Fréttablaðið - 28.07.2008, Side 41

Fréttablaðið - 28.07.2008, Side 41
MÁNUDAGUR 28. júlí 2008 17 Finnbogi Einarsson kerfisfræðing- ur er skírður í höfuðið á afa sínum og vill svo til að þeir eru alnafnar. Hann ber hins vegar einstakt gælu- nafn sem virðist hafa fylgt honum frá barnæsku. „Til að byrja með voru menn ekk- ert alveg klárir á því hvort ég héti Finnbogi með N-i eða Fimmbogi með M-i. Því var ég ýmist kallaður Finnbi eða Fimmbi,“ segir Finnbogi. „Það skipti mig engu máli og mér var alveg sama hvort menn notuðu N eða M.“ Svo var það að vinur og bekkjar- bróðir Finnboga festi Fimmba nafn- ið í sessi í formi 5bi. „Í barnaskóla voru stærðfræðibækurnar númerað- ar frá 1A, svo 2A og 1B og svo fram- vegis. Svo var komið að 5b og Stef- áni Bjarnarsyni, bekkjarbróður og fé- laga mínum, fannst það ótrúlega sniðugt að merkja bókina mína með því að setja i aftan við titilinn. Þannig fæddist 5bi.“ Finnbogi, eða 5bi, er afar ánægð- ur að bera nafn sem hann telur ein- stakt. „Ég lendi aldrei í vandræð- um með til dæmis notendanöfn eins og margir aðrir. Ég þarf ekki að kalla mig Finnbogi_384iceland eða eitt- hvað álíka. Það er bara einn 5bi,“ segir 5bi og hlær. Finnborgi hafði lengi í bígerð að fá sér húðflúr sem endanlega og að eilífu myndi festa nafnið í sessi. „Ég var búinn að teikna það upp og svo lét ég verða af því að fá mér tattú- ið fyrir nokkrum árum þegar ég var úti á Benidorm,“ segir Finnbogi. „Það er frábært að vera með einstakt tattú þó svo fólk lesi stundum 56i í stað 5bi,“ bætir hann við hlæjandi. NAFNIÐ MITT: FINNBOGI EINARSSON Þekkir engan annan 5ba Finnbogi er kallaður 5bi en nafnið hlaut hann fyrir tilstilli æskuvinar síns og stærðfræðibókar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLI SAGA JÓNSDÓTTIR LEIKKONA ER SEX- TUG Í DAG. PÉTUR ORMSLEV KNATTSPYRNU- MAÐUR ER FIMM- TUGUR Í DAG. BIRGITTA HAUK- DAL SÖNGKONA ER TUTTUGU OG NÍU ÁRA Í DAG. ÁGÚSTA EVA ERLENDSDÓTTIR SKEMMTIKRAFTUR ER TUTTUGU OG SEX ÁRA Í DAG. Samkvæmt vinsældalista Billo- ard voru það Domenico Modug- no sem áttu vinsælasta lagið fyrir 50 árum. Nel Blu Dipinto Di Blu (Volare) var lagið sem tröllreið vinsældalistanum en hann vann Grammy-verðlaun árið 1958 fyrir lagið, auk þess sem hann vann fyrir bestu plötuna. Þar skaut hann ekki ómerkari mönnum en Elvis Presley og The Everly Brothers ref fyrir rass. Fyrir 40 árum voru Bítlarnir upp á sitt besta en Hey Jude skildi aðra keppinauta eftir í rykinu samkvæmt Billboard-listanum. Fyrir 30 árum var það Andy Gibb sem kom sá og sigraði eftir harða baráttu við Bee Gees. Tíu árum síðar, eða 1988, söng ást- mögurinn og sjarmatröllið George Michael sig inn í vestræn hjörtu með Faith en öðrum tíu árum síðar, árið 1998, hafði smekkur beggja megin Atlantshafsins eitt- hvað breyst. Hið auðgleymanlega band Next hreppti efsta sæti Bill- board listans það árið með laginu Too Close. - tg Hverjir voru vinsælastir? GEORGE MICHEAL var efstur á vinsælda- lista Billboard fyrir 20 árum með lagið Faith. BÍTLARNIR voru vinsælastir allra árið 1968 með Hey Jude.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.