Fréttablaðið - 13.08.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
13. ágúst 2008 — 218. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Egill fór í tæplega fjögurra vikna ferðalag til
Japans og var heillaður af menningunni í Tókýó.
„Eftir að við horfðum á Lost in Translation í bíó
vorum við staðráðnir í að fara til Japans,“ segir
Egill Moran Friðriksson sem fór í eftirminnilegt
ferðalag ásamt vini sínum Matthíasi Arnalds
sumarið 2005. Strákarnir dvöldu mestme ifóru ei i
að gera fyrir þá í borginni. „Í tæknihverfinu Akiha-
bara duttum við til dæmis nokkrum sinnum inn á
margra hæða spilasali. Þar vorum við kannski í þrjá
til fjóra tíma og kláruðum heilu tölvuleikina.“
Egill nefnir einnig skemmtilega reynslu sem hann
átti inni á salerni í Sony-verslunarmið töð
var ruglaðasta klóh
Japanirnir störðu á okkur
Egill stendur hér fyrir framan japanska verslun í Hiroshima en þeir vinirnir fóru í dagsferð til borgarinnar. MYND/MATTHÍAS ARNALDS
FRUMLEG HÖNNUNEldhúsljós geta verið ýmiss konar eins og hönnuðurinn Nicholas Furrow hefur sýnt fram á.
HEIMILI 3
ÖRYGGIÐ FYRSTSérstök öryggisnefnd Aksturs-íþróttanefndar LÍA/ÍSÍ mun endur skoða keppnis-reglur í rall- og brautar-keppnum í vetur.
BÍLAR 2
Dugguvogi 2 /Simi 557 9510 / patti.is
Komdu á vinalegu húsgagna lagersölunaAlmennur opnunartímiMán - Föstudagar 09 - 18Laugardagar 11 - 16
Út með gamalt
Inn með nýtt
SAVAGE Torfærukeppnin, keppni fjarstýrðra bíla verður haldin sunnudaginn 17. ágúst á athafnarsvæði Gæðamoldar í Grafarvogi. Skráning kepp-enda er á staðnum. Frekari upplýsingar eru í Tómstundahúsinu, sími 587 0600
VEÐRIÐ Í DAG
EGILL MORAN FRIÐRIKSSON
Lost in Translation
kveikti áhugann
• ferðir • bílar • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Herðubreið klifin fyrst
fyrir 100 árum
Gengið var á fjallið
árið 1908 í leit að
unnusta en það
sem fannst var
eiginmaður.
TÍMAMÓT 18
Sýrður rjómi,
til í allt!
Nýjung
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON
Hugar að framtíð
Svalbarða
Vonast til að spjallþáttur sinn haldi áfram
FÓLK 30
Kunnuglegur texti
Kynningartexti á síðu nýrrar ferða-
skrifstofu þykir óþægilega líkur
ári eldri texta ferðaskrifstofunnar
Óríental.
FÓLK 30
Góðir gefa
Þekktir Íslendingar
gefa varning á mark-
að sem Jóhanna
Kristjónsdóttir
heldur til styrktar
börnum og konum
í Jemen.
FÓLK 24
HÁSKÓLI ÍSLANDS „Þetta er ekki
venjulegt málfar sem nýtur
viðurkenningar í skólakerfinu eða
þjóðfélaginu almennt sem gott
mál. En margt er þar sem er
sterkara en í venjulegu máli,“
segir Guðmundur Sæmundsson.
Hann ritar nú doktorsritgerð við
Háskóla Íslands um málfar í
íþróttum. Guðmundur, sem hefur
starfað við menntavísindasvið á
Laugarvatni, fellst ekki á að þetta
málfar sé viðbjóður í eyrum
sínum sem íslenskumanns og
segir verkefnið mjög athyglisvert
og skemmtilegt. Guðmundur
skoðar meðal annars hvernig
málfarið mótar hópinn sem í
kringum íþróttirnar er.
- jbg/sjá síðu 30
Guðmundur Sæmundsson:
Doktorsritgerð
um tungutak
íþróttanna
RÓLEGT Í dag verður hæg vestlæg
eða breytileg átt. Bjart með köflum
en hætt við lítilsháttar skúrum
vestan til síðdegis. Hiti 10-16 stig,
hlýjast í innsveitum syðra.
VEÐUR 4
12
12
11
10
14
Landsliðshópurinn klár
Ólafur Jóhannesson
tilkynnti 20 manna hóp
fyrir vináttulandsleik á
móti Aserbaídsjan.
ÍÞRÓTTIR 26
VIÐSKIPTI Bankarnir hljóta að skoða
allar leiðir til að flytja starfsemi
sína úr landi, segir Edda Rós Karls-
dóttir, forstöðumaður greiningar-
deildar Landsbanka Íslands. Annað
hvort geri þeir það með flutningi
höfuðstöðva, eða með því að flytja
eignir og yfir í erlend dótturfélög.
Í grein sem Edda Rós skrifar í
Markaðinn í dag vísar hún til þess
að aðstæður bankanna séu hér erf-
iðar sökum lítils baklands og ekki
horfur á að þær batni í bráð.
Bankarnir þurfi „lánveitanda til
þrautarvara“ en það gerist ekki
nema með því að Seðlabankinn auki
gjaldeyrisforðann, eða að hér verði
skipt um mynt. - óká / Sjá Markaðinn
Valkostirnir eru öflugur gjaldeyrisforði eða ný mynt, segir Edda Rós Karlsdóttir:
Bankastarfsemi á leið úr landi
HEIMSMEISTARARNIR LAGÐIR Strákarnir okkar gerðu sér lítið fyrir og lögðu ríkjandi heimsmeistara Þjóðverja að velli, 33-29, í
öðrum leik handboltalandsliðsins á Ólympíuleikunum í Peking í gær. Ísland trónir á toppi B-riðils en næsti leikur liðsins er á
morgun gegn Suður-Kóreu. Sjá síðu 26. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
REYKJAVÍK „Ef samstarf við Sjálfstæðisflokk-
inn kæmi til umræðu tel ég að það þurfi að
skoða í fullri alvöru þannig að borgarmálin
séu ekki öll í uppnámi,“ segir Guðni Ágústs-
son, formaður Framsóknarflokksins.
Guðni segir skyldu borgarfulltrúa að koma
á sterkum meirihluta. „Ég treysti Óskari
Bergssyni og hans fólki til þess að fara mjög
vel yfir hvort það kæmi til greina,“ segir
Guðni.
Guðni neitar að til greina komi að fram-
sóknarmenn gangi inn í samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn og F-lista í borginni. „Ég met
það svo að þriðja hjólið sé ekki valkostur,“
segir Guðni. „Ef þessi meirihluti er ónýtur er
hann búinn og þýðir ekkert að reyna að
plástra hann eða bæta.“ Guðni kveðst meta
stöðuna sem svo að trúnaður sé að bresta
innan meirihlutans í borginni.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er
staðan í borginni mjög viðkvæm og sjálf-
stæðis menn farnir að þreifa fyrir sér við aðra
flokka. Þegar Fréttablaðið hafði samband við
Óskar Bergsson, oddvita framsóknarmanna,
um kvöldmatarleytið í gær neitaði hann
viðræðum við sjálfstæðismenn og vildi ekki
tjá sig um hvort slíkt hugnaðist honum.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi sjálf-
stæðismanna, neitaði einnig viðræðum við
framsóknarmenn þegar Fréttablaðið náði tali
af honum seint í gærkvöld. Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að sjálfstæðismenn ætli að
funda um meirihlutasamstarfið í dag.
Þá hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að
sjálfstæðismenn hafi viðrað við Ólaf F.
Magnússon borgarstjóra hugmyndir um að
útvíkka samstarfið en Ólafur hafi tekið fálega
í slíkar hugmyndir.
„Ég get ekkert sagt um það sem ég ekkert
veit um og ég veit ekki annað en að samstarfið
gangi vel,“ sagði Geir H. Haarde, formaður
Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Frétta-
blaðið í gærdag.
Geir vill ekki tjá sig um hvort rétt sé að
Sjálfstæðisflokkurinn gangi til meirihluta-
samstarfs við aðra flokka í borgarstjórn
Reykjavíkur. „Þessi mál eru á forræði
borgarstjórnarflokksins okkar og ég ætla
hvorki að segja honum fyrir verkum né lýsa
sérstökum skoðunum á því.“
Geir segir fylgi Sjálfstæðisflokksins í
borginni óviðunandi eins og það mældist í
síðustu skoðanakönnun Gallup. „Ég treysti
okkar fólki og forystumanninum nýja, Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, til þess að rífa fylgið
upp,“ segir Geir.
Aðspurður segir Geir erfitt að átta sig á því
hvort fylgistap í könnunum megi rekja til
samstarfs sjálfstæðismanna við Ólaf F.
Magnússon borgarstjóra.
„Á langri ævi í stjórnmálum lærist að hafa
ekki of miklar áhyggjur af fylgissveiflum í
skoðanakönnunum enda erfitt að ráða í þær,“
segir Geir. Hann neitar að vera hvatamaður að
því að nýtt samstarf verið tekið upp í borginni.
„Ég er ekki með puttann í verkum sem aðrir
bera ábyrgð á.“
Hvorki náðist í Hönnu Birnu né Ólaf F. í gær.
- ht / vsp
Sjálfstæðismenn og Framsókn
eiga í óformlegum viðræðum
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks funda í dag um þá viðkvæmu stöðu sem komin er upp í meirihluta-
samstarfinu. Oddviti framsóknarmanna neitar að tjá sig um hugsanlegt samstarf við sjálfstæðismenn.