Fréttablaðið - 05.08.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 05.08.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Jón Sigurður Eyjólfsson Ég reyndi eftir fremsta megni að fylgjast með fjölmiðlum á Spáni meðan ég dvaldist þar í sum- arfríinu, svona til að þefa örlítið af þjóðarsálinni. Fljótlega tók ég eftir konu nokkurri, Belen Este- ban að nafni, sem fjölmiðlamenn fylgdu eftir hvert fótmál. Vitan- lega varð ég forvitinn að vita hvað hún hefði unnið sér til frægðar. Þarlendir sögðu mér þá að hún hefði verið gift nautabananum mikla Jesúlín í nokkur ár og hefði verið aðsópsmikil í spænskum fjölmiðlum allar götur síðan. Gerði ég nokkurt grín að þessu til að byrja með því þótt það geti vissulega talist nokkurt afrek að vera gift færum nautabana kvað ég þessa frægðarsól yndismeyjar- innar bera merki um ankannalega þjóðarsál á Íberíuskaganum og væru þeir því vel að því komnir að Íslendingar kvæðu við að eitthvað kæmi þeim spánskt fyrir sjónir þegar fáránleiki lífsins blasti við. EN gamanið rann af mér þegar ég áttaði mig á því að hér á Íslandi, eins og víðast hvar, er fólk frægt fyrir hina furðulegustu hluti. Í NÚTÍMA fjölmiðlun virðist frægðarsólin nefnilega oft vera samningsatriði milli fjölmiðla- manna og síðan sjálfskipaðra stjarna. Þá þarf kannski ekki nema fræga kærustu, nektardansstað, útistöður við lögregluyfirvöld eða kjánaleg uppátæki til að fleyta sér inn í hringiðu dægurmálanna og tryggja sér þar fastasæti. Fyrir utan það er eftirtektarverðum þátttakendum í raunveruleika- þáttum þrykkt svo þyrmilega í þjóðina að hún fær ekki frið fyrr en hún veit hvað þessu fólki finnst best að borða og hvers konar blómavasa það vill hafa í stof- unni. MIÐAÐ við þessar áherslur er það mér til efs að Van Gogh fengi að finna fyrir frægðarsólinni væri hann nú á lífi nema þá kannski fyrir afskorna eyrað. Það er þó alveg ástæðulaust að pirra sig út af þessu svo lengi sem maður minnist orða persneska skáldsins Múslí Úddín Sadí en hann orti: Þó burt sé dýrum demant fleygt í duftið, er hans gildi jafnt; og eins er duftið ávallt samt þó upp til skýja sé því feykt. HELGI Hálfdanarson þýddi ljóðið en fyrir tilstuðlan hans höfum við Íslendingar fengið að njóta helstu perlna heimsbókmenntanna. Ég minnist þess ekki að hafa séð hann í Séð og heyrt. Demanturinn og duftið 4.48 13.34 22.16 4.18 13.18 22.16 Í dag er þriðjudagurinn 5. ágúst, 219. dagur ársins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.