Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.07.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 28.07.2008, Qupperneq 10
10 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR JAFNRÉTTISMÁL „Yfirmarkmið skólans er að vinna að jafnrétti kynjanna og auka frumkvæðis- rétt kvenna,“ segir Sjöfn Vil- helmsdóttir, verkefnisstjóri jafnréttisskólans. Hún segir það vera í samræmi við þúsaldar- markmið Sameinuðu þjóðanna um þróun. Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráð- herra skrifuðu undir samstarfs- yfirlýsingu þann 19. júní síðast- liðinn um stofnun jafnréttisseturs og jafnéttisskóla. „Skólinn miðast við að auka getu einstaklinga og stofnana sem koma að uppbyggingu jafn- réttismála,“ segir Sjöfn en aðal- áhersla skólans verður á þróun- arlönd og fyrrum átakasvæði. „Námið á að byggja upp jafn- réttisstarf í þróunarlöndunum. Til dæmis er stefnan sú að skól- inn fari til þróunarlanda og haldi námskeið í samstarfi við heima- menn,“ segir Sjöfn en bætir við að framtíðarmarkmiðið sé að bjóða einnig upp á námskeið fyrir íslenska aðila sem starfa við þróunarsamvinnu og friðar- uppbyggingu. Framtíðaráætlun jafnréttis- skólans er að verða hluti af háskólasamfélagi Sameinuðu Þjóðanna en það getur tekið nokkur ár að fá í gegn. Stefnt er að því að eiga náið samstarf við jarðhita- og sjávar- útvegsskóla Sameinuðu þjóðanna í Reykjavík auk Landgræðslu- skóla Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Dæmi um samstarfsverkefni við aðra skóla Sameinuðu þjóð- anna hér á landi, að sögn Sjafnar, myndu felast í rannsóknarverk- efnum um samfélagsleg áhrif virkjunar jarðhita og nýjungar í fiskveiði og sjávarútvegi með nálgun kynjafræðinnar. Sjöfn segir námsfyrirkomulag verða stutt og hagnýt námskeið frekar en formlegt nám sem lýkur með háskólagráðu. Formleg stofnun skólans verð- ur í nóvember með stórri alþjóð- legri ráðstefnu. Á sama tíma verður stofnað alþjóðlegt rann- sóknarsetur í jafnréttisfræðum og gert er ráð fyrir að skólinn verði þar til húsa. Skólinn er enn á undirbúnings- stigi og ekki búið að útfæra end- anlegt námsfyrirkomulag. vidirp@frettabladid.is Heildsöludreifing og þjónusta: Tæknivörur, Skútuvogi 12c auk viðurkenndra söluaðila um land allt M110 fæst hjá Vodafone og Símanum, ÚTIVISTARSÍMINN sem þorir og þolir Flúðasiglingin var rosaleg, allt rennblotnaði en síminn virkaði. Þekki þessi ekki neitt, Fannst þau bara svo ekta þýsk eitthvað. Skemmtilegt sjónarhorn, Nonni skal aldrei komast með tærnar þar sem ég hef hælana. Þetta var frábær ferð og kjötið ljúffengt. Sætt. Blautasta Hróarskeldu- hátíðin hingað til, að utan sem innan. 30 mínútum áður en sá stóri tók. Nenni þessu varla aftur, en það var gaman meðan á því stóð. Á skíðum skemmti ég mér... Högg,- ryk- og rakavarinn (IP54) • VGA myndavél • Bluetooth Vasaljós • Stereo FM-útvarp • Innbyggður hátalari NOREGUR Um 400 norskir bændur efndu til mótmælagöngu í höfuðborginni Ósló á fimmtudag gegn samningaviðræðum Heimsviðskiptastofnunarinnar um meira viðskiptafrelsi, þar á meðal í viðskiptum með landbún- aðarafurðir. Bændurnir hrópuðu slagorð og báru spjöld þar sem þeir sögðust frekar vilja engan samning en vondan. Norskir bændur óttast, eins og bændur víðar um lönd, að samningurinn hafi slæm áhrif á landbúnað og margir þurfi að hrökklast frá búi. Ráðherrar og embættismenn frá aðildarríkjum Heimsvið- skiptastofnunarinnar hafa síðustu daga í Genf reynt að ljúka við Doha-samningalotuna, sem hófst fyrir sjö árum í Doha í Katar. - gb Norskir bændur mótmæla: Báru spjöld og höfðu uppi köll ATVINNULÍF „Við verðum vör við að fólk segi ekki upp störfum áður en það er orðið öruggt um að fá nýtt starf eins og sást í fyrra,“ segir Elva Tryggvadóttir, ráðgjafi hjá Ráðningarþjónustunni. Elva segir að þrátt fyrir að rólegt sé yfir hásumarið hafi starfsfólk í nógu að snúast í kringum ráðning- arbeiðnir sem berist. „Fyrirtæki vanda sig betur við valið og taka sér lengri tíma til að finna rétta starfs- manninn.“ Elva segir sambærilegan fjölda fólks í atvinnuleit leita til fyrirtæk- isins og á sama tíma í fyrra. „Það hefur einungis orðið lítils háttar fjölgun á skrá hjá okkur.“ Elva telur fólk enn nokkuð áhyggjulaust um að fá vinnu. „Ungt fólk í atvinnuleit neitar afgreiðslu- störfum til dæmis enn hiklaust.“ „Sumarið er sambærilegt og verið hefur en við búumst við breyt- ingum strax eftir verslunarmanna- helgi,“ segir Agla Sigríður Björns- dóttir, ráðningar- stjóri hjá Vinna.is. „Við erum farin að sjá fólk úr bönkum og verktaka- fyrirtækjum á skrá hjá okkur og búumst við fleirum með haustinu þar sem fyrirtæki hafa boðað ráðn- ingarstopp.“ Agla segist einnig hafa séð dæmi um að fólk hætti við að skipta um starf vegna ástandsins á atvinnu- markaðnum. - ht Ráðningarskrifstofur búa sig undir breytingar: Margir hætta við að segja upp starfi ELVA TRYGGVADÓTTIR Markmiðið er að vinna að kynjajafnrétti Jafnréttisskóli Háskóla Íslands verður settur á lagg- irnar í nóvember. Markmiðið er að verða hluti af háskólasamfélagi Sameinuðu þjóðanna. Aðaláhersla skólans verður lögð á þróunarlönd. SAMSTARFIÐ INNSIGLAÐ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Kristín Ingólfsdóttir glaðar í bragði við undirritun samstarfsyfirlýsingar um jafnréttisskóla. Skólinn miðast við að auka getu einstaklinga og stofnana sem koma að uppbyggingu jafnréttismála. SJÖFN VILHELMSDÓTTIR VERKEFNISSTJÓRI UMFERÐIN „Það er ein af mörgum asnalegum gloppum í kerfinu að gangandi vegfarendur hafi ekki gangbrautarrétt á hraðahindrun- um,“ segir Dofri Hermannsson, fulltrúi Samfylkingar í umhverf- is- og samgönguráði. Hann segir liggja í augum uppi að hraðahindranir skuli vera merktar sem gangbrautir. Í blaðinu í gær var viðtal við lögreglumann, sem lýsti eftir því að gangbrautum yrði gert hærra undir höfði í íbúðahverfum, en síðustu ár hefur þeim fækkað, og hraðahindranir komið í staðinn. Um hindranirnar gilda ekki ákvæði um stöðvunarskyldu og má jafnvel leggja ökutæki á hraðahindrun. Dofri segir að gott væri ef „löggjafinn gæfi ríkari heimildir til að stjórna umferðinni með skynsamlegum hætti“. Margrét Sverridóttir, óháður fulltrúi í samgönguráði, segir hins vegar að þetta sé í góðum farvegi. „Það hefur náðst rosalega góður árangur við að lækka hámarkshraða í íbúðahverfum og ég get ekki séð að menn séu á rangri leið. Ef það er allt of mikið af gangbrautum, þá kannski virð- ir fólk þær ekki eins vel. Hins vegar eru þær mjög mikilvægar, til dæmis í kringum skóla,“ segir hún. Ekki náðist í fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins og VG. - kóþ Fulltrúi Samfylkingar um gangbrautir og hraðahindranir í íbúðahverfum: Gloppur eru í gangbrautarrétti TANSANÍA Annar albínói var myrtur í Tansaníu á fimmtu- dag. Þá hafa 26 albínóar verið drepnir á innan við ári í landinu. Fórnarlambið var karlmaður, en kona hans særðist einnig í árásinni. Árásarmennirnir skáru hægri fótinn af manninum og hluta af kynfærum hans. Galdralæknar á svæðinu eru taldir bera ábyrgð á morðunum. Trúað er að hár, hendur, blóð og aðrir líkamspartar albínóa færi fólki ríkidæmi. 173 galdralæknar hafa verið handteknir síðan í mars fyrir þessar sakir. - kbs Albínóamorð halda áfram: Kynfæri og fót- ur skorinn af GANGBRAUTARHINDRUN Síðustu ár hefur gangbrautum fækkað í íbúða- hverfum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BRESKUR HERMAÐUR SÉST RÆÐA VIÐ BARN Á LEIÐANGRI SÍNUM Í KABÚL Í AFGANISTAN Nú eru um 7.800 breskir hermenn í Afganistan, flestir í Helm- and, þar sem talíbanar hafa haldið sig frá því þeir misstu völdin árið 2001. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.