Fréttablaðið - 08.08.2008, Síða 1
RÁS 1
RISTIR
DÝPRA
RÁS 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
LEIKHÚS „Þetta þróaðist nú bara
svona,“ segir Jóhann Sigurðarson,
einn ástsælasti leikari landsins.
Hann hefur nú söðlað um eftir
tuttugu ár í Þjóðleikhúsinu og
skrifað undir fastan samning við
Magnús Geir Þórðarson, leikhús-
stjóra Leikfélags Reykjavíkur.
Jóhann, sem jafnan er kallaður
Jói stóri, mun því leika í Borgar-
leikhúsinu á næstunni. Hann hefur
verið einn af burðarásum Þjóðleik-
hússins lengi og má þetta tíðindum
sæta. En Jói segir leikara nú ekki
eins fasta á sínum básum og áður
var.
Magnús Geir hefur einnig náð að
krækja í Þröst Leó Gunnarsson,
sem var á samningi hjá Þjóðleik-
húsinu. -jbg/sjá síðu 42
SAMFÉLAGSMÁL Tveim meðferð-
arheimilum fyrir börn hefur
verið lokað það sem af er þessu
ári. Heimili á Hvítárbakka í
Borgarfirði var lokað í upphafi
ársins og í vor var heimilinu að
Geldingalæk á Rangárvöllum
einnig lokað.
Bæði heimilin buðu upp á sér-
hæfða langtímameðferð fyrir
börn með alvarleg hegðunar-
vandamál á borð við neyslu
áfengis og vímuefna og voru
sex rými á hvorum stað. Yngri
börn voru að jafnaði vistuð á
Geldingalæk þar sem flest barn-
anna voru á aldrinum tíu til
fjórtán ára.
„Umsóknum hefur fækkað og
við verðum að bregðast við
þegar heimilin eru farin að
standa hálftóm,“ segir Hrefna
Friðriksdóttir, lögfræðingur á
Barnaverndarstofu, en síðast-
liðin fimm ár hefur dregið úr
eftirspurn eftir meðferðardvöl
á stofnunum stofunnar. Sótt var
um meðferð fyrir 195 börn árið
2003 samanborið við 164 á síð-
asta ári.
Barnaverndarnefndir meta
þarfir einstakra barna og senda
umsóknir til Barnaverndarstofu
ef þörf er á meðferð. „Við höfum
ekki fundið einhlíta skýringu á
þessari fækkun og getum ekki
séð að nefndirnar vanræki
þarfir þessara barna,“ segir
Hrefna.
Aukin áhersla hefur þó undan-
farin ár verið lögð á að styrkja
fjölskyldur í uppeldishlutverk-
inu. Reynt er að hjálpa börnum
og foreldrum frekar á heima-
velli en að grípa til vistunar
utan heimilis, ekki síst fyrir
yngri börnin.
„Við erum að skoða hvaða
möguleika við höfum á að bjóða
fjölbreytt fósturúrræði fyrir
yngri börn og veita meiri þjálf-
un fyrir fósturforeldra,“ segir
Hrefna. „Við vitum að það getur
reynst afdrifaríkt að taka barn
úr umhverfi sínu og vandasamt
að yfirfæra árangur meðferðar
yfir á hið daglega líf barnsins.“
Þá bendi kannanir sem gerðar
hafa verið hérlendis til þess að
neysla barna fari minnkandi og
vísbendingar eru um að afbrot-
um þeirra fari í það minnsta
ekki fjölgandi.
Þá hefur styttri dvöl verið
reynd og gagnast sumum börn-
um, sem leiði til minni eftir-
spurnar eftir langtímameðferð
eins og veitt var á heimilunum
sem nú hefur verið lokað.
„Við vistum börn á heimilun-
um í þeirri von að meðferðin
muni gagnast,“ segir Hrefna.
„Það er ekki æskilegt að börn
séu vistuð árum saman á stofn-
un.“
-ht
Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
8. ágúst 2008 — 213. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HELGIN HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Hilmar Jacobsen gefur lesendum uppskrift að
eggjaböku sem er upplögð til að nýta mataraf-
ganga. við að mataráhuginn hafi aukist eftir að hann fó ð
sinna núverandi starfi síleg l
Sýður mat án vatns
Hægt er að nota nánast hvaða hráefni sem er í eggjabökuna hans Hilmars.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ELDAR YFIR
ÍSNUM
Árleg flugeldasýning verður haldin í níunda sinn á miðnætti annað kvöld yfir Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi.
HELGIN 2
ASÍSK MATSALAÁ Asian á Suðurlandsbraut 32 hefur opnað matsölustaður með asískum réttum til að taka með sér heim og allir kosta þeir innan við þúsund krónur.
MATUR 3
6.490 kr.
4ra rétta tilboðog nýr A la Carte
· Léttreiktur lax með granateplum og wasabi sósu ·
· Humarsúpa, rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·· Banana- og súkkulaðifrauð með vanillusósu ·
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 9.990 kr.
HILMAR JACOBSEN
Eggjakaka úr öllum
afgöngum í ísskápnum
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
skólar og námskeið
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008
26. ágúst — 8. september 2008 Skráning á www.verslo.is
Fjarnám farðu lengra
JÓHANN SIGURÐARSON Leikarar eru ekki
eins fastir á sínum básum og áður var.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Dómur um
Skrapp út!
Didda er stjarnan
í myndinni.
KVIKMYNDIR 34
Börn leiða fullorðna
Nýr leikskóli í anda Reggio Emilia-
stefnunnar verður opnaður í
Hafnarfjarðarbæ í dag. TÍMAMÓT 24
Solzhenitsyn allur
Ronald Reagan sigraði í kalda
stríðinu því hann hlustaði frekar
á Solzhenítsyn en úrtölumenn,
skrifar Hannes Hólmsteinn
Gissurarson.
Í DAG 22
SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
Tónsmíðar, tangó
og skapandi skrif
sérblað um skóla og námskeið
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
FREMUR MILT Í dag verður hæg
austlæg eða breytileg átt. Dálítil
rigning eða súld suðaustanlands
og skúrir á víð og dreif sunnan og
vestan til. Víða bjart á Vesturlandi.
Hiti á bilinu 10-14 stig.
VEÐUR 4
11
11
11
1213
Tveim heim-
ilum hefur
verið lokað
Tveim meðferðarheimilum fyrir börn hefur verið
lokað á þessu ári. Fækkun umsókna leiddi til þess
að heimilin stóðu hálftóm. Aukin áhersla lögð á að
hjálpa börnum og foreldrum á heimavelli.
Draumurinn að veruleika
Ragna Ingólfsdóttir upp-
lifir í nótt draum sem
blundað hefur með
henni í fimmtán ár;
að keppa á Ólympíu-
leikum.
ÍÞRÓTTIR 38
VEÐRIÐ Í DAG
GÖNGUTÚR Í RIGNINGUNNI Þær Unnur og Hildur létu rigninguna ekki aftra sér
þar sem þær fóru með dúkkurnar sínar í gönguferð. Vopnaðar regnhlífum og vel
skæddar voru þær færar í flestan sjó þegar ljósmyndari Fréttablaðsins rakst á þær í
Barmahlíðinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
2003 195 umsóknir
2004 177 umsóknir
2005 164 umsóknir
2006 194 umsóknir
2007 164 umsóknir
UMSÓKNIR UM MEÐ-
FERÐ FYRIR BÖRN
Leikarar skipta um leikhús:
Jói stóri í Borgarleikhúsið
SAMFÉLAGSMÁL „Við höfum það að markmiði að
vinna saman að þróunarstarfi þar sem norrænar
konur styðja konur í þróunarríkjunum,“ segir
Bjarney Lúðvíksdóttir, listrænn stjórnandi NAVIA,
The Nordic Miracle Group eða Norrænu krafta-
verkasamtakanna.
Fimm norrænar söngkonur skipa raddir NAVIA.
Hvert Norðurlandanna á sinn fulltrúa í sönghópn-
um og er Dísella Lárusdóttir söngkona fulltrúi
Íslands.
„Við notum tónlist til að miðla skilaboðunum og
þær eru okkar sérlegu fulltrúar,“ segir Bjarney.
Hún segir þessar söngkonur koma saman í fyrsta
skipti í Höfða í dag þar sem frumflutt verður lagið
We Can Fly. Hinn heimsfrægi afríski tónlistarmað-
ur Youssou N´Dour frá Senegal syngur einnig í
laginu en hann verður fjarri góðu gamni í dag.
Verkefninu verður formlega hleypt af stokkun-
um klukkan fjögur í Höfða þar sem frú Vigdís
Finnbogadóttir verður heiðursgestur. „Hún er þar
vegna þess að hún er fyrirmynd okkar. Hún er
hvatning til að við getum gert það sem okkur
langar til að gera,“ segir Bjarney.
- ovd
Sameiginlegt markmið er að norrænar konur styðji konur í þróunarríkjunum:
Tónlist miðlar skilaboðunum