Fréttablaðið - 27.08.2008, Síða 2
MARKAÐURINN 27. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Ég býst við því að framleiðslugeta
eigi eftir að aukast og það hefur í
för með sér frekari fjárfestingar á
Íslandi,“ segir Gerd Maass, forstjóri
Roche NimbleGen.
NimbleGen hefur starfað hér á landi
um árabil. Það framleiðir meðal ann-
ars örflögur til líftæknirannsókna og
sinnir þjónusturannsóknum með ör-
flögutækni. Fyrirtækið var stofnað í
Bandaríkjunum fyrir tæpum áratug og
þar eru höfuðstöðvar þess. Svissneski
lyfjarisinn Roche keypti félagið fyrir
sem svarar um sautján milljörðum ís-
lenskra króna í fyrra. Um 80 þúsund manns starfa
hjá Roche víða um heim.
Um 75 manns starfa hjá NimbleGen hér á landi,
um þriðjungur starfsmanna fyrirtækisins í heild.
Maass vill ekki slá neinu föstu um hversu marg-
ir verði fengnir til liðs við Nimble Gen hér á næst-
unni. „Við kynnum að auka rannsóknir og þróun í
tengslum við starfsemina hér á landi,“ segir Maass
og vísar þar meðal annars til þess að félagið vilji
gjarnan starfa meira með háskólasamfélaginu hér.
Hann bætir því við að hann sé bjartsýnn varðandi
áframhaldandi vöxt fyrirtækisins.
En hefur félagið skilað hagnaði? „Hingað til hefur
þetta verið fjárfesting, en við gerum ráð fyrir því
að rekstur NimbleGen fari að skila hagnaði á næstu
tveimur til þremur árum.“
Í heildina nemur fjárfesting Roche í NimbleGen
hingað til um 24 milljörðum íslenskra króna, miðað
við núverandi gengi.
Í grunninn gengur rekstur Roche
vel, þrátt fyrir efnahagsástandið, segir
Maass. Félagið sé í raun að horfa til
framtíðar með fjárfestingum í félögum
eins og NimbleGen. „Tækni af þessu
tagi á eftir að auka virkni lyfja þegar
fram í sækir.“ Þá sé markaður fyrir
framleiðsluvörur NimbleGen mikill og
vaxandi. Örflögur NimbleGen eru not-
aðar til rannsókna í erfðafræði, læknis-
fræði og lyfjafræði. Vörur fyrirtækis-
ins eru seldar víða um heim.
Maass segir að lítil fyrirtæki eins og
NimbleGen séu Roche ákaflega mik-
ilvæg. Mörg slík fyrirtæki séu undir
regnhlíf Roche. „Fólk sem starfar í
fyrirtækjum af þessu tagi á ef til vill í framtíð-
inni möguleika á að þroska sig frekar í starfi innan
Roche-samstæðunnar annars staðar í heiminum.“
Fyrirtækjum í líftækni hefur ekki öllum geng-
ið vel. DeCode hefur til að mynda farið í gegnum
margar sveiflur, en Roche fjárfesti í félaginu á
sínum tíma; raunar er sú fjárfesting alveg ótengd
fjárfestingunni í Nimble Gen, að því er kunnugir
fullyrða. Er líftækniiðnaðurinn ef til vill ekki jafn
arðvænlegur og lagt var upp með? „Sum félög hófu
starfsemi mjög snemma, jafnvel of snemma. Mark-
aðurinn hefur hins vegar ekki tekið jafnhratt við
sér. Roche hefur dreift áhættunni og það má segja
að við stöndum á þremur stoðum í þessu efni, því
stöndum við vel að vígi. Í viðskiptum af þessu tagi
þarf að skoða mjög vel þarfir viðskiptavinarins og
markaðarins og haga rannsóknum og þróun í sam-
ræmi við það.“
NimbleGen eykur
umsvif hér á landi
Svissneski lyfjarisinn Roche hefur fjárfest sem svarar 24
milljörðum króna í líftæknifyrirtækinu NimbleGen.
GERT MAAS, FORSTJÓRI
ROCHE NIMBLEGEN
MARKAÐURINN/ANTON
G E N G I S Þ R Ó U N
Fjárfestingarfélagið Atorka
Group tapaði rétt rúmum tveim-
ur milljörðum króna á öðrum
ársfjórðungi samanborið við
þriggja milljarða króna hagnað
á sama tíma í fyrra.
Greiningardeild Glitnis segir
afkomuna lítillega undir vænt-
ingum. Það litist af lækkun á
skráðu eignasafni félagsins. At-
orka hafi greitt niður skuldir og
dregið úr framleiðslukostnaði,
sem hafi gert fyrirtækinu kleift
að halda uppi framlegð í erfiðu
árferði. - jab
Atorka við
væntingar
VBS fjárfestingabanki tapaði
rúmlega 870 milljónum króna
eftir skatt á fyrri helmingi árs-
ins, samanborið við 1,1 milljarðs
hagnað á sama tíma í fyrra. Eigið
fé er um 7,1 milljarður og eigin-
fjárhlutfall 16,9 prósent. Bankinn
færði varúðarfærslu sem nemur
765 milljónum vegna mögulegrar
virðisrýrnunar útlána.
Jón Þórisson, forstjóri VBS,
bendir á að afrakstur af grunn-
starfsemi bankans sé góður.
„Ánægjulegt er að sjá að þekk-
ing og reynsla starfsmanna VBS,
hefur tryggt tekjustraum bankans
þrátt fyrir öflugan mótvind, ekki
síst á fasteignamarkaði. Við gerð
uppgjörsins var lögð rík áhersla á
að vanmeta ekki það tjón sem að-
stæðurnar geta valdið bankanum,
svo sem við mat á virðisrýrnun
útlána og mat á virði hlutabréfa,“
segir hann. - ghh
Afkoma VBS versnar
Níunda bankagjaldþrot ársins
varð í Bandaríkjunum á föstu-
dag þegar Columbian Bank and
Trust Company var lokað. Bank-
inn, sem er með höfuðstöðv-
ar í Kansas, er tiltölulega lít-
ill á bandarískan mælikvarða,
en eignir hans námu rúmlega
62 milljörðum króna. Bankinn
hafði tapað miklu á fasteignalán-
um og í vikunni brast flótti í við-
skiptavinahóp hans.
Samkvæmt Tryggingasjóði
innstæðueigenda (FDIC) hafa
stjórnvöld nánar gætur á um
níutíu bönkum. - msh
Bankagjaldþrot í Kansas
Vika Frá ára mót um
Alfesca -1,5% -3,5%
Atorka -5,9% -48,1%
Bakkavör -5,8% -53,9%
Exista -12,0% -60,8%
Glitnir -1,3% -30,1%
Eimskipafélagið 0,0% -59,2%
Icelandair 5,9% -28,5%
Kaupþing -1,0% -19,8%
Landsbankinn -0,8% -32,8%
Marel -1,6% -15,5%
SPRON 1,4% -61,1%
Straumur -1,6% -37,9%
Teymi 39,6% -61,4%
Össur 0,0% -7,6%
*Miðað við lokagengi í Kauphöll í gær.