Fréttablaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 25
19. ÁGÚST 2008 ÞRIÐJUDAGUR 3
Einu sinni á
ágústkvöldi...
● Ef eitthvað hittir í hjartastað rómantískra sálna eru það
íslensk síðsumarkvöld þegar sólarlagið verður eldrautt, skýja-
slæðurnar fjólubleikar og ástleitnar hrossaflugur hnipra sig
saman í skímum ljóstíra þegar umvefjandi miðnæturrökkrið
gerir allt svo dimmt og allt svo hljótt. Þá er tíminn til að lifa
lífinu í stofunni heima. Njóta samveru, ástar, leikja og lífsfjörs.
Rómantískur kvöldverður á stofugólfinu er kitlandi skemmtun á fögru ágústkvöldi.
Matið hvort annað með fingrum eða prjónum, skálið fyrir ástinni og takið lífinu með
ró til að njóta samverunnar með því að horfa, hlusta og upplifa koddahjal á mjúkum
púðum. Ýta má síðan sófaborðinu til hliðar og nýta stofugólfið til að dansa.
MYNDIR/GETTY IMAGES
Snarkandi logar í arni kveikja bál í
hjörtum manna sem aðeins fást slökktir í
réttum félagsskap. Upplestur við arineld
er falleg gjöf elskenda og unaðsleg
upplifun þeirra sem lesa og á hlýða.
Tilhugalíf hefur alltaf tilheyrt
stofusófanum og eilíft verkefni meðal
elskenda er að halda neistanum á lífi.
Blátt áfram dásamlegt að kúra saman og
kela á meðan fuglar í fölnandi laufskrúði
tygja sig í háttinn.
Róandi gítarspil og angurvær
söngur íslenskra ástarkvæða skapar
ógleymanlegar stundir um sumarnótt í
stofunni.
Njótum samveru í stofunni
með því að ögra hvort öðru
í ástríðufullri skák. Sá sem
vinnur fær tylft franskra
kossa, hið minnsta.
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKA
R.TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
RKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PA
AFLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚK
R.TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
RKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PA
AFLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚK
RTEPPI PARKET DÚKAR FLÍSA... ... ... .
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR
AFLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚK
R.TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR
ÚTSALÞúsundir fermetra
af flísum með
20-70% afslætti
Gólfdúkar
25% afsláttur
Eik natur,
3ja stafa14mm
kr 3.490 kr/m 2
híbýli - stofa ● fréttablaðið ●