Fréttablaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 68
40 29. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
>NÝJASTA NÝTT
Ný fegrunarmeðferð nýtur nú mikilla vin-
sælda í Bandaríkjunum, en þar spila litl-
ir fiskar stóra rullu. Fótum með harðri og
óásjálegri húð er dýft í vatnsbala með
svöngum fiskum, sem narta í tærnar þar
til harða húðin er horf-
in og eftir eru mjúk-
ir og fínir fætur. Búist
er við því að innan
skamms verði boðið
upp á sambærilegar
meðferðir fyrir líkam-
ann allan.
Lohan-fjölskyldan er í
uppnámi eftir að Michael
Lohan, faðir leikkonunnar
góðkunnu, talaði við fjöl-
miðla um óánægju sína með
Samönthu Ronson. Hann
heldur því fram að hún sé
„að nota“ Lindsay.
Michael Lohan, föður leikkonunnar
Lindsay Lohan, hefur enn einu sinni
tekist að reita dóttur sína til reiði.
Hann lýsti því nýlega yfir að hann
hefði miklar áhyggjur af sambandi
hennar og Samönthu Ronson og
sagði plötusnúðinn vera að nota
Lindsay. Michael heldur að Sam-
antha ætli sér að gefa út einhvers
konar ævisögu og selja þar með
söguna af ástarsambandi sínu og
Lindsay.
„Ég er að missa vitið yfir þessu.
Þetta kemur Lindsay ekki vel. Við
skulum bara segja að ég vona að
Lindsay fari að opna augun og átta
sig á því hvert fólkið sem er að nota
hana er,“ sagði Michael, sem ásak-
ar Samönthu einnig um að halda
víni að dóttur hans – sem á að vera
edrú eftir að hafa farið í með-
ferð í fyrra. „Samantha drekk-
ur og réttir Lindsay drykki
undir borðið. Á bak við tjöldin
versnar þetta bara og versn-
ar,“ segir Michael.
Lindsay var fljót að vísa
ummælum föður síns á bug.
„Hann er stjórnlaus.
Ég vil að hann hætti
að særa og tala við
fjölmiðla um fólk-
ið sem ég elska,“
sagði leikkonan í viðtali við
Access Hollywood. Á
Myspace-síðu sinni er hún
enn ákveðnari og segir pabba
sinn verða sér til skammar
og vera eineltisseggur „við
fjölskyldu mína, sam-
starfsfólk mitt, vini
mína og stelpu
sem er mér allt.
Það er augljóst
hver það er“,
skrifar leikkon-
an.
„Hann hefur
ekki hugmynd
um hvað er í
gangi í lífi
mínu því ég
hef valið að
hafa hann ekki hluta
af því. Þessi nýja
árás hans á líf mitt og ástvini mína
er bara út af fíkn sem hann hefur –
frægð,“ segir Lindsay og heldur
áfram: „Ef hann væri í alvörunni að
hugsa um mig og líf mitt myndi
hann læra að virða óskir mínar og
halda sig frá því.“
Samantha er ekki heldur par
hrifin af ásökununum, eins og
kemur í ljós á nýrri færslu hennar
á blogginu.
„Ég er ekki ástæðan fyrir því að
hann og dóttir hans eru ekki í sam-
bandi, það er hann,“ skrifar Sam-
antha, sem kveðst ekki hafa nein
áform um að skrifa bók. „Ég er ekki
manneskjan sem er svo týnd að ég
þurfi að nota samband mitt við
Lindsay til að hafa í mig og á … ég
er, mun alltaf vera og hef alltaf
verið til staðar fyrir hana, ekkert
annað,“ segir Samantha.
Lohan-fjölskyldan tekst á
ÁHYGGJUFULLUR
Michael Lohan
kveðst bera hag
dóttur sinnar fyrir
brjósti og óttast að
Samantha sé að nota
hana.
Skólavörðustígurinn verður aftur undir-
lagður af tískusýningardömum á morgun,
en í þetta skiptið er það sýningin Stígurinn
sem þar fer fram. Það er samstarfsverkefni
hárgreiðslustofunnar 101 Hárhönnun og tísku-
hússins ER við Skólavörðustíg. Þá mun Þór-
hildur Ýr Jóhannesdóttir sýna hönnun sína
undir nafninu Tóta Design. Hár fyrirsætnanna
verður í höndum starfsfólks Hárhönnunar
101, sem notar hárvörur frá Aveda til að skapa
haustgreiðslurnar.
„Við erum að halda sýninguna í þriðja
skiptið í ár og lokum Skólavörðustígnum
eins og í fyrra. Núna ætlum við hins vegar
að breyta aðeins til og fáum hljómsveitina
Sometime til að spila fyrir gesti og gang-
andi og leika undir sýningunni,“ útskýrir
Þórhildur, sem er iðulega kölluð Tóta. Tísku-
sýning undir berum himni hefur í för með sér
ýmsar áhættur og getur verið erfið í fram-
kvæmd ef veður er slæmt, eins og raunin var
á menningarnótt. „Það var búið að spá rign-
ingu á morgun, en spáin hefur verið að breyt-
ast og lítur mjög vel út núna,“ segir Tóta
fegin.
„Það á jafnvel að vera sól og allt að fimmtán
stiga hiti. Ef veðrið bregst okkur erum við
með b-áætlun, en við notum hana ekkert, það
verður bara að vera brjálæðislega gott veður,“
segir hún ákveðin og hlær við.
Fötin frá Tóta design munu fást á Hárhönn-
un 101. Sýningin á laugardag hefst klukkan 16
og eru allir velkomnir. Bakkus býður gestum
og gangandi upp á fljótandi veitingar í tilefni
dagsins. - sun
Tískusýning á Skólavörðustíg
VONAST EFTIR GÓÐU VEÐRI Þórhildur Ýr Jóhann-
esdóttir er ein þeirra sem standa fyrir tískusýningu
undir berum himni á Skólavörðustígnum á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÓSÁTTAR Lindsay segir pabba sinn vera stjórnlausan og Samantha vísar því á bug að
hún hyggist skrifa bók um lífið með Lindsay. NORDICPHOTOS/GETTY
Móðir leikarans Matthew McCon-
aughey, Kay, hefur sent frá sér
sjálfsævisöguna I Amaze Myself.
Þar talar hún meðal annars um
það þegar eiginmaður hennar og
faðir Matthews lést í miðjum ást-
arleik þeirra hjóna.
„Á mánudagsmorgnum kvödd-
umst við oft með því að njóta ásta.
En einn daginn, allt í einu, gerðist
það. Ég vissi að eitthvað var að
því ég heyrði ekkert frá honum.
Ekki neitt. En það var besta leiðin
til þess að kveðja!“ skrifar Kay,
sem kveðst hafa verið afar stolt af
eiginmanni sínum og öllum lík-
amshlutum hans. „Ég gekk úr
skugga um að hann væri nakinn
þegar þeir sóttu hann því ég var
bara svo stolt að sýna minn stóra,
fallega Jim McConaughey og gjöf-
ina hans,“ skrifar Kay, sem grein-
ir einnig frá því að Matthew hafi
komið undir skömmu eftir að hún
og Jim giftu sig í þriðja skiptið.
„Ég var að reyna að ákveða mig.
Vildi ég annað barn? Vildi ég
halda fram hjá? Eða fara aftur í
skólann? Þá kom Matthew undir.
Við höfðum reynt í 16 ár og ekkert
barn, svo Matthew kom okkur á
óvart!“ skrifar móðirin.
Matthew hefur reyndar sjálfur
sagt að þegar hans tími komi vildi
hann gjarnan fá að fara sömu leið
og faðir hans. „Ég get ekki ímynd-
að mér betri leið,“ segir leikar-
inn.
Vill fara eins og pabbi