Fréttablaðið - 07.09.2008, Blaðsíða 25
SUNNUDAGUR 7. september 2008 9
RÍKISSÁTTASEMJARI
Embætti ríkissáttasemjara sem starfar á grundvelli laga nr.
80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, með síðari breyt-
ingum, er laust til umsóknar. Skipað er í embættið til mm ára,
frá 1. nóvember 2008. Skrifstofa embættisins er í Reykjavík.
Ríkissáttasemjari annast sáttastörf í vinnudeilum milli launa-
fólks og félaga þess annars vegar og atvinnurekenda og félaga
þeirra hins vegar. Skal þess því gætt að afstaða hans sé slík
að telja megi hann óvilhallan í málum launafólks og atvinnu-
rekenda, sbr. 1. mgr. 20. gr. laga um stéttarfélög og vinnu-
deilur. Enn fremur er lögð áhersla á forystuhæ leika og hæfni í
mannlegum samskiptum.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna.
Umsóknir skulu berast félags- og tryggingamálaráðuneytinu,
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík, eigi síðar en 1.
október nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í
embættið hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir ráðuneytisstjóri eða staðgengill hans.
Félags- og tryggingamálaráðuneytinu,
7. september 2008.
ÖRYGGISVÖRÐUR
SECURITY GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu öryggisvarðar lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. September 2008. Frekari upplýsingar er að
fi nna á heimasíðu sendiráðsins: http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of
Security Guard. The closing date for this postion is September 15, 2008.
Application forms and further information can be found on the Embassy’s home
page: http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
Please send your application and resumé to : reykjavikvacancy@state.gov
- Lifið heil
www.lyfja.is
Atvinnutækifæri hjá Lyfju
Vegna breytinga og vaxandi starfsemi getum við
bætt lyfjatæknum og sölu- og afgreiðslufólki
í okkar frábæra starfsmannahóp.
Starfs- og ábyrgðarsvið
Störfin felast m.a. í ráðgjöf til viðskiptavina um vörur í verslun, afgreiðslu á
kassa, ráðgjöf og afgreiðslu á lausasölulyfjum og afhendingu lyfja gegn lyfseðli.
Um er að ræða störf í vaktavinnu, fullt starf í dagvinnu og hlutastarf í
apótekum Lyfju á höfuðborgarsvæðinu. Í boði eru líflegir vinnustaðir, gott
vinnuumhverfi, samkeppnishæf laun og möguleiki á starfsþróun. Nánari
upplýsingar um störfin má finna á heimasíðu Lyfju, www.lyfja.is
Einnig leitum við að starfsfólki í eftirfarandi störf:
Sjúkraliði – Lyfja Smáratorgi
Í starfinu felst m.a. heilsufarsmælingar og ráðgjöf, umsjón með lager
hjúkrunarvara og fleiri verkefni. Vinnutíminn er frá 08:00 til 13:00 fjóra daga
í viku og frá 08:00 til 16:00 eða 10:00-18:00 einn dag í viku, virka daga.
Móttökuritari – skrifstofa Lyfju.
Í starfinu felst m.a. símsvörun, móttaka og einföld bókhaldsstörf,
s.s. afstemmingar og skönnun reikninga og annað tilfallandi.
Við leitum að röggsömum og talnaglöggum starfskrafti með viðmót og
framkomu sem hentar í afgreiðslu og móttöku og hefur góða excel-
kunnáttu. Þekking á bókhaldi og concord er kostur.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um störfin má finna á heimasíðu Lyfju; www.lyfja.is og
hjá starfsmannastjóra (thorgerdur@lyfja.is), s. 530-3800.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf. eru karlar jafnt sem konur hvattir til
þess að sækja um störf hjá fyrirtækinu.
Tekið er við umsóknum á vefslóðinni www.lyfja.is
Hlutverk Lyfju er að stuðla að góðri heilsu og vellíðan. Frá upphafi hefur Lyfja verið brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs og
boðið upp á ýmsar nýjungar í faglegri þjónustu. Fyrirtækið rekur apótek og heilsubúðir víðs vegar um landið ásamt því að
starfrækja lyfjaskömmtun til einstaklinga og stofnana. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns. Lykillinn að árangri er
starfsfólkið okkar og því höfum við það að markmiði að fá hæft fólk til liðs við okkur, skapa eftirsóknarverða vinnustaði
þar sem góður starfsandi ríkir og að starfsfólk fái tækifæri til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í starfi.
Einkunnarorð okkar eru áreiðanleiki, umhyggja og metnaður.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
4
35
86
0
9.
20
08
Við leitum að sjálfstæðu,
skipulögðu og metnaðarfullu
starfsfólki sem hefur áhuga á
að ganga til liðs við framsækið
og spennandi fyrirtæki.