Fréttablaðið - 07.09.2008, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 7. september 2008 7
Forstöðumaður
Suðurbæjarlaugar
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða forstöðumann til að sinna
rekstri Suðurbæjarlaugar í Hafnarfi rði. Suðurbæjarlaug er
25m útilaug, innilaug, eimböð, rennibrautir, heitir pottar,
búningsklefar og heilsurækt. Aðsókn að lauginni er um
270 þúsund gestir á ári og starfsmenn laugarinnar eru um
12 talsins. Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri
og starfsemi Suðurbæjarlaugar í Hafnarfi rði, notkun og
nýtingu hennar, samskiptum við notendur og þjónustu-
aðila laugarinnar og annast markaðs- og kynningarmál.
Helstu verkefni
• Ábyrgð á öllum rekstri og þjónustu
• Stjórnun starfsmannamál
• Öryggismál og þjálfun starfsfólks
• Fjárhagsáætlunargerð
• Umsjón og eftirlit með aðstöðu tilheyrandi tækjabúnaðar
• Skipulagning og samskipti við notendur og þjónustuaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
• Reynsla af rekstri og stjórnun æskileg
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum áskilin
• Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
er skilyrði
• Áhugi á íþróttum og heilsurækt er kostur
Um kaup og kjör fer samkvæmt samningum viðkomandi
stéttarfélag og Launanefnd sveitarfélaga. Næsti yfi rmaður
forstöðumanns er íþróttafulltrúinn í Hafnarfi rði Ingvar S.
Jónsson sem jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Umsóknafrestur er til 22. september n.k. og skal
umsóknum skilað til Þjónustuversins að Strandgötu 6.
Konur jafnt sem karlar eru hvattir til að sækja um starfi ð.
Íþróttafulltrúinn í Hafnarfi rði
AMMA
Tæplega eins ár stúlku vantar góða ömmu til að gæta
sín allan daginn á virkum dögum.
Áhugasamar vinsamlega hafi ð samband við Jónínu í
s. 696 5404, eða sendi umsókn í box@frett.is, merkt
amma-0101, eða á Auglýsingadeild Fréttablaðsins,
Skaftahlíð 24, Reykjavík, merkt amma-0101, fyrir
13. september næstkomandi.
leitar að starfsmanni
… sem býr yfir framúrskarandi
þjónustulund, er jákvætt, sýnir
frumkvæði, tekur ábyrgð á starfi sínu
og leitar bestu lausna fyrir viðskiptavini!
Óskum eftir starfsmanni í afgreiðslu.
Um er að ræða fullt starf (vaktavinna)
og gott ef viðkomandi getur byrjað sem fyrst.
Umsjón með ráðningu hefur Sylvía Arnfjörð
sylvia@worldclass.is
Í Laugum eru starfrækt fimm fyrirtæki.
Fjöldi gesta í Laugum er um 2000 daglega
svo um líflegan vinnustað er að ræða.
Laugum
Helstu verkefni eru:
Aðstoð við gerð umsókna og
frágang þeirra
Skjalavistun
Almenn aðstoð við skráningar-
fulltrúa deildarinnar
Hæfniskröfur:
Rík þjónustulund
Nákvæmni
Skipulagshæfileikar
Mjög góð íslenskukunnátta
Almenn tölvukunnátta (word og
outlook).
Nánari upplýsingar veitir Vilborg Gunnarsdóttir starfsmannastjóri (vilborg@veritascapital.is). Umsóknar-
frestur er til og með 15. september nk. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið starf@vistor.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum svarað.
Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki í sölu og markaðssetningu á lyfjum og vörum fyrir heilbrigðismarkaðinn á Íslandi.
Starfsmenn fyrirtækisins eru um 70 talsins og er áætluð velta félagsins á árinu 2008 rúmir sjö milljarðar króna.
Vistor leggur áherslu á hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika í störfum sínum.
Aðstoðarmaður í skráningardeild
Vistor hf. óskar eftir að ráða kröftugan starfsmann í Skráningardeild fyrir-
tækisins. Viðkomandi vinnur undir stjórn deildarstjóra skráningardeildar og
er ábyrgur í störfum sínum gagnvart honum. Meðal helstu verkefna deildar-
innar eru öflun markaðsleyfa fyrir lyf, viðhald þeirra og niðurfelling.
Hjá deildinni starfa nú 19 sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn á sviði
heilbrigðis- og raunvísinda.
Krafist er lyfjatæknimenntunar, stúdentsprófs eða sambærilegrar menntunar. Starfsreynsla
úr apóteki er kostur.