Fréttablaðið - 28.07.2008, Page 51

Fréttablaðið - 28.07.2008, Page 51
MÁNUDAGUR 28. júlí 2008 27 Akranesvöllur, áhorf. 1255 ÍA FH TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12–21 (6–14) Varin skot Trausti 9 – Gunnar 4 Horn 2–11 Aukaspyrnur fengnar 19–21 Rangstöður 3–2 FH 4–3–3 Gunnar Sigurðsson 5 Höskuldur Eiríksson 5 (51. Guðm. Sævars. 6) Ásgeir G. Ásgeirsson 7 Tommy Nielsen 4 Hjörtur Logi Valgarðs. 7 Björn Daníel Sverriss. 7 Davíð Þór Viðarsson 6 *Matthías Vilhjálms. 8 (82. Jónas Grani -) Atli Guðnason 8 Atli Viðar Björnsson 7 Tryggvi Guðmundss. 8 (77. Matth. Guðmunds. -) *Maður leiksins ÍA 4–3–3 Trausti Sigurbjörnss. 5 Þórður Guðjónsson 6 Árni Thor Guðm. 4 Heimir Einarsson 3 Guðjón H. Sveinsson 3 (59. Igor Bilokapic 4) Bjarni Guðjónsson 7 Guðm. Böðvar Guðjón. 5 Jón Vilhelm Ákason 3 (76. Andri Júlíusson -) Stefán Þór Þórðars. 5 Vjek.Svaðumovic 4 (46. Árni Ingi Pjet. 6) Björn Bergmann Sig. 6 0-1 Matthías Vilhjálmsson (16.) 0-2 Atli Guðnason (33.) 1-2 Björn Bergmann Sigurðars. (38.) 1-3 Tryggvi Guðmundsson, víti (40.) 1-4 Tryggvi Guðmundsson (49.) 1-5 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson (62.) 2-5 Guðm. Böðvar Guðjónsson (67.) 2-5 Garðar Örn Hinrikss. (6) Akranesvöllur, áhorf.: 1117 Grindavík Valur TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–12 (6–8) Varin skot Zankarlo 3 – -Kjartan 4 Horn 1–3 Aukaspyrnur fengnar 9–8 Rangstöður 1–6 VALUR 4–4–2 Kjartan Sturluson 6 Rasmus Hansen 6 Atli Sv. Þórarinsson 5 Barry Smith 6 Rene Carlsen 7 Henrik Eggerts 7 (76. Hafþór Ægir -) Baldur Bett 5 (80. Einar Marteinss. -) Sigurbjörn Hreiðarss. 5 (86. Guðm. Hafst. -) Bjarni Ólafur Eiríkss. 7 Helgi Sigurðsson 7 *Guðm. Benedikts 8*Maður leiksins GRINDAV. 4–5–1 Zankarlo Simunic 5 Ray Anthony Jónsson 3 Zoran Stamenic 4 Marinko Skaricic 3 Jósef K.Jósefsson 5 Scott Ramsay 4 Orri Freyr Hjaltalín 5 Grétar Hjartarson 6 Jóhann Helgason 4 (66. Aljosa Gluhovic 6) Andri St. Birgisson 5 (83. Bogi Rafn Ein. -) Gilles Mbang Ondo 5 (66., Tomasz Stolpa 6) 0-1 Henrik Eggerts (21.) 0-2 Helgi Sigurðsson, víti (23.) 1-2 Gilles Mbang Ondo (26.) 1-3 Bjarni Ólafur Eiríksson (63.) 2-3 Tomasz Stolpa (72.) 2-4 Helgi Sigurðson, víti (79.) 3-4 Grétar Ólafur Hjartarson (90.) 3-5 Helgi Sigurðsson (90.) 3-5 Kristinn Jakobsson (8) Landsbankadeild karla FH 13 9 1 3 31-14 28 Keflavík 12 8 2 2 26-16 26 Valur 13 7 2 4 24-18 23 Breiðablik 12 6 3 3 25-17 21 Fjölnir 12 7 0 5 22-14 21 KR 12 6 0 6 20-15 18 Fram 12 6 0 6 13-11 18 Grindavík 13 5 2 6 20-25 17 Þróttur 12 4 4 4 19-23 16 Fylkir 12 4 0 8 12-22 12 ÍA 13 1 4 9 13-33 7 HK 12 1 2 9 12-32 5 MARKAHÆSTIR Björgólfur Takefusa, KR 10 Helgi Sigurðsson, Valur 9 Nenad Zivanovic, Breiðablik 8 Tryggvi Guðmundsson, FH 8 Guðmundur Steinarsson, Keflavík 7 Atli Viðar Björnsson, FH 7 Pálmi Rafn Pálmason, Valur 7 Pétur Georg Markan Fjölnir 6 Prince Rajcomar, Breiðablik 6 Gunnar Már Guðmundsson, Fjölnir 6 NÆSTU LEIKIR HK-Fram mán. 28. júl. 19:15 Fylkir-Keflavík mán. 28. júl. 19:15 Þróttur R.-Breiðablik mán. 28. júl. 20:00 KR-Fjölnir þri. 29. júl. 20:00 Keflavík-HK mið. 06. ágú. 19:15 Fram-ÍA mið. 06. ágú. 19:15 FH-Þróttur R. mið. 06. ágú. 19:15 Breiðablik-KR mið. 06. ágú. 19:15 Fjölnir-Grindavík fim. 07. ágú. 19:15 Valur-Fylkir fim. 07. ágú. 19:15 STAÐA MÁLA FÓTBOLTI „Mér fannst þetta vera algjör klassaleikur hjá mínu liði og við áttum þetta svo sannar- lega skilið,“ sagði Vanda Sigur- geirsdóttir, þjálfari Breiðabliks, eftir glæsilegan sigur á KR á Kópavogsvelli í gær, 3-1. Orð að sönnu hjá Vöndu enda var Blika- liðið mun betra í leiknum. „Við vorum mun betri frá fyrstu mínútu og það var svo mikill hugur í mínu liði að ég var ekki einu sinni stressuð fyrir þennan leik. Það kom ekkert annað til greina en að vinna og það gerðum við. Það er frábær karakter í þessu liði,“ sagði Vanda. Miðað við spilamennsku Blika- liðsins í gær er spurning af hverju það er ekki í baráttunni á toppi deildarinnar. „Við höfum svo sannarlega getuna til þess en það hefur verið of mikill óstöð- ugleiki og liðið verið að leika undir getu. Við höfum tapað mik- ilvægum stigum en ég vissi að getan væri alltaf til staðar. Stelp- urnar hafa fengið að kynnast því hvað það er leiðinlegt að tapa og það skapaði hungur fyrir þennan leik,“ sagði Vanda. María Björg Ágústsdóttir, markvörður KR, varði víta- spyrnu í fyrri hálfleik áður en KR-liðið komst yfir á 42. mínútu með glæsilegu marki Eddu Garð- arsdóttur. En strax í næstu sókn á eftir náði Hlín Gunnlaugsdóttir að jafna með ekki síðra marki og bæta upp fyrir að hafa misnotað vítaspyrnu. Blikastúlkur voru sterkari og nálguðust verkefnið af meiri ákefð. Þær náðu forystu á 55. mínútu þegar Harpa Þorsteins- dóttir skoraði glæsilegt mark með þrumuskoti í hornið. Berg- lind Björg Þorvaldsdóttir inn- siglaði síðan sigur heimaliðsins undir lokin en öll mörkin í leikn- um voru ansi falleg. Skemmtilegt var að fylgjast með Blikaliðinu í gær, það spilaði flottan fótbolta og tilþrifin voru mikil. Eftir þessi úrslit má segja að Valsstúlkur séu komnar með aðra höndina á Íslandsbikarinn og erfitt að sjá að hann fari af Hlíðarenda. „Þetta var skelfilegt. Við áttum ekkert skilið úr þessum leik. Ég get eiginlega ekkert sagt. Þetta eru bara algjör vonbrigði,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR, en hún var nánast orðlaus. - egm Valsstúlkur færðust nær Íslandsmeistaratitlinum í gær þegar Breiðablik vann KR í Landsbankadeild kvenna: Sprækar Blikastúlkur unnu verðskuldað MIKIL BARÁTTA Það gekk á ýmsu í sigri Blikastúlkna á bikarmeisturum KR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Það var rok í Grindavík þegar Valsmenn mættu í heim- sókn í 13. umferð Landsbanka- deildar karla í gærkvöldi. Grind- víkingar hafa verið að bæta við sig mannskap að undanförnu og Grétar Ólafur Hjartarson var í fyrsta skipti í liðinu eftir félaga- skiptin frá KR. Hann skoraði í sínum fyrsta leik en það dugði þó ekki því Valsmenn lyftu sér í 3. sætið með 5-3 útisigri þar sem Helgi Sigurðsson skoraði þrennu. Leikurinn fór rólega af stað en Henrik Eggerts kom Val yfir á 21. mínútu með skoti úr teignum og einungis tveimur mínútum síðar skoraði Helgi Sigurðsson úr víta- spyrnu sem Kristinn Jakobsson dæmdi eftir klaufagang hjá Zoran Stamenic í vörninni. Grindvíkingar voru þó ekki lengi að minnka muninn því Gilles Mbang Ondo skoraði aðeins þrem- ur mínútum eftir mark Helga og staðan orðin 2-1. Seinni hálfleikur var jafn fram- an af en á 63. mínútu kom Bjarni Ólafur Eiríksson Valsmönnum í 3- 1 þegar hann slapp inn fyrir vörn Grindavíkur. Grindvíkingar voru heldur dauf- ir sóknarlega í seinni hálfleik en þrátt fyrir það náðu þeir að minnka muninn með marki Tomasz Stolpa en hann var þá nýkominn inn sem varamaður. Hann fékk sendingu inn fyrir vörnina og kláraði færið með stæl. Helgi Sigurðsson kom svo Val í 4-2 á 79.mínútu með marki úr ann- arri vítaspyrnu Vals eftir að Haf- þór Ægir Vilhjálmsson féll. Á 90. mínútu komu svo tvö mörk. Fyrst skoraði Grétar Ólafur með glæsilegu skoti úr teignum og strax í næstu sókn skoraði Helgi sitt þriðja mark eftir að hafa feng- ið frábæra sendingu frá Guð- mundi Benediktssyni inn fyrir vörnina, en Guðmundur átti mjög góðan leik í liði Vals. Lokatölur 5-3 og Helgi var ánægður í leikslok. „Já, það er draumur hvers knattspyrnumanns að skora þrennu í sigurleik. Það er búið að vera frábær stígandi í þessu hjá okkur undanfarið og gott að enda þessa törn sem hefur verið undanfarið með sigri,“ sagði Helgi og bætti við að vindurinn hefði gert mönnum erfitt fyrir. „Já, þetta var náttúrlega erfitt fyrir bæði lið en ég held að á köfl- um hafi þetta verið ágætis knatt- spyrna. Við hefðum jafnvel getað skorað fleiri mörk.“ Grétar Ólafur Hjartarson skor- aði í sínum fyrsta leik fyrir Grindavík í sumar en var auðvitað ekki sáttur við úrslitin. „Við erum auðvitað ekki sáttir við að tapa þessum leik og hvað þá að fá á okkur fimm mörk. Það þýðir ekk- ert að dvelja við þetta lengur held- ur fara bara að hugsa um næsta leik. Þeir voru bara betri en við í dag.“ - sjj Helgi Sigurðsson skoraði þrennu þegar Íslandsmeistararnir fóru upp í þriðja sæti Landsbankadeildarinnar: Valssigur í rokinu í Grindavík í gærkvöldi BESTUR Á VELLINUM Guðmundur Benedikts- son átti góðan leik með Val í gær. VÍKURFRÉTTIR FÓTBOLTI FH tyllti sér á topp Lands- bankadeildar karla með auðveld- um sigri á ÍA, 5-2, á Akranesi. FH lék sinn besta leik í langan tíma í deildinni og var sigurinn eins öruggur og tölurnar gefa til kynna. FH komst verðskuldað yfir strax á 16. mínútu með marki Matthíasar Vilhjálmssonar. Atli Guðnason bætti öðru marki við á 33. mínútu. Björn Bergmann Sig- urðarson minnkaði muninn fyrir ÍA eftir skyndisókn en aðeins tveimur mínútum síðar fékk Heimir Einarsson að líta rauða spjaldið þegar hann braut á Matthíasi sem var kominn einn inn fyrir vörn ÍA og víti dæmt. Tryggvi Guðmundsson skoraði af öryggi úr vítinu og staðan 3-1 í hálfleik. Tryggvi Guðmundsson skoraði aftur á fjórðu mínútu síðari hálf- leiks og þegar Ásgeir Gunnar skoraði fimmta markið á 62. mín- útu benti allt til þess að FH myndi láta kné fylgja kviði og keyra enn frekar yfir gjörsigraða Skaga- menn. Það breyttist allt þremur mínút- um síðar þegar Tommy Nielsen fékk rautt spjald fyrir að slá Stef- án Þórðarsonar. Ótrúlegur gjörn- ingur í stöðunni 5-1. ÍA náði að rétta sinn hlut örlítið með síðasta marki leiksins á 67. mínútu og þar við sat. Allt annað var að sjá til sóknar- leiks FH en hefur verið í síðustu leikjum og spurning hve mikið andstæðingurinn hafi spilað þar inn í. Björn Daníel Sverrisson og Matthías Vilhjálmsson komu inn í lið FH fyrir Dennis Siim og Arnar Gunnlaugsson og frískuðu þeir mikið upp á leik liðsins. „Það er hluti af þessu en það var 18 ára gutti í liðinu hjá okkur í dag, Björn Daníel, og hann á skilið hrós. Hann stóð sig frábærlega sem og allt liðið,“ sagði Matthías um hvort hann hefði gert gæfu- muninn í bættri spilamennsku FH. „Þetta var alls ekki létt en mér fannst við spila mjög vel í dag. Það var mjög gott hratt spil hjá okkur fram á við. Við sýndum hvað í okkur býr í dag. Skagamenn reyndu að spila fótbolta í dag og það er framför miðað við upp á síðkastið en það þarf eitthvað að laga þarna,“ sagði Matthías. Bjarni Guðjónsson var líklega að spila sinn síðasta leik fyrir ÍA en vildi ekkert segja um hvort þetta var hans síðasti leikur með liðinu. „Það verður að koma í ljós bara.“ Bjarni var álíka fámáll aðspurður hvort hann vildi halda áfram að berjast með ÍA í fallbar- áttunni. „Það er ekki í mínum höndum. Ég vil ekkert um það segja,“ sagði Bjarni. - gmi FH-ingar sýndu sparihliðarnar Skagamenn þurftu að sætta sig við enn eitt stórtapið í fyrsta leiknum undir stjórn tvíburanna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona þar sem sjö mörk og tvö rauð spjöld litu dagsins ljós. FJÖGUR MÖRK Í TVEIMUR LEIKJUM Tryggvi Guðmundsson er búinn að finna skotskóna og er orðinn þriðji marka- hæstur í deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.