Fréttablaðið - 02.08.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 02.08.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Á hverju sumri bjóða Vest-mannaeyingar þjóðinni til veislu. Boðskortið er frumlegra en gengur og gerist. Yfirleitt birt- ist það í formi furðulegs kitls í maga sem ágerist eftir því sem nær dregur verslunarmannahelgi. Þessu er hægt að gera ráð fyrir á hverju ári því aldrei þarf að velkjast í vafa um það hvort af þjóðhátíð verði. Þar ráða nefni- lega hvorki veður né fjármunir, heldur hefðin ein. Vestmannaey- ingar mega svo sannarlega vera stoltir því engum öðrum stað á landinu hefur tekist að skapa jafn- sterka hefð fyrir útihátíð. ÞEIR leggja líka á sig ómælda vinnu við undirbúning gleðskap- arins sem felst meðal annars í því að skreyta Herjólfsdal, hátíðar- svæði sem virðist hafa verið skap- að frá náttúrunnar hendi í þeim tilgangi einum að nokkur þúsund manna kór komi hér saman í brekkusöng. Þótt náttúran hafi ekki haft fyrir því að mála fyrir okkur hofið eða panta bjórinn sá hún okkur sem betur fer fyrir fólki sem nennir því. Aðkomufólk ætti samt að nýta þessi helgi til að kynnast Heimaey. Þar er nefni- lega margt fleira en aðeins Herj- ólfsdalur, kamrarnir og gámarnir þar sem maður getur látið hlaða farsímana. VONANDI eiga gestirnir eftir að njóta nógu góðrar heilsu þessa helgi til að geta til dæmis brugðið sér út á Skans og vappað niður í fjöru eða jafnvel farið í siglingu. Við sem tilheyrum þeim hluta þjóðarinnar sem aldrei hefur skellt sér á sjóinn eða haft dug til að reka eigið fyrirtæki lítum á volkið sem tilheyrir almennilegri íslenskri útihátíð sem prófstein á þolgæði okkar. Þetta er mann- dómsvígslan okkar og í raun er allt unnið fyrir gýg ef vistin verð- ur of þægileg. Rennblautt tjald er partur af prógramminu. FRÁ Vestmannaeyjum fer maður síðan aðeins til að geta snúið aftur. Ekki það að það líti alltaf út fyrir að maður komist til baka. Þar á umsviptingasöm veðrátta oftast sök. Flugvélar treysta sér ekki í loftið og bátar snúa aftur til hafn- ar eftir daglangt volk á úfnu hafi með grænleita farþega. En oftar er það nú fegurð Eyjanna sem dregur mann til sín. Hún á það til að fá mann til að kikna í hnjánum og óska þess að maður geti enda- laust legið frammi á klettabrún að fylgjast með dullarfullu lífi lunda og enn furðulegri ferðum skýja yfir himininn. Ég veit ekki með ykkur, en ég er farin út í Eyjar. Ég veit þú kemur 4.39 13.34 22.26 4.07 13.19 22.27 Í dag er laugardagurinn 2. ágúst, 216. dagur ársins. Ú TSA LA © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 8 ÚTSÖLUNNI LÝKUR Í DAG! Lokað 3. og 4. ágúst. Opnum aftur þriðjudaginn 5. ágúst. Opið virka daga 10-20 | laugardaga 10-18 | sunnudaga 12-18 | www.IKEA.is/utsala 10. júlí - 2. ágúst

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.