Fréttablaðið - 22.08.2008, Síða 60
40 22. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Í gær voru birtar niðurstöð-
ur í samkeppni um hönnun
húss fyrir Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum
fræðum. Alls bárust 19
tillögur. Fyrstu verðlaun
hlutu Hornsteinar arkitekt-
ar ehf.
Önnur verðlaun hlutu PK arkitekt-
ar ehf., arkitektar Pálmar Krist-
mundsson og Fernando de Mend-
onca, og þriðju verðlaun fengu VA
Arkitektar ehf., arkitektar þau
Þórhallur Sigurðsson og Harpa
Heimisdóttir. Auk þessara voru
þrjár tillögur keyptar. Formaður
dómnefndar, Sigríður Anna Þórðar-
dóttir, kynnti niðurstöðurnar og
menntamálaráðherra, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, Kristín Ing-
ólfsdóttir, rektor HÍ, og Vésteinn
Ólason, forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum, ávörpuðu gesti við
athöfnina í gær.
Forsendur
Í forsendum keppninnar var sagt:
„Byggingin skal vera vönduð og
fögur og njóta sín vel í umhverf-
inu. Húsið á að vera öruggur
geymslustaður þjóðargersema um
langa framtíð, handritanna sem
geyma íslenskar fornbókmenntir,
eddukvæði, sögur og fleira. Húsið
á að mynda hagkvæma og örvandi
umgjörð um þá fjölþættu starf-
semi sem þar fer fram: kennslu,
rannsóknir, fræðslu og þjónustu.
Þar á að vera góð sýningaraðstaða
þar sem vel er tekið á móti gest-
um, ótignum sem tignum, og gefin
skýr hugmynd um efnið sem
kynna á og þá virðingu sem það
nýtur. Mikilvægt er að nýjasta
tækni sé notuð til að tryggja
öryggi og árangursríkt starf.“
Vinningstillagan
Í umsögn dómnefndar segir svo
um vinningstillöguna: „Tillagan er
sérstæð og frumleg með sínu sjálf-
stæða og skýra sporöskjuformi,
sem er hóflega brotið upp með
útskotum og inndregnum svæð-
um. Hún er falleg, fínleg, yfirveg-
uð og myndar jafnframt sterkt
kennileiti sem fellur vel að
umhverfi. Byggingin stendur í
grunnri spegiltjörn og er lokuð
sem virki út á við en opin og ein-
læg inn á við. Að utan er hún
klædd málmhjúp með stílfærðum
afritum texta úr handritum, sem í
senn skreytir virkisveggina og
vekur forvitni um það sem býr
innan þeirra.
Gönguleið á milli Háskóla
Íslands og Þjóðarbókhlöðu er felld
inn í bygginguna. Aðlaðandi aðal-
aðkoma er um brú yfir litskrúð-
uga tjörn, sem ásamt ljósasúlum
með megingönguásnum umlykur
húsið og styrkir tengsl við
umhverfið.
Innra fyrirkomulag er almennt
mjög vel leyst. Bókasalur opnast
frá fyrstu til þriðju hæðar í til-
komumikla háa hvelfingu og teng-
ist þannig vinnustofum fræði-
manna, en utan hans blasir við
tjörnin og myndar hér eins konar
vík inn í húsið. Almenningsrými
eru einnig tengd forrými á 1. hæð
og kaffiterían, sem er andspænis
bókasal, mætir einnig vík úr tjörn-
inni. Kaffistofa á 3. hæð tengist
skjólgóðri verönd. Á 2. og 3. hæð
eru kennslu- og vinnurými tengd
lokuðum inni/úti-görðum. Skil-
greindar rýmisþarfir eru vel
leystar og gefa kost á margvísleg-
um sveigjanleika þrátt fyrir þétta
skipan. Sýningarsal handrita og
handritarannsóknum er hagan-
lega komið fyrir á 1. hæð.“
Forsaga
Frá árinu 1971 hafa íslensk hand-
rit, sem skilað var frá Danmörku
eftir langa vist þar í landi, verið
varðveitt í Árnagarði af stofnun
sem komið var á fót til að varð-
veita þau og rannsaka. Í sama húsi
hefur farið fram kennsla og rann-
sóknir í íslenskum fræðum. Árna-
garður var reistur í nokkurri
skyndingu af þjóð sem bjó við
óstöðugan og heldur bágborinn
efnahag, en hugmyndin var að
reisa síðar myndarlegri byggingu
yfir þessar þjóðargersemar í
tengslum við Þjóðarbókhlöðu eða í
næsta nágrenni. Árið 2006 voru
fimm stofnanir á sviði íslenskra
fræða sameinaðar í eina sem fékk
nafnið Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum, en árið áður
höfðu ríkisstjórn og Alþingi sam-
þykkt að verja einum milljarði til
að reisa hús á svæði Háskóla
Íslands yfir þessa starfsemi.
Nefnd sem menntamálaráðherra
skipaði árið 2007 vann þarfagrein-
ingu og samkeppnislýsingu um
hönnun húss fyrir Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum fræð-
um.
Margar tillögur
Ákveðið var að starfsemi íslensku-
skorar Háskóla Íslands yrði einn-
ig í húsinu sem risi á lóð A3 á
háskólasvæðinu, norðan Guð-
brandsgötu, vestan Suðurgötu.
Menntamálaráðherra skipaði
síðan dómnefnd í desember 2007
sem hafði það hlutverk að efna til
opinnar samkeppni um hönnun
húsnæðis Stofnunar Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum og
íslenskuskorar Háskóla Íslands, í
samvinnu við Arkitektafélag
Íslands.
Samkeppnislýsingin lá fyrir í
mars 2008 og var samkeppnin aug-
lýst á Evrópska efnahagssvæðinu
í byrjun þess mánaðar. Skilafrest-
ur tillagna var 12. júní 2008.
Nítján tillögwur bárust og voru
allar metnar. Innsendar tillögur
voru mjög fjölbreyttar og augljóst
að höfundar nálguðust viðfangs-
efnið af miklum metnaði og frum-
leika. Djarfar og skemmtilegar
hugmyndir birtast í mörgum til-
lögum þótt þær hafi ekki hlotið
verðlaunasæti eða verið valdar til
innkaupa. Á heildina litið telur
dómnefnd að niðurstöður sam-
keppninnar gefi góða mynd af
mögulegri uppbyggingu á lóðinni
og aðlögun að nærliggjandi bygg-
ingum. pbb@frettabladid.is
Nýtt hús fyrir Árnastofnun
„Devised“-vinnuaðferðin hefur
verið að ryðja sér til rúms hér-
lendis og verður sífellt meira
áberandi í íslensku leiklistarlífi.
Það er þó ekki fyrir óvana að vita
hvað liggur að baki orðinu.
„Devised“ vísar til vinnuað-
ferðar við gerð sviðslista þar
sem ekki er unnið með ákveðinn
texta og enginn eiginlegur höf-
undur er að verkinu. Flestir
leggja upp með grunnhugmynd
og leita þá að efni sem tengist
henni og skapa út frá því. Sem
dæmi má nefna Mind Camp, sem
sýnt var í Hafnarfjarðarleikhús-
inu, en þar lá til grundvallar
Beðið eftir Godot eftir Beckett. Í
verki Hreyfiþróunarsam-
steypunnar, Meyjarheftið, var
fengist við raunveruleikasjón-
varp, Opið út einbeitti sér að
móðurhlutverkinu í Mamma-
mamma og í Þú veist hvernig
þetta er, eftir Stúdentaleikhúsið í
stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar
var beint sjónum að Íslandi í dag.
Yfirleitt myndast bútar eða
atriði sem er svo raðað saman til
að mynda heildarmynd. Þá er
hlutverk leikstjórans, ef nokkur
er, frekar að vera listrænn
stjórnandi, að raða saman bútun-
um, en að túlka verk og draga
fram persónur í gegnum leikar-
ana.
Aðferðin hefur verið gagnrýnd
fyrir að skila af sér brotakennd-
um, sundurleitum verkum í stað
sögu eða faglegrar heildar. Þá er
textameðferð og leikur oft gagn-
rýndur, en mörg „devised“-verk
eru ekki leikin í hefðbundnum
skilningi, heldur koma leikendur
fram, „perform“. Aðferðin telst
mjög póst-módernísk og hefur
hún einkennt evrópskt leikhús
um langt skeið.
Meðal íslenskra leiklistar-
manna sem vinna „devised“ má
nefna Jón Pál Eyjólfsson, Ernu
Ómarsdóttur og Sokkabandið.
ArtFart hefur einnig einkennst
af „devised“-verkum og er engin
undantekning á því í ár. Ikea-
ferðir, Vituð ér enn eða hvað ...?,
DJ Hamingja og Augna-blik eru
allar unnar á þennan máta, svo
dæmi sé tekið. Þá er eitt verk
nemendaleikhússins ár hvert
„devised“, nú undir leiðsögn
Kristínar Eysteinsdóttur. Búast
má því við talsvert fleiri
„devised“ verkum, næstu ár.
- kbs
Brotakennd sýn
og illa leikið?
PARTAR OG HLUTAR Erna Ómarsdóttir
hefur mjög einkennandi stíl, en öll
hennar verk eru unnin „devised“.
Ríkisstjórn Íhaldsmanna í Kan-
ada hefur gengið hart fram í nið-
urskurði á fjárframlögum til
lista og menningar í sumar. Í
febrúar voru gerðar breytingar
á fjárframlögum til land-
sjóðs til styktar yfirfærslu
á gögnum yfir í stafrænt
form, gátt helgaðri menn-
ingarmálefnum,
rannsóknarstofn-
un um menning-
armálefni og
sjóði til styrktar
sjónvarpsefnis
fyrir frum-
byggja.
Áfram haldið
við niðurskurð í
apríl og þá voru
önnur prógrömm tekin
fyrir, tvenn sem tengd-
ust kvikmyndaiðnað-
inum.
Nú hefur ríkis-
stjórnin lýst yfir
vilja sínum til að
skera niður styrki
sem nemur nær 50
miljónum Kanada-
dala fyrir apríl
2010. Borgarstjórar Toronto og
Montreal hafa mótmælt niður-
skurðinum með stórum auglýs-
ingum í blöðum vestra.
Menningarstarf í Kanada
er ekki þekkt sökum ofríkis
stórra menningarstofnana
í hinum engilsaxneska
heimi austan og vestan-
hafs og sökum dálætis
fjölmiðla á því sem ger-
ist í Bretlandi eða
Bandaríkjunum.
Talsmaður ríkis-
stjórnarinnar
segir endurskoð-
un á styrkjum til
menningarstarfs
vera eðlilega. Ef sjóðir
standi illa undir nafni og
þjóni ekki tilgangi sé
eðlilegt að þeir séu lagð-
ir af.
- pbb
Skorið í Kanada
MENNING Celine
Dion mun kunnasti
kanadíski lista-
maðurinn hér á
landi
ATH kl. 20
Nýtt frumsamið tón- og dansverk flutt í
Gvendarbrunnum í kvöld; Draumar
eftir Einar Braga Bragason og Irmu
Gunnarsdóttur.
Mæting er kl. 20.00 við hlið
Gvendabrunna (við Rauðhóla), rétt við
borgarmörkin.
BYGGINGARLIST Starfsfólk Hornsteinar arkitektar ásamt menntamálaráðherra, rektor Háskóla Íslands, formanni dómnefndar og
forstöðumanni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. MYND: HÁSKÓLI ‚ISLANDS/KRISTINN INGVARSSON
BYGGINGARLIST Vinningstillaga um nýtt hús fyrir stofnun Árna Magnússonar eftir þau Ögmund og Ragnhildi Skarphéðinsbörn
og Ólaf Hersisson.