Fréttablaðið - 30.07.2008, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 30.07.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 Við vorum nokkrar vinkonur fyrir löngu farnar að plana villta verslunarmannahelgi. Ráða- gerðirnar fólust þó ekki í tilhlökk- un vegna dvalar við hjalandi lítinn læk og kvakandi fugl í mó, þótt umhyggjusamir foreldrar hafi lík- lega verið fóðraðir á einhverjum þægilegum skáldskap. Ekki urðu heldur sérstakar umræður um hlý föt og nesti á föstu formi. Reyndar tók aðeins fáeinar mínútur að hrifsa svefnpoka og tjald en mun lengri stund að svitna yfir hallær- islegheitunum í henni móður minni sem stóð við eldavélina og steikti kótilettur í raspi. PLÍS mamma, það tekur enginn með sér svona nesti, það er sjoppa þarna og allt! Týpískt að ég neyð- ist til að taka með eitthvað glatað box með skrínukosti eins og tíðk- aðist fyrir stríð. Nú þarf ég að pukrast með þetta eins og gamal- menni inni í tjaldi. Á ekki bara að senda mann með mjólkurflösku í ullarsokk líka? SVO ferðin til Tvísýnu hófst með niðurlægjandi kótilettubox á botni bakpokans. Frábær félagsandi ríkti í rútunni sem stoppaði á leið- inni svo farþegarnir kæmust út að pissa. Þá voru margir komnir langt ofan í nestisflöskurnar og mesta furða að enginn yrði eftir við veginn. Ein stúlkan kom aftur inn í bílinn með skófar á enninu en hress að öðru leyti og hafði síðar þessa reynslu til marks um gæði helgarinnar. FLEIRA var hægt að tína til sem sönnun einstakrar skemmtunar. Til dæmis það kraftaverk að hafa fundið tjaldstæði í myrkrinu og tekist að vöðla tjaldhúðinni utan um stangirnar. Um miðbik fyrstu náttar á þessum ágæta svefnstað þandi einhver vígalegan jeppa á skörinni og var eindregið hvattur af áhorfendum til að keyra yfir okkur. Láttu vaða yfir helvítis tjaldið, maður! Hvað er þetta lið að troða sér, svonah! FLJÓTLEGA kom þó í ljós að eng- inn nennti að standa í fjöldamorð- um. Þess í stað var slegið upp fjör- ugu og mjög langdregnu partýi með nýjum vinum sem entust akk- úrat jafnlengi og helgin. Þetta var fyrir digitalbyltinguna, annars myndum við sjálfsagt betur hvert eftir öðru. Þá hefðum við líka getað fest á mynd stórfenglega bálför nágrannatjaldsins niður ána, hinn ódauðlega mexíkanahatt og sitthvað fleira göfugt og gott. Seint á sunnudeginum kláruðust svo kótiletturnar dásamlegu, allar með tölu. Sleitulaus hátíðahöld BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er miðvikudagurinn 30. júlí, 213. dagur ársins. 4.29 13.34 22.36 3.56 13.19 22.39

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.