Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 16
16 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. MERKISATBURÐIR 1662 Á Kópavogsfundinum ritar Árni Oddsson lögmað- ur tárvotum augum undir skuldbindingarskjal um einveldi Danakonungs hér á landi. 1895 Þjórsárbrú hjá Þjótanda er vígð og opnuð til umferð- ar að viðstöddu á þriðja þúsund manns. 1957 Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd er vígð. Hún var reist til minninar um sálmaskáldið Hallgrím Pétursson. 1960 Norðurlandaráðsþing er haldið á Íslandi í fyrsta sinn en ráðið var stofnað 1952. 1985 Íslandsmet er sett í fallhlíf- arstökki er fimm stökkv ar- ar mynda stjörnu sem þeir halda í 45 sekúndur. Hátt í sextíu þús- und manns mættu á þjóðhátíð á Þingvöll- um þennan mánað- ardag árið 1974 til að fagna ellefuhundruð ára byggð á Íslandi. Fjöld- inn svaraði til fjórðungs þjóðarinnar þá. Hátíðin þótti takast með ágæt- um, verður var frábært og framkoma hátíðar- gesta til sóma. Á þingfundi á Lög- bergi var samþykkt til- laga um þjóðargjöf sem fólst í að verja einum milljarði króna til efl- ingar landgræslu og gróðurvernd á næstu fjór- um árum. Lúðrasveitir léku, karlakórar sungu og ræður fluttu Kristján Eldjárn forseti, Halldór Laxness nóbelsskáld, Indriði G. Þorsteinsson formaður þjóðhátíðar- nefndar og Ólafur Jó- hannesson forsætis- ráðherra. Tómas Guð- mundsson fór með hátíðarljóð og sinfóníu- hljómsveitin lék verð- launaverk Herberts H. Ágústssonar og Jónasar Tómassonar. Þjóðarganga var ofan úr Almannagjá, íþrótt- ir voru iðkaðar og hátíðinni lauk með því að Ís- land farsælda frón var blásið í lúðra af efri barmi Almannagjár. ÞETTA GERÐIST 28. JÚLÍ 1974 Þjóðhátíð á Þingvöllum Antikhúsinu er ein þeirra verslana sem setja svip á Skólavörðustíginn í Reykjavík. Kaupkona þar er Fjóla Magnúsdóttir. Fjölmargir staldra við hjá henni bæði til að blanda við hana geði og spá í hina fögru muni í búðinni hennar. Þegar blaðamann ber þar að garði er hún að þurrka af. „Ég er alltaf með tuskuna á lofti,“ viðurkennir hún og sýnir nýfægð- an silfurborðbúnað í einum skápn- um. „Eitt ömmubarnið sagði eitt sinn við mig. „Amma, þú talar og pússar,“ og það eru áreiðanlega orð að sönnu, ég er oft óafvitandi að pússa eitthvað meðan ég tala við viðskiptavinina.“ Starfsemi Antíkhússins er 20 ára um þessar mundir. Sumarið 1988 reif Fjóla sig frá því að starfa í lögfræði- deild Búnaðarbankans og stofnaði til verslunarinnar ásamt manni sínum Ólafi Steinari Valdimarssyni ráðu- neytisstjóra sem andaðist fyrir um tíu árum. „Ég fékk kennitölu versl- unarinnar í júlí og við opnuðum um haustið í Þverholti 7. Þetta fór rólega af stað en vatt fljótt uppá sig og búðin var orðin mitt annað heimili áður en varði. Bóndi minn var líka vel liðtæk- ur í að lagfæra læsingar og annað sem þurfti,“ lýsir hún. Fjóla er borinn og barnfæddur Reykvíkingur og ólst upp í litla Skerja- firði, „eiginlega í gamla Tívolí,“ eins og hún orðar það. Þrjú af fjórum börn- um hennar búa erlendis þar sem þau sinna veigamiklum embættum. Móðir þeirra segir þá kenningu á lofti að þau hafi flutt út til að forðast að bera hús- gögn alla daga! Hún kveðst hafa verið með búðina í Þverholtinu í tíu ár en svo keypt á Skólavörðustígnum. „Ég hugs- að mér húsnæðið hér sem sýningarsal en fljótlega snerist dæmið við. Sýn- ingarsalurinn varð að búð og Þver- holtið lager. Staðsetningin var svo miklu betri hér,“ segir hún. Nú hefur hún geymslu við hliðina á búð- inni og minnist þess varla að hafa farið á mill húsa án þess að burðast með eitthvað! Dönsk húsgögn höfða til Íslendinga að sögn Fjólu sem kaupir allt inn í Dan- mörku. En er endalaust fram- boð af gömlum munum þar? „Já, svo merkilegt sem það er þá er þetta stöðug hringrás,“ segir hún. „Danir voru svo oddhagir og á tíma- bilinu frá 1914 til 1940 voru háir tollar á innfluttar mublur í Danmörku. Það varð til þess að húsgagnasmiðir þar fóru á flug en samkeppnin milli þeirra var hörð svo þeir urðu að vanda sína vinnu.“ Spurð hvort fólk sé alltaf jafn spennt fyrir antik svarar Fjóla: „Það gengur í bylgjum. Fyrir 20 árum vildu allir antik. Síðan kom naumhyggjutíma- bilið og stóð í nokkur ár en nú er að lifna yfir þessum markaði aftur. Fólk er farið að blanda antik með nýmóðins hlutum á heimili sín. Fær sér kannski eitt ljós sem er þá öðruvísi en aðrir eiga. Ef foreldrarnir hafa átt antik erf- ist oft áhuginn til barnanna,“ segir Fjóla sem selur ekki aðeins mu- blur, klukkur og lampa heldur líka silfur og danskt post- ulín sem hún segir vinsælt hér á landi. Viðtalið gengur frek- ar hægt því stöðug um- ferð er um búðina auk þess sem síminn hringir af og til. Fjóla er óspör á tíma sinn og hvort sem af viðskipt- um verður eða ekki fara allir hressir af hennar fundi. „Nú fer að styttast í að Skólavörðustígurinn verði opnað- ur fyrir umferð aftur eftir gagnger- ar endurbætur svo það eru bara bjart- ir tímar fram undan,“ segir hún bros- andi. gun@frettabladid.is ANTIKHÚSIÐ Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG: REKSTURINN TUTTUGU ÁRA Fer varla milli húsa án þess að burðast með eitthvað KAUPKONAN FJÓLA GUÐMUNDSDÓTTIR Fólk er farið að blanda antik með nýmóðins hlutum. fær sér kannski eitt ljós sem er þá öðruvísi en aðrir eiga.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ODDUR ÓLAFSSON BLAÐAMAÐUR ER SJÖTÍU OG FIMM ÁRA Í DAG. „Það er ekki hlutverk frétta- manna að feta í fótspor hroll- vekjusmiða sýndarveruleik- ans né fullnægja þörfum þeirra sem líta á gróf ofbeld- isverk sem skemmtiatriði.“ Oddur starfaði sem blaðamað- ur á Alþýðublaðinu, Tímanum, Degi og DV og var aðstoðarrit- stjóri Tímans um skeið. Einnig er hann ljósmyndari og vann við það fag um tíma. Hand- málað postulín frá Royal Copenhagen, ártalið er 1935. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Eiríks Alexanderssonar frá Grindavík, Prestastíg, Reykjavík. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut og hjúkrunarþjónustu Karitas. Guð blessi ykkur öll. Hildur Júlíusdóttir Almar Eiríksson Kittý Magnúsdóttir Leifur Eiríksson Þórey G. Guðmundsdóttir Margrét B. Eiríksdóttir Edvard G. Guðnason barnabörn og barnabarnabörn. Elsku hjartans drengurinn okkar, bróðir, barnabarn og frændi, Bjarni Páll Kristjánsson Ægisíðu 107, Reykjavík, sem lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 15. júlí, verður jarðsung- inn frá Neskirkju fimmtudaginn 31. júlí kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarsjóð skáta hjá Bandalagi íslenskra skáta. Kristján Geirsson Droplaug Guðnadóttir Anna Björk, Birkir, Baldvin Anna Gísladóttir Geir Kristjánsson Ásta Ólafsdóttir Guðni Þ. Valdimarsson Margrét Geirsdóttir Haukur K. Bragason Guðrún A. Guðnadóttir Sigurjón H. Hauksson Valdimar Guðnason Páll Guðnason og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, ástvinur, amma og langamma, Pálína Margrét Hafsteinsdóttir Furugrund 66, Kópavogi Sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 22.júlí. Verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30.júlí kl. 15.00 Bára Þórðardóttir Hörður Sveinsson Hafsteinn Þórðarsson Steinunn Guðnadóttir Laufey Þórðardóttir Sæmundur Björnsson og fjölskyldur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.