Fréttablaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 FÖSTUDAGUR 25. júlí 2008 — 201. tölublað — 8. árgangur HEIMILI HELGIN HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Skellir oft í kúff Ásta Árnadóttir knattspyrnu-stelpa þess albúin að hella sér í baksturinn. LÚXUS Í FELLIHÝSIMatur sem búinn er til á ferðalagi með fellihýsi þarf ekki að vera síðri en sá sem gerður er heima, en fellihýsin bjóða upp á íburðarmeiri matargerð en tjöldin gera. MATUR 2 DISKÓ Á HÚSAVÍKDiskóbandið The Hefners var stofnað sérstaklega fyrir Mærudaga á Húsavík árið 2005 og er orðinn árlegur viðburðir að hljómsveitin spili fyrir bæjarbúa og gesti.HELGIN 3 FRÉTTAB LAÐ IÐ /STEFÁN 6.490 kr. 4ra rétta tilboðog nýr A la Carte · Léttreiktur lax með granateplum og wasabi sósu · · Humarsúpa, rjómalöguð með grilluðum humarhölum · · Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·· Banana- og súkkulaðifrauð með vanillusósu · Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf! Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 9.990 kr. Côte Rôtie „La Mouline“ 2003 | Rhône, FrakklandOpus One 1995 | Napa Valley, Bandaríkin NÝTT! Glas af eðalvíni Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja sér glas af 19 eðalvínum með mat. Verð frá 890-8.900 kr. Sjá VEÐRIÐ Í DAG ÁSTA ÁRNADÓTTIR Skellir í skúffuköku ef gesti ber að garði • matur • helgin Í MIÐJU BLAÐSINS ÞJÓÐHÁTÍÐAR-KÓNGURINNHreimur í Landi og sonum syngur Þjóðhátíðar-lagið í fjórða sinn FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS HÁMENNTAÐAR Í BOLTANUMFótboltastelpur mennta sig og ná hámarksárangri FÖSTUDAGUR RÚV ÞJÓÐAREIGN Í ÞÍNA ÞÁGU 15 20 20 1618 22 20 MIKIL HLÝINDI Í dag verða aust- an eða norðaustan 5-10 m/s en allt að 15 m/s við suðurströndina. Bjartviðri nyrðra en dálítil rigning syðra einkum þegar líður á daginn. Hiti 13-22 stig, hlýjast til landsins. VEÐUR 4 ENGILBERT JENSEN Dýrari en Bó Kippir sér ekki upp við að verða afi FÓLK 38 Sögulegar kartöflur Halldóra Hafsteinsdóttir heldur kartöflusúpudag- inn hátíðlega í Þykkva- bænum. Í ár er ár kartöflunnar samkvæmt SÞ. TÍMAMÓT 24 VIRKJANIR Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir alveg ljóst að Bitruvirkjun hafi verið slegin af. Þetta stangast á við orð Kjartans Magnússonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur, í Frétta- blaðinu í gær, en þá sagði hann: „Ekki hefur verið hætt við Bitru- virkjun heldur undirbúningi hætt meðan málið er skoðað betur.“ Ólafur F. segir vangaveltur um annað en að virkjunin hafi verið slegin af óþarfar á meðan F-listi og Sjálfstæðisflokkur séu við völd. „Ákvörðunin er í samræmi við þær grænu áherslur sem kveðið er á um í málefnasamningi meirihlut- ans,“ segir Ólafur F. Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita Sjálfstæð- isflokksins, finnst orð Kjartans ekki þarfnast sérstakrar útskýringar. „Afstaða allra í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, meirihluta og minni- hluta liggur fyrir,“ segir Hanna Birna. „Miðað við afstöðu núver- andi borgarstjórnar er ólíklegt að sú afstaða breytist á þessu kjör- tímabili. Það útilokar hins vegar auðvitað ekki, eins og Kjartan segir, að sá virkjanakostur verði skoðað- ur síðar.“ Kjartan segist hafa rætt við borg- arstjóra eftir að ummæli hans birt- ust á forsíðu Fréttablaðsins. „Að sjálfsögðu virði ég skoðun borgarstjóra í þessu máli en enginn þarf að velkjast í vafa um skoðanir hans í umhverfismálum og að hann hefur ætíð verið samkvæmur sjálf- um sér í þeim efnum,“ segir Kjart- an. Í maí ákvað stjórn OR að hætta undirbúningsvinnu vegna Bitru- virkjunar. „Þrátt fyrir þessa ákvörð- un er umræddur virkjunarkostur fyrir hendi,“ segir Kjartan. „Ekki er útilokað að það verði skoðað öðru hverju hvort hann sé raunhæfur eða ekki ásamt ýmsum öðrum kost- um þótt það verði ekki á kjörtíma- bilinu.“ Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn gagnrýna málflutning meirihlutans harðlega. - ht/vsp / sjá síðu 4 Ólafur F. segir víst hætt við Bitruvirkjun Borgarstjóri segir ljóst að Bitruvirkjun hafi verið slegin af. Stjórnarformaður Orkuveitunnar ræddi við borgarstjóra í gær og segist virða hans skoðun. FÓLK Undanfarna daga hafa farið fram tökur á auglýsingu fyrir Den Tyne-tyggigúmmí hér á landi. Íslenskir atvinnu- og áhugaleikar- ar hafa látið ljós sitt skína vítt og breitt um landið. Þeirra á meðal eru Stefán Hallur Stefánsson, Þor- valdur Davíð Kristjánsson og Friðrik Friðriksson. Tökur hófust á miðvikudags- kvöldið og héldu áfram í gær. Í dag mun hópur fólks halda til Víkur í Mýrdal þar sem tekið verður upp í fjörunni en einnig er stefnt að því að fara upp á jökul og taka upp. Auglýsingarnar verða sýndar í Púertó Ríkó, Kanada og í Bandaríkjunum. -shs/ sjá síðu 38 Auglýsing tekin upp á Íslandi: Íslendingar aug- lýsa tyggjó BLÁSIÐ TIL KNATTSPYRNUVEISLU Alþjóðlega knattspyrnuhátíðin Rey Cup hófst í sjöunda sinn í gær með skrúðgöngu, og stendur alla helgina. Alls taka 77 lið frá sex löndum þátt, þar á meðal Charlton Athletics og Hansa Rostock. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Kraftmeiri en Nylon Fimmtán ára stúlkur spila popprokk í hljómsveit- inni Kára?. FÓLK 30 LANDBÚNAÐUR Rúmlega eitt og hálft ár er nú síðan Guðmundur Ólafsson á Hrólfsstöðum varð eini refabóndinn á Íslandi. Loðdýrabú á Íslandi urðu flest um tvö hund- ruð og fjörutíu talsins í lok níunda áratugarins og var meirihluti þeirra refabú. Síðan hefur fækkað mjög í hópi refabænda. Engu að síður er gott hljóð í Guðmundi. „Þetta leggst vel í mig,“ segir hann. „[Horfurnar] eru nokkuð góðar. Það varð verð- fall á mörkuðum en það er að lag- ast. Gengið hjálpar okkur líka.“ Guðmundur rekur fyrirtækið Bláfeld ehf. og er með bú á Hrólfs- stöðum í Fljótsdalshéraði. Hann er með um fjögur hundruð refi. Skinnin selur Guðmundur til Finn- lands þar sem þau fara á uppboð og eru seld í fatnað. Guðmundur gerir ráð fyrir að starfa áfram og telur ekki að refa- búskap á Íslandi sé við það að ljúka. „Ætli okkur fari ekki að fjölga?“ spyr hann og bætir við að líklegast sé rangnefni að kalla hann „síðasta“ refabóndann. - gh Guðmundur Ólafsson, eini refabóndi Íslands, segir stöðu greinarinnar batnandi: Síðasti refabóndinn bjartsýnn KATRÍN CÝRUSDÓTTIR „Upphaflega ætlaði ég í hjáveituaðgerð“ FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Stórkostlegur sigur Það eru allir farnir að halda með stelpunum í 20 ára landsliði Íslands í handbolta á HM. ÍÞRÓTTIR 34 Enn rembist Framsókn „Framsóknarflokkurinn er afskap- lega einn og einmana í gagnrýni á tímabundna ráðningu Trygga Þórs Herbertssonar í starf efnahagsráð- gjafa í forsætisráðuneytið.“ UMRÆÐAN 20 MATUR Á ferðum með fellihýsi er möguleiki á mun íburðarmeiri matargerð en í tjaldferðalögum. Auðunn Sólberg Valsson mat- reiðslumeistari ferðast mikið með fellihýsi fjölskyldunnar og segir útilegumatinn engu síðri en þann sem gerður er heima. Auðunn segist reyna að undirbúa sem mest áður en lagt er af stað. „Þá þurfum við ekki að standa í mikilli eldamennsku í sjálfri ferðinni og spörum pláss í fellihýsinu. Ég reyni alltaf að vera búinn að marinera kjötið, skera það niður og setja í góð box. Ég elda líka oft einhvern rétt áður en við förum af stað og tek hann kaldan með.“ - eö / sjá allt Lúxusmatargerð í fellihýsi: Útilegumatur ekkert síðri GRILLAÐUR LAX Hægt er að undirbúa matargerðina áður en lagt er af stað til að flýta fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.