Fréttablaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
19. ágúst 2008 — 224. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Kannar nýjar slóðirÁstbjörg Rut Jónsdóttir er þrítug námsmær sem e ðmun þar fara í skipti á
Ástbjörg og Ronja eru mjög spenntar að flytja út og upplifa nýja hluti.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VERÐBRÉF OG VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI er nokkuð sem ágætt er að kunna skil á. Endur-menntun Háskóla Íslands byrjar í haust með nám í verðbréfaviðskiptum sem meðal annars hugsað er fyrir áhugafólk um þau. Nánari upplýsingar má finna á www.endurmenntun.hi.is.
STAFGANG
A
ÁHRIFARÍK
LEIÐ
TIL LÍKAMS
RÆKTAR
Stafgöngunámskeið hefjast 26. ágúst n.k.
stafgönguþjálfi, 616 85 95. stafgönguþjálfi, 694 35 71.
Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30. Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30.SKRÁNING & NÁNARI UPPLÝSINGAR Á:
Viltu sitja
eða standa?Muvman fyrir breytilega hæð• Bakið beint • Dýpri öndun• Aukin vi k i
ÁSTBJÖRG RUT JÓNSDÓTTIR
Hlakkar til að fara í
skiptinám til Skotlands
• nám • heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Átak hjá UNIFEM
Landsnefnd UNIFEM á
Íslandi opnar íslenska
heimasíðu tileinkaða
átakinu „Say No to
Violence against
Women“.
TÍMAMÓT 22
HÍBÝLI - STOFA
Sérfræðingar í loftkæl-
ingu og hreinu lofti
Sérblað um híbýli
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
híbýli - stofa Betra loft Íshúsið sérhæfir sig í loftkælingu og bættu lofti
BLS. 2
ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008
PEKING 2008 Íslenska handbolta-
landsliðið varð í þriðja sæti í
sínum riðli á Ólympíuleikunum í
Peking eftir 32-32 jafntefli á móti
Egyptum í fyrrinótt.
Íslendingar mæta því Pólverj-
um í átta liða úrslitum og fer
leikurinn fram klukkan 06.15 í
fyrramálið. Sigurvegarinn mun
mæta annaðhvort Kóreu eða
Spáni í undanúrslitum á föstudag-
inn. Ísland hefur tapað fjórum
leikjum í röð á móti Pólverjum
þar af með sex mörkum í for-
keppni Ólympíuleikanna í maí en
síðast vannst sigur á Pólverjum á
stórmóti á HM í Portúgal 2003.
- óój / sjá síðu 30
Íslenska handboltalandsliðið:
Mætir Póllandi
í 8 liða úrslitum
SÁRT Róbert Gunnarsson fær harðar
móttökur á línunni gegn Egyptum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nýtt í
Hagkaupum
Viltu bæta hlaupatímann
þinn án meira álags?
Smart Motion hlaupastíllinn
er kominn á DVD í Hagkaup!
EFNAHAGSMÁL Sjálfstæður
gjaldmiðill hefur ekki reynst
þjóðinni vel í efnahagssveiflum
undangenginna ára. Þetta er mat
Erlends Hjaltasonar, formanns
Viðskiptaráðs Íslands.
„Þegar hagkerfið hefur siglt úr
þeim öldudal sem nú gengur yfir
er því full ástæða til að endurmeta
tilvistarrétt sjálfstæðs gjaldmiðils
á Íslandi,“ segir Erlendur í grein
sem hann ritar í Fréttablaðið í dag.
Hann varar við því ástandi sem
ríkir að veik króna hamli því að
stýrivextir séu lækkaðir. „Það er
engum til góðs að keyra íslensk
fyrirtæki í gjaldþrot með háum
fjármagnskostnaði til þess eins að
halda gengi krónunnar stöðugu.“
- óká / sjá síðu 20
Formaður Viðskiptaráðs Íslands:
Kallar á endur-
mat á krónunni
Persónur og leikendur
„Í nútíma þjóðfélagi sækist fólk
eftir að komast í fjölmiðla,“ skrifar
Jónína Michaelsdóttir.
Í DAG 18
SKOÐANAKÖNNUN Borgarbúar telja
að skólamál, fjármál borgarinnar
og velferðarmál séu þrjú brýn-
ustu mál borgarstjórnar, sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Rúm 45 prósent
þeirra sem afstöðu tóku nefndu
einn þessara valkosta.
Fæstir nefna umferðarmann-
virki, umhverfismál og virkjana-
mál sem brýn málefni borgar-
stjórnar. Rúm 19 prósent nefna
umferðarmannvirki sem brýnt
málefni. Nefndu 14 prósent virkj-
anamál en Óskar Bergsson, borg-
arfulltrúi Framsóknarflokks,
hefur lagt áherslu á mikilvægi
þess að Bitruvirkjun verði að
veruleika í umræðu um síðustu
meirihlutaskipti í borginni.
Nokkur munur er á hvernig
málaflokkum er raðað eftir
stjórnmálaskoðunum svarenda.
Þannig nefna framsóknarmenn
oftast fjármál borgarinnar og
velferðarmál. Kjósendur Sjálf-
stæðisflokks leggja mesta
áherslu á skipulagsmál og fjár-
mál borgarinnar.
Frjálslyndir telja skipulagsmál
og umhverfismál brýnustu málin.
Samfylkingarfólk leggur mesta
áherslu á fjármál borgarinnar og
velferðarmál og vinstri græn
nefna oftast skólamál og velferð-
armál. Þeir sem ekki gefa upp
stuðning við stjórnmálaflokk
nefna oftast skólamál og velferð-
armál.
Þá er nokkur munur á afstöðu
Reykvíkinga eftir kyni. Karlar
nefna oftast skipulagsmál, þá
fjármál borgarinnar og í þriðja
sæti eru skólamál. Konur nefna
hins vegar oftast skólamál, þá
velferðarmál en í þriðja sæti hjá
konum eru fjármál borgarinnar.
- ss / sjá síðu 6
Skoðanakönnun um brýnustu mál borgarstjórnar:
Menntun, fjármál og velferð
SKIPULAGSMÁL Borgarráð Reykja-
víkur samþykkti fyrir skemmstu
samning við Knattspyrnufélagið
Val og eignarhaldsfélagið Vals-
menn hf. um uppbyggingu á
Hlíðar endasvæðinu. Bein útgjöld
borgarinnar vegna samningsins
eru 155 milljónir króna, auk þess
sem enn þarf að greiða tíu millj-
ónir á mánuði í tafabætur, vegna
seinkunar á deiliskipulagi. Slíkar
bætur geta orðið allt að 280 millj-
ónir.
Brynjar Harðarson, formaður
Valsmanna hf., segir félagið hafa
borið töluverðan skaða af töfun-
um. „Skuldbindingar okkar vegna
þessa eru komnar yfir tvo millj-
arða og við það vaxtastig sem við
búum duga tafabæturnar ekki til
afborgana af þeim. Þá höfum við
ekki getað staðið við skuldbind-
ingar okkar gagnvart knatt-
spyrnufélaginu vegna tafanna.“
Samkvæmt samningnum er
byggingarnefnd Hlíðarendasvæð-
is lögð niður og verkefni hennar
færð Val. Greiðsla til félagsins
vegna tapaðra tekna og kostnaðar
sem fallið hefur á félagið er 96
milljónir. Þá greiðir Reykjavíkur-
borg 60 milljónir til Vals vegna
þess að Valsmenn hf. hafa ekki
getað uppfyllt ákvæði um
greiðslur til Vals samkvæmt
samningi félaganna.
Samningurinn nú er sjöundi
samningur borgarinnar við Val.
Árið 2002 var samið um að félagið
léti hluta af erfðafestulandi sínu
af hendi og fengi tekjur af sölu
byggingarréttar fyrir 22.500 fer-
metra atvinnuhúsnæði í suðaust-
urhorni Hlíðarendareits.
Reykjavíkurborg tekur, sam-
kvæmt samningnum, yfir fjárhags-
skuldbindingar upp á 934,5 milljón-
ir króna, sem félagið endurgreiðir
á tveimur gjalddögum: sex og tólf
mánuðum eftir útgáfu nýrra þing-
lýstra lóðasamninga. - kóp
Seinagangur kostar
hundruð milljóna
Reykjavíkurborg þarf að greiða hundruð milljóna vegna tafa á deiliskipulagi
við Hlíðarenda. Ekki hefur tekist að ljúka framkvæmdum á svæði Knattspyrnu-
félagsins Vals. Valsmenn hf. hafa beðið lengi eftir því að selja byggingarrétt.
BRAD PITT
Vill skreppa út með
Sólveigu Anspach
FÓLK 34
HÆGVIÐRI Í dag verður hæg
breytileg átt. Bjart með köflum en
hætt við smáskúrum norðaustan
til. Hiti 8-17 stig, hlýjast til landsins
suðaustan til.
VEÐUR 4
8
12
14
16
12
Kostaði aleiguna
Hans Kristján Árnason
á opnunarmyndina á
Reykjavík Shorts&docs
sem fjallar um ævi
Sveins Kristjáns
Bjarnarsonar eða
Holger Cahill.
FÓLK 28
Klár í
slaginn
Eiður Smári er
fullur tilhlökkunar
að mæta Aserum á
morgun.
ÍÞRÓTTIR 30
VEÐRIÐ Í DAG
GULL, ÞAÐ ER SKÍRAGULL Kínverskir íþróttaáhugamenn ráða sér ekki fyrir kæti þessa dagana, eins og sést á þessari mynd sem
ljósmyndari Fréttablaðsins tók fyrir framan Ólympíusundhöllina í gær. Á fyrstu tíu dögum leikanna hafa Kínverjar unnið til 39
gullverðlauna. Þeir stefna á að slá met Bandaríkjamanna, sem unnu til 83 gullverðlauna á leikunum í Los Angeles árið 1984.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM