Fréttablaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 7
MARKAÐURINN 15MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008
S K O Ð U N
O R Ð S K Ý R I N G I N
„Jaðarlán“, eða Alt-A lán eru
flokkur bandarískra fasteigna-
lána sem uppfylla ekki ströng-
ustu kröfur fasteignalánasjóð-
anna Fannie Mae og Freddie
Mac, (A-grade) en teljast þó
ekki til undirmálslána, eru
„alternative-A-grade“.
Ástæðan er yfirleitt sú að
tekjur eða lántakandi fór ekki
í gegnum strangt greiðslumat,
eignir eða tekjur ekki staðfest-
ar, eða lánshlutfall er meira
en 80 prósent af kaupverði. Þá
falla fasteignalán til útlend-
inga yfirleitt í þennan flokk.
Verst jaðarlánanna eru kölluð
„ninja“ lán, sem er skamstöf-
un fyrir „No Income, No Job
[no] Assets“, og voru veitt lán-
takendum með góða greiðslu-
sögu, en sem gátu ekki sýnt
fram á tekjur, eignir eða fasta
atvinnu.
Á undanförnum árum gengu
greiningardeildir út frá því
að jaðarlán, sem vega þungt
á veðbókum margra banda-
rískra fjármálastofnana, væru
mun öruggari en undirmáls-
lán. Það er þó áhyggjuefni að
á sama tíma og undirmálslána-
kreppan virðist vera í rénum
lítur út fyrir að afskriftir af
jaðarlánum séu í hröðum vexti
í Bandaríkjunum.
Alt-A lán eða „jaðarlán“
Málefni Sparisjóðs Mýrasýslu
(SPM) voru töluvert í umræð-
unni í liðinni viku. Fjölmennur
fundur var haldinn með íbúum
í Borgarnesi vegna stöðu sjóðs-
ins. Gísli Kjartansson hefur
verið sparisjóðsstjóri SPM frá
árinu 1999.
„Gísli er ljúfur og góður yfir-
maður. Hann er auk þess mjög
góður samningamaður,“ segir
samstarfsmaður um Gísla.
Hann er giftur Eddu Jóns-
dóttur og á með henni tvö börn.
Edda starfar á lögmannsstofunni
sem Gísli stofnaði og starfaði
hjá þar til hann tók við störfum
hjá SPM árið 1999.
Helsta áhugamál Gísla er
bókalestur auk þess sem hann
reynir að spila golf af og til.
Gísli er fæddur árið 1944. Lauk
embættisprófi frá lagadeild Há-
skóla Íslands árið 1971. Héraðs-
dómslögmaður 1980 og löggiltur
fasteignasali 1984. Hann var
fulltrúi sýslumanns í Borgarnesi
1971-1984. Hann rak síðan sína
eigin lögmannsstofu og fast-
eignasölu í Borgarnesi á árunum
1984 til ársins 1999.
Hann hefur setið í aðal- og
varastjórnum fjölmargra félaga,
svo sem Kaupþings banka, VBS
fjárfestingabanka, Sparisjóðs
Ólafsfjarðar, Sparisjóðs Siglu-
fjarðar og Sparisjóðs Skaga-
fjarðar.
Gísli hefur setið í stjórn Sam-
bands íslenskra sparisjóða frá
árinu 1999 og formaður frá
2005.
Hann sat í sveitarstjórn
Borgarness fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn á árunum 1982 til 2000
og þar af sem oddviti sveit-
arstjórnar 1982-1986. Auk þess
var hann formaður yfirkjör-
stjórnar Vesturlands 1987-2003.
Hann var kjörinn varamað-
ur í bankaráð Icebank árið 2002
og hefur verið aðalmaður síðan
2007.
Guðný Helga Herbertsdóttir
skrifar
Óskari Jónssyni, forstjóra Green
Diamond, datt í hug að framleiða
harðkorna skósóla í kjölfar þess
að Ólafur Jónsson í Nýiðn hóf
framleiðslu á harðkorna dekkj-
um. Óskar hóf þróun á verkefn-
inu árið 2000 sem leiddi til þess
að hann vann nýsköpunarverð-
launin á Íslandi og Evrópuverð-
launin árið 2003 í Belgíu. Þremur
árum síðar kom Árni Þór Árna-
son að verkefninu sem fjárfest-
ir og fyrir rúmu ári bættist fjár-
festingarfélagið Kjalar í hópinn.
„Í Kína eru árlega framleidd 10
milljarðar skópara en 70 prósent
allrar skóframleiðslu eru í Suður-
Kína. Ég fór því út einn míns
liðs og vann að uppsetningunni
á verksmiðjunni. Í dag erum við
með 2.400 fermetra verksmiðju
og 35 manns í vinnu,“ segir
Óskar. Verksmiðjan er í Zhong-
shan og framleiðir harðkorna sóla
og sprautusteypta plastinn sóla
sem fyrirtækið hefur einkaleyfi
á í Asíu. „Fyrsti viðskiptavin-
ur okkar var Cintamani en núna
erum við í þróunar verkefnum
með Adidas, Nike, Timberland
og Lacross. Auk þess framleið-
um við alla innsóla í dömuskó
frá Ecco.“ Green Diamond hefur
nýlega gert samning við Ecco
um framleiðslu á 5 milljónum
para á næstu þremur árum. „Við
höfum fengið til liðs við okkur
undirverktaka þannig að heildar-
framleiðslugeta okkar gæti verið
30 til 40.000 pör á dag. Í fram-
tíðinni geri ég mér vonir um
að við munum bæta við fleiri
vélum þannig að framleiðslu-
getan okkar gæti mögulega farið
upp í 100.000 pör á dag.“ Óskar
er bjartsýnn á framhaldið þrátt
fyrir að framleiðslukostnaður í
Kína hafi aukist um 50 prósent
á síðustu 3 árum í kjölfar nýrrar
vinnulöggjafar, hækkandi bensín-
verðs og veikingar dollarans. „Ég
held að Kínverjar muni fram-
leiða enn meira eftir 5 til 10 ár.
Kínverjarnir eru snjallir kaup-
sýslumenn og hafa skapað sér
dýrmæta þekkingu auk þess sem
innanlandsmarkaður í Kína fer
ört stækkandi.“
Landvinningar í Kína
Verksmiðja framleiðir harðkorna skósóla. Sú eina
í Kína sem er að fullu í eigu Íslendinga.
FRAMLEIÐSLA Verksmiðjan er í Zhongshan í suðurhluta Kína. Hún er 2.400 fermetrar að
stærð. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND MYND
ÓSKAR JÓNSSON Trúir því að Kína fram-
leiði enn meira af skóm eftir 5 til 10 ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/A
FP
ÁTAKAFUNDUR UM SPM Um miðjan mánuðinn
sátu forsvarsmenn Borgarbyggðar, auk sparisjóðs-
stjóra og stjórnarformanns SPM, fyrir svörum á hita-
fundi í Borgarbyggð.
MYND/SKESSUHORN, MAGNÚS MAGNÚSSON
S A G A N Á B A K V I Ð . . . G Í S L A K J A R T A N S S O N S P A R I S J Ó Ð S S T J Ó R A
Sparisjóðsstjóri í ólgusjó
7