Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 6
6 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA KJÖRKASSINN ATVINNUMÁL Vinnustöðvun verður í hádeginu í dag hjá leiðbeinendum Vinnuskóla Reykjavíkur. Tilefnið er að krefjast leiðréttingu launa sinna. „Launakjörin gátu hreinlega ekki staðist þegar farið var að skoða þetta,“ segir Markús Bjarnason, einn forsprakka þrýstihóps leiðbeinenda. Leiðbeinendur á aldrinum 20-25 ára, sem eru í launaflokki 127 hjá Reykjavíkurborg fá um 150.000 krónur á mánuði. Fyrir sama starf í Hafnarfirði eru greiddar 180.000 krónur og 190.000 krónur í Kópavogi. Aðstoðarleiðbeinendur, sem oft eru undir tuttugu ára aldri, eru með um 130.000 krónur. Það er lægra en atvinnuleysisbætur, sem eru um 136.000. „Við erum ekki í þessari vinnu vegna launanna. Margir sækja í þetta til að fá reynslu þótt launin séu léleg. Þetta eru hins vegar alltof lág laun,“ segir Markús. Starfsfólk ÍTR, sem vinnur í félagsmiðstöðvum grunnskóla á veturna, sækja oft í leiðbeinenda- störf á sumrin. Þá halda þau laununum sem þau voru með um veturinn, sem eru um 30.000 krónur hærri. „Okkur hreinlega blöskraði að fólk sem vinnur nákvæmlega sömu vinnu er með svona mikið hærri laun,“ segir Markús en ein krafa leiðbein- enda er að leiðbeinendur fari í sama launaflokk og þeir sem vinna í félagsmiðstöðvum á veturna. Safnast verður saman klukkan 14 í dag fyrir utan Ráðhúsið þar sem borgarstjóra og mannauðs- stjóra Reykjavíkur verða afhentar kröfur leiðbein- enda sem og undirskriftalistar með 130 nöfnum leiðbeinenda hjá Reykjavíkurborg. Kröfurnar eru að launaflokkurinn verði sá sami og hjá leiðbeinendum í félagsmiðstöðvum og reiknist afturvirkt fyrir allt sumarið, að það fari fram starfsmat sem allra fyrst á vinnu leiðbein- enda og að leiðbeinendur fái trúnaðarmann í ráðum og nefndum Starfsmannafélags Reykjavík- urborgar. „Við viljum fá skýr svör,“ segir Markús. Ef ekki verður brugðist við kröfum þeirra munu þau halda áfram að vinna að þessu máli í vetur. „Við munum ekki ráða okkur aftur sem leiðbeinendur aftur ef þetta verður ekki leiðrétt. Þá missir Reykjavíkur- borg töluvert af reyndu fólki. Einnig munum við hvetja fólk til þess að sniðganga þessi störf,“ segir Markús. vidirp@frettabladid.is Leiðbeinendur æfir vegna lágra launa Leiðbeinendur hjá Vinnuskóla Reykjavíkur munu stöðva vinnu á hádegi í dag. Þeir vilja fá leiðréttingu launa sinna og krefjast þess að vera í hærri launa- flokki. Lægstu laun leiðbeinenda eru lægri en atvinnuleysisbætur. 1. „Við leiðbeinendur Vinnuskólans í Reykjavík krefj- umst þess að við séum sett í réttan launaflokk sem miðast við sambærileg störf hjá Reykjavíkurborg, sem er launaflokkur 139. Þá krefjumst við þess að breytingin verði gerð afturvirk fyrir að minnsta kosti þetta launaár. 2. Að það fari fram starfsmat sem allra fyrst á vinnu leiðbeinenda í Vinnuskólanum. 3. Að leiðbeinendur Vinnuskólans fái trúnaðarmann eða/og fulltrúa í ráð og nefndir Starfsmannafélags Reykjavíkur.“ KRÖFUR LEIÐBEINENDA VINNUSKÓLINN Ekki verður mikið um glaðbeitta unglinga í vinnu eftir hádegi hjá Vinnuskóla Reykjavíkur í dag því leið- beinendur munu leggja niður vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Styður þú sigurtillöguna um nýja byggingu Listaháskólans? Já 36,9% Nei 63,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Finnst þér textinn við nýtt lag Baggalúts, Þjóðhátíð ´93, ósmekklegur? Segðu þína skoðun á vísir.is LÖGREGLUMÁL Ungur maður meiddist nokkuð þegar hann féll fimm metra til jarðar við hús á Skólavörðustíg snemma í gær morgun. Maðurinn hugðist heimsækja félaga sinn, sem býr í húsinu. Hann brá á það ráð að reyna að klifra upp á svalir og komast þannig inn til vinarins. Þegar maðurinn var kominn í töluvert mikla hæð, um fimm metra, missti hann takið, skrikaði fótur og féll til jarðar. Hann slasaðist á mjöðm og ökkla við fallið. Maðurinn var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. - sh Vildi vera óboðinn gestur: Klifurköttur féll og slasaðist SKIPULAGSMÁL „Þegar litið er á inn- viði byggingarinnar og þá viðbót, sem hún færir mannlífi við Lauga- veginn, er enginn vafi á því að með henni yrði stigið stórt skref til að losa miðborgina úr núver- andi klakaböndum,“ segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra á heimasíðu sinni um vinningstil- lögu +Arkitekta að nýbyggingu Listaháskólans við Laugaveg. Hann segir miðborg Reykjavík- ur hafa frosið á tímum R-listans. „Að óreyndu hefði mátt ætla, að borgarstjóri og aðrir málsvarar blómstrandi og friðsamlegs mann- lífs í miðborginni hefðu hrópað yfir sig af fögnuði, þegar í ljós kom, að unnt yrði að hýsa listahá- skólann á þennan glæsilega hátt við Laugaveginn,“ segir Björn. Þetta hafi því miður ekki gerst. „Bitinn virðist vera of stór fyrir borgarstjóra, Torfusamtökin og aðra, sem vilja halda Laugavegin- um í núverandi mynd, hvað sem tautar og raular.“ Björn segir Laugaveginn ekki hafa fengið aðra eins lyftistöng í marga áratugi og með Listahá- skólanum gengi Laugavegurinn í endurnýjun lífdaga. Tillaga +Arkitekta gerir ráð fyrir að tvö hús við Laugaveg þurfi að víkja. „Standi valið milli þess að halda í gömlu húsin tvö, vel ég Listaháskólann í þeirri umgjörð, sem hefur verið kynnt,“ segir Björn. - ovd Dómsmálaráðherra skýtur föstum skotum að borgarstjóra Reykjavíkurborgar: Of stór biti fyrir borgarstjóra VINNINGSTILLAGAN Hús Listaháskólans við Laugaveg samkvæmt vinningstillögu +Arkitekta. SKELFING Á GÖTUM ÚTI Margir særðust þegar þeir hlúðu að þeim sem slösuðust í fyrri sprengingunni. SJÁVARÚTVEGUR „Ég sé ekki fyrir mér að hægt sé að vera með segl,“ segir Einar Sigurðsson, útgerðar- maður á Þorlákshöfn. Fréttablaðið greindi frá því í gær að Landssam- band íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, sé að kanna það hvort hagkvæmt sé að nota segl á íslensk fiskiskip til að draga úr eldsneytiskostnaði. Útgerðarmenn virðast almennt ekki bjartsýnir. „Það er nokkurn veginn af og frá að þetta geti gengið,“ segir Þor- steinn Bárðarson, útgerðarmaður á Hellissandi. „Við erum að sækja í svo breytilegum vindáttum svo það er mjög hæpið. Hins vegar ef ein- hverjar tækninýjungar koma til sögunnar gæti þetta verið mögu- legt. Ég held samt að við finnum einhverja aðra leið en þessa,“ segir Þorsteinn. LÍÚ hefur látið þýska fyrirtækið SkySails gera úttekt á þessu en samkvæmt SkySails á búnaðurinn að geta sparað eldsneytiskostnað útgerða um tíu til 35 prósent. Kostnaður við að koma þessu í 1.300 brúttórúmlesta skip getur kostað um 35 milljónir króna. „Ég held þetta sé bara rugl. Ég hef enga trú á þessu og held að þetta komi aldrei til greina því það er alltof misvinda hérna. Ég mundi alla vega ekki setja þetta á bátinn minn, það er alveg á tæru,“ segir Þorsteinn Guðbjörnsson, útgerðar- maður á Suðureyri. - vsp Útgerðarmenn ekki bjartsýnir á að notkun segla í fiskiskip sé möguleg: Segja þetta ekki geta gengið MEÐBYRINN LÍTILL Útgerðarmenn segja of misvinda á Íslandi til þess að segl geti virkað í fiskiskipunum. MYND/COPYRIGHT SKYSAILS LÖGREGLUFRÉTTIR Hópslagsmál á Mærudögum Þrír leituðu sér læknisaðstoðar vegna hópslagsmála sem brutust út á Mærudögum á Húsavík. Einn hefur verið kærður vegna slagsmálanna. Talsvert var um drykkju á hátíðinni. Þrjú innbrot í Þórshöfn Brotist var inn í þrjú fyrirtæki á Þórs- höfn um helgina, Hraðfrystistöðina, vöruafgreiðslu á svæðinu og Fána- smiðjuna. Lögregla veit hver var að verki og er rannsókn langt komin. NÁTTÚRUVERND Mótmælt var á nokkrum stöðum í Sviss og á Ítalíu í síðustu viku þar sem stuðningi og samstöðu var lýst yfir við baráttu Saving Iceland fyrir verndun íslenskrar náttúru. Fyrir utan íslenska sendiráðið í Róm, á mánudaginn í síðustu viku, voru mótmæli þar sem fordæmd var þátttaka Impregilo í virkjana- framkvæmdum á Kára hnjúkum. Einnig var mótmælt fyrir utan ræðismannaskrifstofuna í Mílanó og við höfuðstöðvar Impregilo. Á miðvikudeginum voru mótmæli fyrir utan höfuðstöðvar Alcoa í Genf. - vsp Kárahnjúkum mótmælt: Mótmæli í Sviss og á Ítalíu MÓTMÆLT Í GENF Svisslendingar sýndu Saving Iceland samstöðu og mótmæltu virkjuninni á Kárahnjúkum. TYRKLAND Hæstiréttur Tyrklands kveður upp dóm í dag hvort banna skuli stjórnarflokkinn og forsætisráðherrann fyrir að stýra þjóðinni í átt að íslam. Rétturinn hefur bannað tvo flokka síðan 1963. Stjórnarand- staðan krefst að auki þess að félagar flokksins fái ekki að vera í þingflokki næstu fimm ár. Ríkið er ekki tengt trú í Tyrklandi. Ef sitjandi stjórn hlýtur dóm verða Tyrkir að kjósa að nýju og markaðir gætu riðlast. Einnig er ófyrirséð hvaða áhrif það hefur á samband þeirra við ESB. - kbs Stjórn Tyrklands bíður dóms: Ásakaðir um að boða íslam TYRKLAND Þrettán manns létust og 70 særðust í tveimur spengingum í Istanbúl í Tyrklandi í gærkvöldi. Haft er eftir ríkisstjóra Istanbúl að um hryðjuverkaárásir sé að ræða en sprengjurnar sprungu með um 10 mínútna millibili. Var seinni sprengjan mun öflugri en sú síðari. Segja sjónarvottar marga þeirra sem hlúðu að særðum eftir fyrri sprengjuna hafa særst þegar seinni sprengjan sprakk. Sprengjunum hafði verið komið fyrir í ruslatunnum í Gungoren hverfinu. Verkafólk er fjölmennt í hverfinu auk þess sem það er vinsælt til gönguferða á heitum kvöldum. - ovd Sprengjur sprungu í Istanbúl: Þrettán manns biðu bana í árás
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.