Fréttablaðið - 28.07.2008, Page 49

Fréttablaðið - 28.07.2008, Page 49
LIFI ÞRÓTTUR Þrusu Þróttarar og bráðskemmtilegir Blikar í margslungnum leik í Laugardalnum kl. 20 í kvöld Grillvagninn frá Þessi ósyfjaða verslunarkeðja lætur sér ekki nægja að vera helsti styrktaraðili Þróttar heldur splæsir líka pylsum á mannskapinn. En munið bara að pylsupottinum verður skellt aftur korteri fyrir leik svo hvernig væri nú bara að mæta tímanlega? Mark frá miðju taka lýsi, taka lýsi oleioleioleioleiolei Völdum áhorfendum gefst nú færi á að skora frá miðju - nokkrum fyrir leik og öðrum í hálfleik. Verðlaunin í þessum heimaleik eru frá Lýsi. Þeim sem tekst að senda knöttinn í mark í loftinu, fá svo annað tækifæri á síðasta heimaleik Þróttar því þar verður keppt til þrautar um sigurvegara og verðlaunin vegleg. Lýst er eftir Þrótturum Þegar síðast sást til, fór af vellinum fjöldi manna að meðaltali meðalmenn á hæð, uppáklæddir eins og vera ber en svolítið súrir. Við minnum þessa félaga okkar á, að hafi verið ástæða til að vera súr þann daginn, þá er löngu búið að kvitta fyrir það og Þróttur á fínni siglingu í úrvalsdeild. Í engri sérstakri röð koma þessir menn upp í kollinn og eru þeir, sem vita um ferðir þeirra, beðnir um að taka þá með á völlinn. Koma svo: Steini Gunn, Tryggvi Geirs, Óli Morthens, Steini Snædal, Siggi Pé, Siggi spíra, Diddi Palli Ólafs, Þormóður og Siggi Sveins, Helgi Gunn og Gunni bróðir hans, Haukur Hafsteins, Haukur Nikk, Hallur Baldvins, Tommi Jönu, Hrossagrjóni og Goggi, Höddi, Pétur æskuvinur, Benni og Höddi, Jón eldhúsrúlla, Gunni Skapta, Tóti te, Brilló, FréttaBenni og LýsisDolli, Gummi Erlings, Nikki höttur, Kristján (hvorki séð né heyrt) Kristján Gísla, Deidó, Siggi Gunn, Hilli og Óli, Gísli Jóns, Gummi Kærn, Svenni, bróðir Evu og félagar hans, Gunni Árna, Valdi, Leifur og aðrir blakarar, Hafliði, Jói Fel og aðrir bakarar, Jörgen, Dóri rakari og aðrir rakarar.......Þegar þessari lauslegu upptalningu er lokið veltir maður svo fyrir sér hvar kvenfólkið sé því Þróttur er talinn vera með eitt alkarlmannlegasta knattspurnuliðið á Norðurlöndum. Þeir aðilar sem standa sérstaklega á bakvið heimaleikjaátak Þróttar á þessum leik eru: Tvö áræðin lið undir stjórn köttaðra þjálfara, sem kalla ekki allt ömmu sína þegar stilla á upp fótboltaliði. Hvernig á svona leikur að geta verið annað en skemmtilegur?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.