Fréttablaðið - 27.08.2008, Side 8
3,9% 3,1% 14,8%er ný spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um hagvöxt í heiminum á þessu ári. Lækkunin nemur 0,2 prósentustigum. er aukning á sölu fasteigna í Bandaríkjunum í júlí. Salan náði tíu ára lágmarki í júní. Íbúðaverð hefur lækkað um 7,1 prósent. er spá Greiningar Glitnis um verðbólgu í ágúst, en það er 1,2 prósenta hækkun frá því í júlí.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Sigur íslenska
hand boltalandsliðs-
ins á Spánverjum á
Ólympíuleikunum í
Peking setti mark sitt
á íslenskt atvinnulíf
á föstudag. Agnari
Hanssyni, banka-
stjóra Ice bank,
var um og ó eftir
sigurinn og sagð-
ist enn vera
að jafna sig
eftir leik-
inn þótt á
þriðja tíma væri liðinn frá leiks-
lokum og þar til hann kynnti
árshlutauppgjör bankans síðar
sama dag. Spennan kom hvað
skýrast fram í framtíðaráhersl-
um bankans í fundarlok. Þar
var ekkert fjallað um horfur í
rekstri bankans. Aðeins eitt orð
stóð á plagginu: Ólympíugull?
Allir vita hvernig leikar fóru.
Ólympíugull
Fyrirætlanir borgaryfirvalda í
San Francisco um að auka reið-
hjólanotkun hafa óvænt siglt
í strand. Ástæðan er sú að 65
ára sérvitringur, Rob Anderson
nokkur, hefur fengið staðfest-
ingu dómstóla á því að fyrirætl-
anir borgarinnar þurfi að fara í
„heildstætt umhverfismat“.
Borgaryfirvöld höfðu einsett
sér að auka reiðhjólanotkun
um tíu prósent fyrir árið 2010,
meðal annars með lagningu
fjölda nýrra hjólastíga, en þær
fyrirætlanir hafa nú verið sett-
ar í salt. Rök Andersons gegn
aukinni reiðhjólanotkun eru
þau að fyllist götur borgarinn-
ar af hjólreiðamönnum muni
það hægja á umferð og leiða til
umferðartafa,
og þar með
auk-
innar
meng-
unar.
Hjólreiðar í
umhverfismat
Mánudagurinn var heldur
dapur á mörkuðum víðast hvar
um heiminn. Hér á klakanum
var troðinn marvaðinn í örfá-
um viðskiptum, en á lokamínútu
var deginum forðað frá því að
vera sá veltuminnsti á þessu ári
þegar inn duttu nokkur viðskipti
með hlutabréf Landsbankans
og Kaupþings upp á samtals
um sextíu milljónir. Athygli
vakti hins vegar snörp hækkun
Teymis. Tvenn viðskipti áttu sér
stað með félagið, þau fyrstu upp
á tæpar 5.000 krónur, og hækk-
uðu gengi þess um tæp sextán
prósent um hádegisbil. Korter
yfir þrjú hefur svo væntanlega
einhver smærri fjárfestir séð
tækifæri í þessari miklu hækk-
un og keypti fyrir tæpan 45.000
kall þannig að hækkun dagsins
endaði í tæpum fjörutíu pró-
sentum.
Stokkið á
glóandi gull
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
N
A
T
4
32
63
0
8/
08
Hvers vegna PwC?
Þekkingarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi og leiðandi á alþjóðavettvangi.
Endurskoðun Fyrirtækjaráðgjöf Skatta- og lögfræðiráðgjöf
Reykjavík - Akureyri - Húsavík - Selfoss - Reykjanesbær www.pwc.com/is
*connectedthinking