aðalsteinn Dagsson Selma D. Ásmundsdóttir Ómar Geirsson Aksonesuda Sangmee Emma Geirsdóttir Kristján V. Júlíusson og afabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Guðbjartur Pálsson Hagamel 36, Reykjavík, lést að morgni mánudagsins 21. júlí á Gentofte Hospital, Kaupmannahöfn. Níta Helene Pálsson Helena Guðbjartsdóttir Pálsson Sigurður Ingi Bjarnason Kristína Guðbjartsdóttir Pálsson Atli Már Bjarnason Davíð Ólafsson Nadía Lind Atladóttir Aron Már Atlason Níta María Arnardóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, Inga Ásgrímsdóttir (Inga á Borg) Hraunbæ 103, Reykjavík, sem lést 16. júlí á Landspítalanum Fossvogi verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 25. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gigtarfélag Íslands. Páll Pálsson Hafdís Halldórsdóttir Ásgrímur Gunnar Pálsson Helga Tryggvadóttir Arndís Pálsdóttir Rafn Árnason Auðunn Pálsson Anna Baldvina Jóhannsdóttir Björgvin Rúnar Pálsson Fríður Reynisdóttir Karl Ásgrímsson Oddbjörg Júlíusdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur faðir okkar, sonur, bróðir, mágur og frændi, Ingvar Unnarsson Bjergegade 65, Fredericia, Danmörku, varð bráðkvaddur á heimili sínu 29. júní síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Richard Ingvarsson Anna Aurora Ingvarsdóttir Unnar Stefán Olsen Sigríður Erla Jónsdóttir Jón Bergmann Unnarsson Guðný Friðþjófsdóttir Indíana Unnarsdóttir Sigurður Már Gunnarsson systkinabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ríkey Sigurbjörnsdóttir Langhúsum, Fljótum, lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 12. júlí. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 26. júlí kl. 13.00. Jarðsett verður að Barði í Fljótum. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Rakelar Pálmadóttur nr. 0310-13-703015, kt. 561179-0189. Þorleifur Þorláksson Sigurbjörn Þorleifsson Bryndís Alfreðsdóttir Guðný Ó. Þorleifsdóttir Elías Æ. Þorvaldsson Jóhanna Þorleifsdóttir Hallgrímur S. Vilhelmsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri faðir, Haraldur Guðjón Guðmundsson Rósarima 2, Reykjavík, lést sunnudaginn 20. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 28. júlí kl. 15.00. Hólmfríður Kristín Haraldsdóttir Böðvar Haraldsson Barði Haraldsson og aðrir ástvinir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.