Fréttablaðið - 14.08.2008, Blaðsíða 10
14. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR
40%
afsláttur
1.099kr/kg
GRÍSAHNAKKI Í BAKKA
1.834 kr/kg
41%
afsláttur
1.595kr/kg
KJÚKLINGABRINGUR
SKINNLAUSAR
2.704 kr/kg
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Akureyri - Höfn - Grindavík
...gómsætir bitar!
TILBOÐIN GILDA 14. - 17. ÁGÚST
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
40%
afsláttur
50%
afsláttur
349kr/kg
TAÐREYKT BJÚGU
699 kr/kg
1.099kr/kg
GRÍSAGÚLLAS
1.834 kr/kg
IÐNAÐUR Fyrirtækið Verne Hold-
ings auglýsti um síðustu helgi
eftir tugum tæknimanna í störf í
gagnaveri, sem rís á Keilissvæði.
Framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, Þorvaldur Sigurðsson, segist
finna fyrir miklum meðbyr með
verinu. Stefnt sé á að rekstur
hefjist haustið 2009.
„En við viljum hafa tíma til að
þjálfa starfsmennina. Sumir
þeirra þurfa að vera virkir þátt-
takendur í uppsetningunni,“ segir
hann.
Engar sérstakar hindranir
standi í vegi fyrir því að af rekstr-
inum verði. Ríkisstjórnin hafi
sýnt verkefninu stuðning, sem og
Reykjanesbær og fólk sem vilji
vinna hjá Verne.
„Það er ekki búið að skrifa
undir samninga við hugsanlega
viðskiptavini, en það lítur allt vel
út,“ segir hann.
Verne gerði samning um orku-
kaup við Landsvirkjun, sem setti
inn fyrirvara um að virkjað yrði í
neðri hluta Þjórsár.
„Og ég hef fulla trú á því að
Landsvirkjun finni leiðir til að
standa við sína samninga,“ segir
Þorvaldur.
Orkuþörfin yrði til að byrja
með 25 megavött en frekari
stækkun kemur til greina.
- kóþ
Verne Holdings segir mikinn meðbyr með gagnaverinu á Suðurnesjum:
Tugir hátæknistarfa í boði
ÚR NETÞJÓNABÚI Auglýst var eftir
rafvirkjum, rafeindavirkjum, rafiðn-
fræðingum, vélstjórum, vélfræðing-
um, vélvirkjum, véliðnfræðingum og
upplýsingatæknifólki í gagnaver Verne
Holdings um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMFÉLAGSMÁL „Við fögnum þessari ákvörðun en
hefðum talið eðlilegt að fá að vita hvað til stæði,“
segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Til stendur að byggja tæplega 130 ný hjúkrunar-
rými í bæjarfélaginu næstu fjögur árin samkvæmt
áætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var á þriðju-
dag.
„Það eina sem fast er í hendi er að bygging 44
hjúkrunarrýma í Boðaþingi er að hefjast í þessum
mánuði,“ segir Gunnar. „Þar eiga síðar önnur 44
rými að bætast við auk þess sem
rætt hefur verið um að fjölga
hjúkrunarrýmum í Sunnuhlíð um
fjörutíu.“
Tímaröðun framkvæmdanna
sem síðar verður ráðist í hefur
ekki verið ákveðin að sögn
Gunnars. „Það er þó greinilegt að
það á að gerast næstu fjögur ár
samkvæmt áætlun ríkisstjórnar-
innar.“
Fimmtán prósent af kostnaði við
byggingu hjúkrunarheimilanna
fellur á Kópavogsbæ en 85
prósent á ríkið að sögn Gunnars,
sem gerir ráð fyrir að verkefnið
muni kosta bæinn fimmtán til
tuttugu milljónir á þessu ári.
Einnig mun bærinn að mestu
standa straum af kostnaði við að
byggja þjónustumiðstöðvar við
hjúkrunarheimili í bænum.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra segir að í samvinnu
við sveitarfélögin meðal annarra hafi verið unnið að
mjög ítarlegri þarfagreiningu sem áætlun ríkis-
stjórnarinnar byggi á.
„Þörfin er langmest á höfuðborgarsvæðinu, ekki
síst í Kópavogi, en fyrir liggur að byggt hefur verið
of mikið víða út á landi þar sem fimmtíu til sextíu
hjúkrunarrými standa auð,“ segir Jóhanna.
„Við fögnum útspili ríkisstjórnarinnar,“ segir
Helgi Hjálmsson, formaður Landssambands eldri
borgara, um áætlun ríkisstjórnarinnar sem gerir ráð
fyrir að hraða byggingu fjögur hundruð hjúkrunar-
rýma og að einbýlum aldraðra verði fjölgað.
„Við höfum barist fyrir betri aðstöðu í gegnum
árin og að fólk geti verið eitt í herbergi sé þess
óskað,“ segir Helgi. „Það eru breyttir tímar, stefna
okkar er að fólk geti búið í einbýli og að óskyldir séu
ekki hafðir saman í herbergi.“
Helgi telur mikilvægt að eldri borgurum bjóðist
jafnframt þjónusta heim meðan þeir halda heilsu til
að sjá um sig sjálfir.
helgat@frettabladid.is
Gunnar hefði viljað
vera með í ráðum
Bæjarstjórinn í Kópavogi fagnar áformum ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu
hjúkrunarrýma en hefði viljað vita hvað til stæði. Byggja á tæplega 130 hjúkr-
unarrými í bænum næstu fjögur ár til að mæta þörf sem er einna mest þar.
GUNNAR I.
BIRGISSON
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
ELDRI BORGARAR Landssamband eldri borgara fagnar
áætlun ríkisstjórnarinnar um að byggja fjögur hundruð ný
hjúkrunarrými á landinu öllu fram til ársins 2012.
LÍKA NAUÐSYNLEGT AÐ
MANNA HEIMILIN
„Það er ljóst að ekki er nóg að byggja bara upp
hjúkrunarrými heldur þarf að manna þau líka,“ segir
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra.
„Eitt stóru verkefna velferðarkerfisins er að bæta kjör
umönnunarstétta, meðal annars til þess að hægt sé að
sinna uppbyggingu fyrir aldraða.“
Jóhanna segir að þrjár nefndir starfi nú að því hvernig
ná eigi fram jöfnuði bæði hvað varðar kynbundinn
launamun og kjör umönnunarstétta.
„Þetta var allt rækilega bundið í stjórnarsáttmála og
verið er að vinna að þessum málum,“ segir Jóhanna.
„Áætlunar um hvernig taka eigi á þessum málum er að
vænta í haust eða vetur, en niðurstaða liggur ekki enn
fyrir.“
FLÓTTAMENN Paul Ramses, flótta-
maður frá Kenía, verður færður
til úr flóttamannahúsinu Sentrone
og í aðra flóttamannamiðstöð. Á
nýja staðnum verður hann að
halda sig utandyra frá klukkan níu
á morgnana og til klukkan fimm
síðdegis.
Spurður segist Paul ekki fá
neina vasapeninga frá Ítölum og
ekki megi hann starfa í landinu.
Hann verður því að hafa önnur ráð
til að verða sér úti um mat á dag-
inn.
„Í Sentrone er þó hægt að dvelj-
ast allan daginn og lesa, ef maður
hefur ekkert að gera. Næsti stað-
ur verður bara til að sofa á,“ segir
Paul.
Rosemary Atieno, kona Ramses,
segist enn bjartsýn á að maður
hennar fái að koma til landsins.
Dómsmálaráðherra hefur heitið
niðurstöðu í mánuðinum um kæru
Pauls Ramses vegna ákvörðunar
Útlendingastofnunar um að senda
hann til Ítalíu.
„Já, ég vonast eftir að heyra
góðar niðurstöður hvað úr hverju.
Við höfum það ágætt hérna og
eigum von á félagslegri aðstoð í
september,“ segir Rosemary, sem
ekki má vinna á landinu. kóþ
Paul Ramses flóttamaður verður færður á nýjan dvalarstað á Ítalíu:
Má ekki vera inni á daginn
ROSEMARY ATIENO OG FÍDEL SMÁRI
Rosemary segist hafa það ágætt á
Íslandi, miðað við aðstæður. Paul Ram-
ses tekur í sama streng, en kvíðir því að
vera færður í nýja og verri flóttamanna-
miðstöð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON