Fréttablaðið - 04.09.2008, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 04.09.2008, Blaðsíða 69
FIMMTUDAGUR 4. september 2008 49 Breska hljómsveitin Tindersticks heldur tón- leika á Nasa 11. september næstkomandi Af því tilefni sló Trausti Júlíusson á þráð- inn til söngvarans Stuart Staples sem var staddur á heimili sínu í Limousin í Frakklandi. Hljómsveitin Tindersticks var stofnuð árið 1992 í Nottingham í Englandi. Hún vakti snemma athygli og var fyrsta platan henn- ar Tindersticks sem kom út 1993 meðal annars valin plata ársins af blaðamönnum Melody Maker og Nick Cave bauð Tindersticks á tónleikaferð með sér. Næstu plöt- ur þóttu sömuleiðis frábærar. Árið 2003 dró sveitin sig hins vegar í hlé og Stuart Staples einbeitti sér að sólóferli, en svo komu Tinder- sticks mörgum að óvörum með nýja plötu í vor. Ég spurði Stuart fyrst út í þessa endurkomu: „Þegar við ákváðum að hætta 2003 þá var það augljóst að við þurftum að taka okkur hlé. Ég var með tvær litlar hugmyndir sem mig langaði að framkvæma og þær urðu að þessum tveimur sóló- plötum. Lucky Dog Recordings var litla tilraunakennda platan og Leavings Songs var „singer- songwriter“ platan. Ég var eigin- lega búinn að klára þann pakka með þeim og það var ekkert sér- stakt fram undan. Við ákváðum að prófa að búa til tónlist saman aftur, en það var aldrei sest niður og sagt: Nú endurvekjum við sveitina. Þetta gerðist í litlum skrefum, en það gerðist frekar hratt.“ Nýja platan ykkar, The Hungry Saw, kom út í apríl lok. Var auð- velt að gera hana? „Ég held að það eigi aldrei að vera auðvelt að búa til plötu, en það var gott flæði í gangi. Við ákváðum líka að við ætluðum ekki að streða við hana og þetta gekk mjög vel. Hljóðritunin sjálf tók ekki nema átta daga, ef hún hefði tekið lengri tíma þá hefði verið eitthvað að.“ Áhrifamikil sveit Tindersticks vakti á sínum tíma athygli fyrir dálæti sitt á gamal- dags upptökuaðferðum og óvenju- legri hljóðfæraskipan. Sveitin notaði til dæmis fiðlu, klukkuspil, víbrafón og blásturshljóðfæri eins og fagott og klarinett. Í dag eru þessi sömu hljóðfæri vinsæl meðal ungra tónlistarmanna og margir þeirra velja líka að taka upp með gömlu aðferðinni. Ég spyr Stuart hvort þetta sé ekki sönnun þess að Tindersticks hafi haft umtalsverð áhrif. Hann hlær við: „Ég veit það ekki. Ég eyði nú ekki tíma mínum í að velta því fyrir mér, en það er rétt að tón- listin hefur verið að breytast og sérstaklega yngri tónlistarmenn hafa verið að þróast frá því að nota tölvur sem er gott mál. Við höfum alltaf trúað á snertinguna við alvöru hljóðfæri og ef við eigum einhvern örlítinn þátt í þessari þróun þá fagna ég því.“ Það eru fimmtán ár síðan fyrsta Tindersticks-platan kom út. Á þeim tíma hefur plötuútgáfu- bransinn breyst mikið. Hvað finnst þér um stöðuna í dag. Notar þú sjálfur MP3-skrár mikið þegar þú hlustar á tónlist? „Ég reyni að ná í plötur á vínyl ef það er möguleiki, en ég er líka hrifinn af MP3 til dæmis ef ég er í bílnum eða eldhúsinu. Það góða við þetta er þetta aukna aðgengi að tónlist. Það er stórkostlegt. Vandamálið er að tónlistarmenn fá ekki greitt fyrir vinnu sína. Aðaláskorunin í dag er að finna leið til þess þar sem það eru áhugaverðustu tónlistarmennirn- ir sem selja ekki glás af plötum sem verða helst fyrir barðinu á niðurhali.“ Lög frá öllum ferlinum Er þá kannski mikilvægara að spila á tónleikum nú en áður? „Við höfum alltaf verið stór hljómsveit og erum enn stærri í dag en áður þannig að hjá okkur er þetta bara spurning um hvað við höfum efni á að hafa marga með á sviðinu. En það hefur alltaf verið mjög mikilvægt fyrir okkur að spila á tónleikum.“ Í framhaldinu spyr ég hann hvað það verði margir á sviðinu á Nasa. Hann segir mér að það verði sjö eða átta og að sveitin muni spila efni frá öllum ferlin- um. Ég spyr hann hvernig tón- leikaferðin hafi gengið það sem af er: „Þegar við byrjuðum árið höfð- um við ekki spilað neitt í fimm ár þannig að við vissum ekki hvort fólk mundi yfirleitt koma á tón- leikana okkar. Það hefur hins vegar gengið frábærlega hingað til og móttökurnar hafa virkilega komið okkur á óvart. Það er engu líkara en að einhverjir hafi sakn- að okkar!“ Ég segi honum að það sé nú ekki spurning og spyr hann að lokum hvernig honum lítist á að vera að koma til Íslands? „Jú, þetta er í fyrsta skipti og við erum mjög spenntir. Fyrir okkur sem búum í Evrópu hefur Ísland yfir sér leyndardómsfull- an blæ og það verður gaman að upplifa það í raun og veru og bera saman við hugmyndirnar sem maður hefur.“ Einhverjir virðast hafa saknað okkar TINDERSTICKS Ætla að spila öll sín þekktustu lög á Nasa 11. september. LJÓSMYND/RICHARD DUMAS STUART STAPLES Söngvari Tindersticks er spenntur fyrir því að koma til Íslands. Tindersticks 1 (1993) Tindersticks 2 (1995) Curtains (1997) Simple Pleasures (1999) Can Our Love... (2001) Waiting for the Moon (2003) The Hungry Saw (2008) PLÖTULISTI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.