Fréttablaðið - 28.07.2008, Page 26
28. JÚLÍ 2008 MÁNUDAGUR6 ● fréttablaðið ● siglufjörður2
Magnús Ólafsson hjá Fjalla-
byggð hefur haft veg og vanda
af skipulagningu Síldarævin-
týrisins á Siglufirði. Hann segir
dagskrána fjölbreytta sem fyrr.
Magnús Ólafsson hjá Fjallabyggð
hefur yfirumsjón með Síldarævin-
týrinu sem haldið verður á Siglu-
firði um Verslunarmannahelgina.
„Síldarævintýrið er fjölskylduhá-
tíð,“ segir Magnús og bætir við að
þetta sé hátíð þar sem Siglfirðing-
ar bjóði heim. „Við sækjum gamla
Siglfirðinga sem fluttir eru úr
bænum og fáum þá til að vera með
okkur. Nefna má gamla Siglfirðinga
eins og Þorvald Halldórsson bassa-
söngvara og Gylfa Ægisson í því
samhengi. Þeir munu standa fyrir
fjöldasöng í Bátahúsinu og heitir
sýningin Óskalög sjómanna.“
Að sögn Magnúsar verður ým-
islegt um að vera. „Nóg verður í
boði fyrir börnin. Má þar nefna að
Doktor Gunni og Abbababb verða
á staðnum, haldin verður söngva-
keppni, keppni í dorgveiði og boðið
upp á andlitsmálun og Sprell-leik-
tæki.“
Dansleikir verða haldnir bæði
utan og innandyra og skemmtidag-
skrá á ráðhústorginu að degi til og
á kvöldin. Meðal þeirra sem koma
fram eru Páll Óskar, Eyþór Ingi
úr Bandinu hans Bubba og hjóm-
sveitirnar Bermúda, Silfur, Heldri
menn, Bátsmannatríóið, Trölla-
skagahraðlestin og Miðaldamenn
með Sturlaug Kristjánsson í farar-
broddi.
„Við leggjum áherslu á að virkja
fólkið í bænum. Gido og Thiago eru
fjölhæfir listamenn frá Brasilíu
sem hafa búið hér á Siglufriði í tvö
ár og ætla að spila á hljóðfæri og
syngja. Margot Kiis, jazzsöngkona
frá Eistlandi, mun syngja. Síðan
verður messað í Hvanneyrarskál
og Gústa guðsmanns minnst.“
Hið árlega sjóstangveiðimót Sjó-
sigl hefur verið fastur liður á há-
tíðinni og ekki verður brugðið út
af þeim vana að sögn Magnúsar.
Einnig verður boðið upp á golfmót,
hestaferð, gönguferð, fjallahlaup
og myndlistarsýningar. Sýning Jó-
hönnu Bogadóttur, sem hún kall-
ar Hátíð hafsins, verður sett upp.
Ekki má gleyma sýningunni í Báta-
húsinu þar sem síldarstúlkur salta
síld við undirleik harmonikkutóna.
-vg
Stórættarmót Siglfirðinga
Síldarævintýrið er fjölskylduhátíð þar sem leitast er við að bjóða upp á frábært úrval afþreyingar og skemmtiefnis fyrir alla ald-
urshópa. MYND/STEINGRÍMUR KRISTINSSON
Haft er á orði að Síldarminjasafn-
ið á Siglufirði sé magnað safn,
en þar er hægt að kynna sér síld-
veiðar og vinnslu á silfri hafsins í
þremur húsum. Safnið hlaut Evr-
ópu-gullverðlaun í flokki iðnaðar-
safna árið 2004 og var það í fyrsta
skipti sem íslenskt safn tók þátt
í þessari virtu keppni. Örlygur
Kristfinnsson safnstjóri Síldar-
minjasafnsins segir að allt frum-
kvæði að uppbyggingu þess, sem
var formlega opnað árið 1994, hafi
upphaflega komið frá heimamönn-
um sjálfum.
„Mönnum var mikið í mun að
varðveita þessa ótrúlegu sögu síld-
arævintýrisins á Siglufirði,“ bend-
ir Örlygur á, en hann hefur séð um
að setja upp sýningar safnsins frá
stofnun þess. En hvað varðar um-
fang sýningarrýmis þá er Síldar-
minjasafnið þriðja stærsta safnið
á landinu næst á eftir Listasafni
Reykjavíkur og Þjóðminjasafn-
inu. „Þegar Evrópsku safnaverð-
launin voru veitt var Bátahúsið
reyndar ekki komið, en það er síð-
asti áfanginn sem við höfum ráðist
í nú við uppbyggingu safnsins.“
Aníta Elefsen safnvörður segir
að Bátahúsið sé mikið notað undir
tónleika. Frá fyrsta laugardegin-
um í júlí og fram yfir verslunar-
mannahelgi stendur yfir hin svo-
kallaða Söltunar-sýning þar sem
áhorfendum gefst kostur á að upp-
lifa síldarstemninguna eins og
hún var. Um verslunarmannahelg-
ina verður þar haldinn fjöldasöng-
ur þar sem sjómannalögin verða
sungin. „Á safninu er svo hægt
að koma auga á gömlu ballkjól-
ana sem síldardömurnar klædd-
ust á síldarböllunum. Þá og annan
aðbúnað stúlknanna er hægt að
skoða á efri hæð Roaldsbragga,“
bendir Aníta á og segir að snerta
megi kjólana eins og aðra muni
safnsins. -vg
Aftur til fortíðar
Haft er á orði að Síldarminjasafnið á
Siglufirði sé magnað safn, en þar er
hægt að kynnast síldarævintýri Íslend-
inga. MYND/STEINGRÍMUR KRISTINSSON.
Örlygur Kristfinnsson segir Síldarminjasafnið varðveita ótrúlega sögu.
MYND/STEINGRÍMUR KRISTINSSON
Fiskbúð Siglufjarðar er staðsett í
hjarta bæjarins á Aðalgötunni við
Ráðhústorgið. Hjónin Eysteinn Að-
alsteinsson og Arnfinna Björnsdótt-
ir reka búðina en þar hafa þau stað-
ið vaktina í nær þrjá áratugi.
Fiskbúðin hefur verið mikill
samkomustaður bæjarbúa í gegn-
um árin og er enn. Raunar allt frá
þeim tíma þegar Síldarævintýrið
stóð sem hæst í kringum 1955, en
á því herrans ári var fiskbúðin sett
á laggirnar. Í hugum bæjarbúa og
annarra sem þekkja til Siglufjarð-
ar setur fiskbúðin mikinn svip á
bæinn.
„Það líta allir inn í fiskbúðina,“
segir Eysteinn, sem býður ævin-
lega upp á eyfirskt kaffi eins og
hann orðar það, og á þá við kaffi
sem brennt er af Kaffibrennslu Ak-
ureyrar. Mikið hefur verið spjall-
að saman í fiskbúð Siglufjarðar í
gegnum tíðina og Eysteinn neit-
ar því ekki að ýmsir þjóðþekktir
menn hafi litið í heimsókn. „Kristj-
án Möller núverandi samgönguráð-
herra hef ég þekkt síðan hann var
polli, en hann kíkir ævinlega við hjá
mér þegar hann er í bænum.“
Aðspurður út í vöruúrvalið og
kaupmennskuna bendir Eysteinn
á að fleira en hið hefðbundna sé
að finna í búðinni og vísar til ýs-
unnar, þorsksins og lúðunnar í því
samhengi. Enda er þar að finna
prýðis úrval af helstu nýlenduvör-
um fyrir heimilið, allt frá kjötboll-
um til grænna bauna. „Ég er eigin-
lega kaupmaðurinn á horninu hérna
á Sigló,“ segir hann og bætir við að
til standi að hafa alls kyns kræsing-
ar fyrir gesti og gangandi meðan á
Síldarævintýrinu stendur, eins og
harðfisk, svið, síld og fleira. -vg
Hlaðborð af kræsingum
Eysteinn Aðalsteinsson rekur Fiskbúð Siglufjarðar ásamt eiginkonu sinni Arnfinnu
Björnsdóttur. Hér er hann ásamt dóttur sinni, listakonunni Aðalheiði Sigríði Eysteins-
dóttur. MYND/STEINGRÍMUR KRISTINSSON
Siglufjörður er nyrsti kaupstaður-
inn á Íslandi og stendur við lítinn,
samnefndan fjörð, undir háum
fjöllum.
Þökk sé síldinni og því að Siglu-
fjörður er með eina bestu höfn
landsins frá náttúrunnar hendi
varð þetta litla og fámenna þorp
að fimmta stærsta bæ landsins
með yfir 3.000 íbúa á aðeins 40
árum. Nú eru íbúarnir um 1.300.
Undirstöðuatvinna þeirra hefur
alltaf verið fiskveiðar og vinnsla
á sjávarfangi. Þar eins og ann-
arsstaðar hefur orðið mikil breyt-
ing á atvinnuháttum og störfum
í sjávarútvegi hefur fækkað um
300. Ýmis þjónustustörf og fjar-
vinnsla fyrir stofnanir er nú orðin
mikilvægur hlekkur í atvinnu-
lífi bæjarins og horfa bæjarbúar
meðal annars til fjölgunar starfa á
þeim sviðum sem vaxtabrodd í at-
vinnumálum.
Saga Siglufjarðar er viðburðar-
rík, gengi fiskveiða og sjávar-
útvegsfyrirtækja hefur risið og
hnigið á víxl. Á ýmsan hátt ber
hann þess enn merki að hafa verið
höfuðborg síldveiðanna í Norður-
Atlantshafi um langt skeið.
Sveitarfélagið Fjallabyggð varð
til við sameiningu Ólafsfjarðar-
bæjar og Siglufjarðarkaupstað-
ar árið 2006. Þar búa nú um 2.200
manns. -nrg
Viðburðarík saga
Í byrjun 20. aldar var á Siglufirði lítið þorp, hálfnorskt, sem óx svo hratt að Siglufjörð-
ur öðlaðist kaupstaðarréttindi árið 1918 og varð um leið sjálfstætt lögsagnarum-
dæmi. Um miðja öldina var staðurinn orðinn einn af stærstu kaupstöðum landsins.
MYND/STEINGRÍMUR KRISTINSSON
Síldarævintýrið er hátíð þar sem keppst er við að endurskapa liðna tíma.
MYND/STEINGRÍMUR KRISTINSSON