Fréttablaðið - 30.07.2008, Side 1

Fréttablaðið - 30.07.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Stefán Aðalsteinn Drengsson kleif nýlega Mont Blanc og lenti þar í hrakningum.Kvikmyndagerðarmaðurinn Stefán Aðalsteinn Drengsson kleif nýverið Mont Blanc ásamt meðlim- um 5 tinda. Leiðangurinn var ekki leikur einn og mátti Stefán hafa sig allan við til að komast á topp inn. „Við vissum að þetta yrði k fj sem um eitt h Leiðin lá því næst til Frakklands, þar sem Stefán og félagar lögðu af stað upp brekkuna Mont Blanc du Tacul. „Eftir hana byrjaði ég að finna verulega fyrir þunna loftinu, því brekkan sem tók við af henni var löng og lýjandi. Ég fékk dúndrandi hausv k í magann og sting fyri hjd f Neitaði að gefast upp Stefán Aðalsteinn Drengsson segir sér alla vegi færa eftir ófarir á Mont Blanc. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÖRYGGI Í ÖNDVEGIÁríðandi er að tryggja öryggi barna í bílum. Á það ekki síst við nú þegar ein stærsta ferðahelgi ársins er fram undan. BÍLAR 2 MENNINGIN Í VÍNValgerður Guðmunds-dóttir er nýkomin úr námi í Vínarborg þar sem hún naut lífsins og tilverunnar. FERÐIR 4 > Markaðurinn Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ... FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG Laxveiði Dýrustu ár landsins 14 Tímavél Upprifjun á ráðum Tryggva Þórs Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 30. júlí 2008 – 31. tölublað – 4. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 H E L S T Í Ú T L Ö N D U M Eins árs Lánsfjárkreppan er eins árs um þessar mundir og ekkert bendir til að hún sé að minnka. Samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins hafa bankar nú þegar afskrifað um 500 milljarða dala en sjóðurinn gerir ráð fyrir að þeir muni tapa alls um þúsund milljörðum. Til bjargar Bandaríska þingið samþykkti lagafrumvarp til þess að koma fjármálasjóðunum Fan- nie Mae og Freddie Mac til bjargar. Sjóður upp á 300 milljarða dollara verður settur á laggirnar til þess að koma þeim sem eiga mikið veðsett- ar eignir til bjargar. Vogun tapar Útkoma vogunar- sjóða eftir júlímánuð gæti orðið sú versta í fimm ár í kjölfar þess að spár um þróun hlutabréfamark- aðarins og hráolíuverðs reyndust byggðar á sandi. Spár um lækkun hlutabréfa brugðust þegar hluta- bréf í Fannie Mae og Freddie Mac meira en tvöfölduðust í verði á sex dögum. Ekki „happy meal“ leyfishaf- ar McDonald´s í Noregi höfðuðu mál gegn höfuðstöðvum keðjunnar í Bandaríkjunum vegna þvingun- ar á greiðslu viðhalds og svimandi hárra tryggingarupphæða. Dýr dropi heimsmarkaðsverð á olíu fer hækkandi eftir að það náði sjö vikna lágmarki um helgina þegar verð á tunnu fór niður fyrir 123 dollara. Árásir uppreisnarmanna í Nígeríu valda þessari hækkun. 12 Landsbanki Íslands hagnaðist um 12 milljarða króna eftir skatta á öðrum ársfjórð- ungi. „Afkoma Landsbankans á fyrstu 6 mán- uðum ársins er mjög góð. Þetta er mikilvægt, ekki síst í ljósi erfiðra aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörk- uðum,“ segir Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans. Hagnaðurinn er svipaður og á sama ársfjórðungi í fyrra. Afkoman er í samræmi við spár greiningardeilda sem gerðu ráð fyrir 10 til 12 milljarða hagn- aði á tímabilinu. Mikill vöxtur hefur verið í Ice- save innlánsreikningum Lands- bankans sem starfræktir eru meðal annars í Bretlandi og Hol- landi. Sigurjón segir að alls hafi 200 þúsund viðskiptavinir bæst í hópinn á þessu ári og séu nú um 350 þúsund. Um 60 prósent af tekjum Landsbankans koma er- lendis frá, þar af 34 prósent frá Bretlandi. - bþa / sjá síðu 2 Hagnast þrátt fyrir hallæri Tíma - og verkskráning Flotastýring og eftirlit www.trackwell.com Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar „Það er ekkert leyndarmál að innheimta er erfiðari en áður. Það er miklu meira um að menn þurfi að semja um frest og kröfum fjölgar sem eru sendar til lögfræðings,“ segir Anna Sigríður Jóhannsdóttir, sviðsstjóri greiðendaþjónustu Intrum. Davíð Bene- dikt Gíslason, framkvæmdastjóri Momentum, segir að áþreifanlegust séu vanskil stærri fyrirtækja. „Við erum að sjá dæmi að fyrirtæki sem ekki hafa áður verið í lausafjárvandræðum eru komin í van- skil. Áður fyrr höfðu menn ekkert sérstakar áhyggj- ur þó að greiðslur drægust í einn til fjóra mánuði en nú er farið að herða á innheimtuferlunum því fyr- irtækin eru jafnvel sjálf í vanskilum. Peningarnir verða að koma hraðar inn.“ Róðurinn er að þyngjast hjá fyrirtækjum sem hefur gert það að verkum að innheimta hefur reynst erfiðari en áður. Slíkt hefur keðjuverkandi áhrif og nú virðist sem mörg fyrir- tæki séu komin í vanda vegna lágs innheimtuhlut- falls og lausafjárskorts. „Við höfum orðið vör við að greiðslustaða fyrirtækja hafi breyst á undanförnum vikum og mánuðum þannig að fyrirtæki hafi verið að lengja greiðslufrest til sinna birgja. Hvort það sé tímabundið ástand eða hversu lengi það varir er ómögulegt um að segja segir Ágúst Jóhannesson, yfirmaður fyrirtækjasviðs KMPG. Þróunin hefur verið hröð og tala flestir um að vanskil hafi farið stigvaxandi frá áramótum, en hafi þó vaxið mest frá því í vor. Kröfur sem höfðu eindaga í júní fara að öllu jöfnu í innheimtu hjá lögfræðingum eftir versl- unarmannahelgina. Það má því gera ráð fyrir að róðurinn eigi enn eftir að þyngjast með haustinu og að gjaldþrotum muni fjölga. Davíð telur að haust- ið verði erfitt fyrir fólkið í landinu: „Fólk sem hefur misst vinnuna, hefur velt sér áfram á yfirdráttum, sem getur ekki selt eignina sína og er jafnvel búið að veðsetja allt sitt, vandræði þeirra eiga eftir að aukast hratt í kjölfar fyrirtækjanna.“ Vanskil aukast og innheimta erfiðari Fleiri kröfur fara í innheimtu til lögfræðinga. Stór fyrirtæki eru í vanda vegna þess hve innheimtuhlutfall hefur lækkað. „Núna stendur krafan á stjórnmálamennina að hafa forystu um að móta sýn um það, hvernig við kom- umst aftur á fast land og getum hafið uppbyggingu á ný,“ segir Þórarinn V. Þórarinsson, lögfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands Íslands. Rætt er við hann og Ara Skúla- son hagfræðing, sem áður var hjá Alþýðusambandi Íslands, í Markaðnum í dag um hvort byggja megi á reynslu þjóðarsáttarinnar árið 1990 í efnahagsum- róti dagsins í dag. Þeir segja ljóst að nauðsynlegar umbætur geti orðið um margt sársaukafullar, svo sem á vettvangi fjármála ríkis og sveitarfélaga. „Svo verða ríki og borg að taka höndum saman um sóknarsýn í orku- málum. Ekki gengur lengur að menn tali þar út og suður,“ segir Þórarinn. Ari bendir á að stjórnarmeirihlutinn sé ríflegur og því ætti allir möguleikar að vera á því að hægt sé að ná utan um stöðuna sem uppi er í efnahags- málum. Hann segir jafnframt ljóst að endurskoða þurfi hér stefnuna í ljósi undangenginnar reynslu. „Upp á síðkastið hefur til dæmis komið í ljós að margt af því sem við töldum okkar helstu styrkleika, líkt og sveigjanleiki og svo framvegis, reynist kannski bara veikleiki og við þurfum að sammælast um á hvað við ætlum að leggja áherslu.“ Þórarinn segir jafnframt reynsluna sýna að krón- an sé of lítil til að þjóna hagsmunum fyrirtækja, einstaklinga og jafnvel ríkisins. „Um þetta deila menn í raun og veru ekki lengur.“ - óká / Sjá miðopnu Kalla eftir stjórnmálaforystunni Á tímum þjóðarsáttarinnar drógu samtök atvinnulífsins vagninn í nauðsyn- legum umbótum. Núna er þjóðlífið breytt og aðrir þurfa að leiða umbætur. Jarðvarmi Forskot Íslendinga að hverfa 6 SIGURJÓN Þ. ÁRNASON Sími: 512 5000 MIÐVIKUDAGUR 30. júlí 2008 — 206. tölublað — 8. árgangur VEÐRIÐ Í DAG STEFÁN AÐALSTEINN DRENGSSON Lenti í hremmingum í för sinni á Mont Blanc • ferðir • bílar Í MIÐJU BLAÐSINS Myndlist Jurtateikningar Eggerts Péturs- sonar komnar í hátíðarútgáfu. MENNING 22 DIDDA SKÁLDKONA Leikur týpu byggða á sjálfri sér Styttist í frumsýningu á Skrapp út! FÓLK 30 MARGRÉT EDDA JÓNSDÓTTIR Í landsliðinu í Tae- kwondo Bakraddasöngkona Merzedes Club leynir á sér FÓLK 30 Lít ég einn sem list kann Einar Már Jónsson skrifar um tál dráttarmennina alræmdu sem fylla stræti Parísar nú um hásum- arið. Í DAG 12 Frönsk stemning Sigurður Pálsson, rithöfundur og skáld, stakk af til Parísar til að halda upp á sextugs- afmælið. TÍMAMÓT 16 UTANRÍKISMÁL Þrettán bandarísk skjöl um ferðir og atferli Halldórs Laxness í kalda stríðinu eru komin til landsins og voru send fjölskyldu hans með pósti í gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra fór þess á leit við utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í janúar að fjölskyldunni yrði leyft að sjá leynileg skjöl um Halldór. „Þetta er það sem kom í hús í gær [fyrradag]. Ég hef ekki haft ráðrúm til að fara yfir þetta, en ég sendi þau áfram og læt fjölskyldunni eftir að ákveða framhaldið,“ segir hún. Leyniskjöl um Halldór Laxness komust í fréttir í febrúar þegar Chay Lemoine bókmenntafræð- ingur fékk svar frá skrifstofu Baracks Obama. Hann hafði beðið þingmanninn um að heimta skjöl frá bandarísku alríkislögreglunni, FBI. Skrifstofa Obama sagðist hafa kannað þetta. Höfnun FBI væri endanleg. Fjölskylda skáldsins hafði ekki fengið skjölin í hendur í gær, en Halldór Þorgeirsson, tengdason- ur skáldsins, var efins um að hér væru FBI-skjölin frægu komin. „Þetta eru líklega ekki merki- leg gögn. En slagurinn er ekki búinn. Við knýjum dyra þangað til þeir gefast upp,“ segir hann. Heimildir herma að skjölin sem komu í fyrradag séu skýrsl- ur um samskipti Laxness við Bandaríkjamenn, með hverjum hann hafi snætt og hvar. - kóþ Utanríkisráðuneyti Bandaríkja bregst við beiðni utanríkisráðherra Íslands: Leyniskjöl um Laxness komin HALLDÓR LAXNESS VIÐSKIPTI Vart verður nú við vanskil stærri fyrirtækja sem ekki hafa áður verið í vandræðum með lausafé. „Áður fyrr höfðu menn ekkert sérstakar áhyggjur þó að greiðsl- ur drægust í einn til fjóra mánuði en nú er farið að herða á inn- heimtuferlunum, því fyrirtækin eru jafnvel sjálf í vanskilum,“ segir Davíð Benedikt Gíslason, framkvæmdastjóri Momentum. Róðurinn hefur þyngst hjá fyrirtækjum sem gerir það að verkum að innheimta hefur reynst erfiðari. - ghh / sjá Markaðinn Vanskil hafa stóraukist: Innheimtan aldrei erfiðari HITINN Í 28 STIG Í dag verða norðaustan 5-13 m/s, hvassast við SA-ströndina. Yfirleitt nokkuð bjart veður en hætt við þokulofti með ströndum nyrðra og eystra. Hiti 15- 28 stig, hlýjast til landsins SV-til. VEÐUR 4 17 22 20 20 23 28 26 FÓLK Ómar Ragnarsson og Árni Johnsen vinna nú ásamt fleirum að endurbótum á bænum Uppsöl- um í Selárdal þar sem einbúinn Gísli Gíslason bjó. Ráðgert er að bærinn verði safn um minningu hans. Safnið verður opnað á næsta ári. Gísli á Uppsölum varð lands- frægur eftir að hann birtist í Stiklu-þætti Ómars snemma á níunda áratugnum. Meðal muna á safninu verður sjónvarp sem Jón Páll Sigmarsson færði honum og frægt varð. Gísli lést árið 1986 en í fyrra voru hundrað ár liðin frá fæðingu hans. Mikil uppbygging virðist vera í Selárdal því einnig hefur verið unnið að endurbótum á bæ Samúels Jónssonar og listaverk- um hans. - glh / sjá síðu 24 Ómar og Árni Johnsen: Safn um Gísla á Uppsölum UMHVERFISMÁL „Þetta er fúll pyttur í hjarta borgarinnar,“ segir Hilm- ar J. Malmquist, einn af höfundum skýrslu um ástand Reykjavíkur- tjarnar sem afhent var Reykjavík- urborg í gær. Í skýrslunni kemur fram að magn saurgerla, þungmálma og næringarefna í tjörninni sé langt yfir viðmiðunarmörkum. „Það er vitað að nokkrar af bakt- eríutegundunum í saurgerlaflór- unni eru sjúkdómsvaldar,“ segir Hilmar. „Ef ég ætti kornabarn og væri á gangi við gosbrunninn vildi ég ekki láta það fara undan vindi.“ Skýrslan var unnin af Náttúru- fræðistofu Kópavogs. Ástand tjarnarinnar var kannað frá maí á síðasta ári til apríl í ár. Saurmeng- unin er rakin til fugladrits og skólplosunar. Óvenjumikið er um fugla á litlu svæði við tjörnina. Er það einkum vegna brauðgjafar. Skólplosunin stafar líklega frá flugvallarsvæðinu í Vatnsmýrinni. Ekki er ljóst hvort hún er tilkomin fyrir mistök, en óheimilt er að losa skólp í tjörnina. Þungmálmamengunin stafar einkum frá umferð bifreiða nálægt tjörninni. Hugsanlega stafar þó hluti mengunarinnar frá gömlum sorphaugum sem nú eru grafnir undir Hljómskálagarðinum. Þrengt hefur verið að tjörninni frá flestum áttum og eru bakkar hennar nú að mestu manngerðir. Fyrir vikið hefur geta lífríkisins í tjörninni til að taka við og vinna úr mengandi efnum minnkað. Hætta er einnig talin vera á mengun frá flugvallarsvæðinu, meðal annars vegna notkunar afísingarefna og olíu. Meðal sýnilegustu áhrifa meng- unarinnar á lífríki tjarnarinnar er að rauðleita plantan síkjamari sem áður var algeng í er horfin. Aukið magn blágrænuþörunga hefur gert vatnið gruggugra. Skýrslu- höfundar leggja fram ýmsar til- lögur til að bæta ástandið. Meðal tillagna er að fjarlægja efsta hluta botnslags tjarnarinnar, sem meng- aður er af þungmálmum. Að gróð- ursettur verði síkjamari í tjörnina á ný, en hann getur átt þátt í hreinsun hennar. Að tekið verði fyrir það að skólp renni í tjörnina. Og að takmörkuð verði brauðgjöf til fugla. - gh Saurgerlar og þung- málmar í Tjörninni Mengun í Reykjavíkurtjörn er langt yfir viðmiðunarmörkum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu um ástand tjarnarinnar. Skólp er losað í tjörnina. Sæt hefnd hjá KR KR-ingar lögðu Fjölnismenn að velli í lokaleik 13. umferðar í gær. ÍÞRÓTTIR 26 SAUMASKAPUR VIÐ ÁRBÆJARSAFNIÐ Fjórar þjóðlegar yngismeyjar í Árbæjarsafninu notuðu góða veðrið í gær til þess að prjóna. Í dag verður frítt inn á Árbæjarsafnið í tilefni mikillar veðurblíðu. Gestum og gangandi verður boðið að spóka sig um og fá jafnvel örlitla hvíld frá hitanum í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÓMAR RAGNARSSON Viðtal Ómars við bóndann á Uppsölum var eftirminnilegt.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.