Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR HEIMILI TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Eiríkur Hafdal söngvari hljómsveitarinnar Dísel
heldur mikið upp á forláta tungusófa sem hann
fann nýlega.
„Það er svo þægilegt að slappa af í þessum tungu-
sófa,“ segir fjölskyldufaðirinn og söngvarinn Eiríkur
Hafdal aðspurður um uppáhaldshlutinn á heimilinu.
Hann bætir við að fjölskyldan sitji oft löngum stund-
um í sófanum fyrir framan sjónvarpið á kvöldin, en
hins vegar sé setið með gestum inni í fínni stofunni.
Eiríkur segist lengi hafa leitað að sófa sem þessum
og fundið hann um svipað leyti og hann flutti síðast-
liðinn vetur. „Ég var búinn að leita mikið til útlanda
til að athuga hvort ég myndi finna sófa af þessari
gerð því hann varð aldrei á vegi mínum í húsgagna-
verslunum hér heima. Svo rakst ég á húsgagnalager-
söluna Patta, sem smíða þetta bara,“ upplýsir Eiríkur
glaður í bragði og segir sófann því vera íslenska
hönnun.
„Ég var búinn að prófa að setjast í svona tungusófa
hjá félaga mínum og fannst ekkert annað koma til
greina“ segir Eiríkur ákveðinn. Hann kveðst hafa
prófað ýmsar aðrar sófagerðir áður en hann fann
þann rétta og þar á meðal hornsófa með skemlum í
endanum. „Það var ekkert að ganga. Hann var allt of
stórt kvikindi.“
Eiríkur er í fæðingarorlofi þessa dagana og nýtur
þess því oft að slappa af í sófanum góða. Hann er líka
söngvari hljómsveitarinnar Dísel sem nýlega vann
keppnina Sumarsmellur FM957. Þegar hann er inn-
tur eftir því hvernig þessi tvö ólíku hlutverk fara
saman segir hann: „Þetta er stund á milli stríða. Það
er ágætt að vera heima með börnunum og fara síðan
út þegar þau eru farin að sofa. Það er mjög þægi-
legt.“ martaf@frettabladid.is
Fann nýlega rétta
sófann eftir langa leit
Söngvarinn Eiríkur Hafdal nýtur þess að vera í faðmi fjölskyldunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Kryddjurtir í eldhúsglugganum eða
á svölunum eru frábær leið til að eiga allt-
af eitthvað ferskt til að kitla bragðlaukana.
Til ferskra kryddjurta er sáð á sama
hátt og til annarra plantna.
Ráðlagt er að rækta
viðkvæmustu
plönturnar innan-
dyra. Plöntur eins
og steinselja og dill
vaxa þó ágætlega
utan dyra eftir for-
ræktun innanhúss.
Kerti eru skemmtileg leið til að lífga
upp á kvöldverðarborðið, jafnvel þótt
bjart sé úti. Þó er ekki alveg jafn gleði-
legt þegar veislan er búin og borðið
er þakið litlum vaxdropum. Gam-
alt húsráð til að losna við þenn-
an leiða fylgifisk kerta
er að geyma þau í
ísskáp svolitla
stund áður
en kveikt er á
þeim.
Gólfmottur í fallegum litum, eins
og til dæmis bláum, grænum, gulum,
rauðum og appelsínugulum,
geta svo sannarlega lífgað upp á
heimilið og svo vernda þær gólf
auðvitað fyrir alls kyns hnjaski.
Því er um að gera að fara út í búð
og finna sér fallega og litríka
gólfmottu sem er vís með að
gleðja hvers manns augu.
!"
#
$%&'($'&)*'* +
,-./0 1 23,
1 23,
' !
( ! )*
+,-./
*
012345111 !% 6 7
!
"
#$
%&''!
# ( )! * ( )! + "
!,-
$ ! #
!./
! . !0 .
/
!
%'#
1
# 0
2"
!
."3 !
4
# 0
( )! +5 !6!
(.#
/
-
!"
#$%
5! 3 &&7'' !8 ! ,6
! 977''
&
%8
.0!