Fréttablaðið - 05.09.2008, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 05.09.2008, Blaðsíða 52
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 6.23 13.26 20.28 Akureyri 6.03 13.11 20.17 Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Í dag er föstudagurinn 5. september, 249. dagur ársins. Þegar þetta er skrifað hefur enn ekki samist í deilu ljósmæðra og ríkisins, og fátt bendir til að það eigi eftir að breytast á næstu dögum. Ljósmæður byrja á tveimur tveggja daga verkfalls- lotum áður gripið verður til alls- herjarverkfalls í lok mánaðarins. Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir að vegna efnahagsþrenginga sé erfitt að hækka laun ríkisstarfs- manna. Hann sagði þó á Alþingi að hann vonaði að samningar tækjust „áður en til verkfalls eða raun- verulegrar hörku kæmi“. ÉG klóraði mér dálítið í hausnum þegar ég heyrði þetta síðasta. „RAUNVERULEGRAR hörku.“ Hverju á fjármálaráðherra eigin- lega von á? Og hvaða ráðstafanir hefur ríkisstjórnin gert til að bregðast við því? Að vísu verður að hafa í huga að í ljósi mótmæla- aðgerða vörubílstjóra fyrr í vor getur Árni ekki leyft sér að útiloka neitt; hver veit nema ljósmæður brúki sömu skæruliðataktík og Sturla Jónsson og félagar; stöðvi umferð, lemji löggur og kasti eggj- um? ÞÓTT eggjakast væri reyndar pínulítið viðeigandi í þetta sinn eru reyndar litlar líkur á að það verði raunin eða að Árni og félagar haldi það; viðbrögð ríkisstjórnarinnar hafa hingað til verið frekar tóm- lætisleg, líkt og að á stjórnarheim- ilinu skynji menn ekki að margir upplifa verkfall ljósmæðra hrein- lega sem áfellisdóm yfir þjóðfélagi sem vill kenna sig við velferð. ÓNEITANLEGA fær maður á til- finninguna að ríkisstjórninni, að minnsta kosti körlunum í ríkis- stjórninni, leiðist þetta mál dálítið, finnist það hálfgert húmbúkk. Við getum tekið sem dæmi að þrír ráð- herrar, Össur Skarphéðinsson, Einar K. Guðfinnsson og Björn Bjarnason, halda úti bloggsíðum. Allir blogguðu í gær og fyrradag – Össur um eigin mælsku og olíuleit, Einar um efnahagsaðgerðir og Björn um dópfund og evru. Sem segir svo sem ekki neitt um afstöðu þeirra gagnvart kröfum ljósmæðra, en bendir ekki til að þetta mál brenni neitt sérstaklega á þeim. ÞAÐ er reyndar farið að vera eitt helsta kennimark á ríkisstjórninni sem nú situr við völd; henni virðist brenna sárafátt fyrir brjósti, heldur skákar í skjóli þess að við núverandi aðstæður virðast flestir telja að hún sé illskásti kosturinn. Af hverju tekur hún nú ekki af skarið og sýnir að eitthvað búi þar að baki? Ljósmæður í myrkrinu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.