Fréttablaðið - 07.08.2008, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er fimmtudagurinn
7. ágúst, 221. dagur ársins.
4.55 13.33 22.10
4.25 13.18 22.08
Líklega hefur ómeðvitað sam-viskubit yfir ofgnótt góðæris-
áranna á Íslandi, jafnvel kann
vottur af skynsemi að hafa komið
við sögu, orðið til þess að við
landsbyggðar- og úthverfafjöl-
skyldan í Vesturbæ Reykjavíkur
létum okkur duga að aka um á
gömlum sparneytnum Skóda
árum saman. Skódinn hafði farið
marga hringi umhverfis landið,
brunað um vegi sem sagt var að
aðeins væru ætlaðir jeppum og
innbyrt farangur á við sendi-
ferðabíl. Hann var þó alla tíð
allra bíla nýtnastur og aldrei
hafði þurft að sinna honum á
annan hátt en almenn tilvera bíla
útheimtir.
SÓMAFJÖLSKYLDAN á Skód-
anum sagði bílalán heimskuleg,
lúxusbíla ekki annað en orðskrípi
yfir bifreiðar sem eru fulldýrir
fyrir venjulegt fólk og þá far-
skjóta sem sagðir voru hlaðnir
aukabúnaði fulla af óþarfa drasli
sem fólk með lélegt sjálfsmat
hefði gaman af því að segja frá.
Til þess að greina alvöru bíla-
áhugamenn frá uppskafningsleg-
um, snöggsoðnum bílasérfræð-
ingum gaf Leó M. Jónsson,
vélaverkfræðingur og einn helsti
bílasérfræðingur landsins eitt
sinn það ráð að hlusta eftir því
hvernig fólkið bæri fram heiti
bílategundarinnar Porsche. Þeir
snöggsoðnu myndu oft auglýsa
fávisku sýna á bílum með því að
segja skammlaust pors. Slíkur
framburður væri öruggt merki
þess að svokallaður Fjalla-Jón
eða Hillbillies væri á ferð. Alvöru
bílafólk myndi að sjálfsögu segja
pors-e.
SKÓDAEIGENDURNIR í Vest-
urbænum sögðu pors að hætti
sveitamanna og voru nokkuð
stoltir af þeim framburði. Því
þykir það sæta eindæmum að
sómafjölskyldan á Skódanum
hafi fengið þá hugdettu á allra
síðustu lífdögum íslensku krón-
unnar og í enda góðærisins að
kaupa sér bíl sem viðurkenndur
er sem lúxusbíll. Vissulega átti
hann að vera kostakaup og gleðja
fjölskylduna ægilega þegar hann
kæmi til landsins. En síðan eru
liðnir margir mánuðir, krónan
hefur fallið, verðbólgan vaxið og
enn bólar ei á afhendingu lúxus-
bílsins. Skódinn er hins vegar
lagður upp í enn eina ferðina í
kringum landið og enginn áttar
sig á því hvers vegna þörf þótti á
að skipta honum út fyrir þann
nýja sem aldrei kemur.
Fjalla-Jónar
segja pors
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Þökkum frábærar
viðtökur
Lifðu núna
Skítt með sumartilboðið! Við látum það gilda út
október og framlengjum þannig gott sumar.
Með Vodafone Frelsi velur þú 5 vini og skráir
þá á vodafone.is. Hvaða vini sem er, alveg sama
hjá hvaða símafyrirtæki þeir eru.
Skiptu yfir til Vodafone og gefðu skít í kerfið.