Fréttablaðið - 10.09.2008, Blaðsíða 8
8 10. september 2008 MIÐVIKUDAGUR
BANDARÍKIN, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti ætlar ekki að
fækka hermönnum í Írak að ráði
meðan hann er við völd, heldur
lætur hann eftirmanni sínum,
sem tekur við í janúar næstkom-
andi, það eftir að hefja brottflutn-
ing herliðsins frá Írak.
Hann ætlar þó að kalla átta þús-
und hermenn heim frá Írak í
febrúar, en segir að unnt verði að
kalla fleiri hermenn heim á fyrri
hluta næsta árs ef aðstæður í Írak
leyfa. Nú eru um 146 þúsund
bandarískir hermenn í Írak.
Hann ætlar ekki að senda fleiri
hermenn til Afganistans, í bili, en
segir að bandarískum hermönn-
um þar hafi hvort eð er fjölgað á
síðustu tveimur árum úr 21 þús-
und í 31 þúsund.
„Ég er gáttaður á því að Bush
forseti hafi ákveðið að kalla svo
fáa hermenn heim frá Írak og
senda svo lítinn herafla til Afgan-
istans,“ sagði Harry Reid, leið-
togi meirihluta Demókrataflokks-
ins í öldungadeild
Bandaríkjaþings.
Barack Obama, forsetaefni
Demókrata, segir að þessi áform
Bush um aukinn herafla til Afgan-
istans nægi engan veginn: „Þetta
eru ekki nógu margir hermenn,
ekki nógu mikill herafli, ekki
nógu miklir peningar,“ sagði
Obama í gær.
Hann segir að Bush hafi engan
skilning á því að víglínur stríðs-
ins gegn hryðjuverkum séu í
Afganistan og Pakistan, en ekki í
Írak.
Obama notaði einnig tækifærið
að spyrða mótframbjóðanda sinn,
John McCain, enn á ný saman við
Bush forseta og hina óvinsælu
stríðsstefnu hans.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur fylgi Obama minnkað nokk-
uð en fylgi McCains aukist síðan
sá síðarnefndi tilkynnti um að
Sarah Palin, ríkisstjóri í Alaska,
yrði varaforsetaefni sitt.
McCain og Palin hafa lagt
áherslu á að boða breytingar á
starfsháttum stjórnmálamanna í
Washington og hafa þar með
reynt að taka upp helsta áherslu-
atriði Obamas í kosningabarátt-
unni.
Obama hefur hins vegar einnig
sagst ætla að kalla herinn heim
frá Írak innan 16 mánaða frá því
hann tekur við sem forseti, verði
hann kosinn. Yfirlýsingar Bush í
gær gefa Obama tækifæri til að
draga athyglina frá Palin og að
stríðsrekstri Bandaríkjanna í
Írak og Afganistan.
gudsteinn@frettabladid.is
1. Hverjir eru taldir líklegir til
að taka við framkvæmdastjóra-
stöðu hjá Íslendingaliðinu West
Ham?
2. Hver vann þrenn verðlaun
fyrir myndband við lagið Piece
of Me á verðlaunahátíð MTV-
sjónvarpsstöðvarinnar?
3. Hvað heitir forsætisráðherra
Taílands?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
GEORGE W. BUSH Bandaríkjaforseti skýrði í gær frá áformum sínum varðandi herafla
Bandaríkjanna í Írak og Afganistan út kjörtímabilið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bandarískur herafli í
Írak verður óbreyttur
Demókratar segjast gáttaðir á því að Bush ætli ekki að kalla fleiri hermenn
heim frá Írak og senda fleiri til Afganistans. Bush lætur eftirmanni sínum eftir
að taka ákvarðanir um brottflutning herliðs frá Írak.
TÆKNI Talið er að yfir 200.000
manns hafi safnast saman í
miðborg Liverpool á Englandi um
helgina til þess að verða vitni að
risakónguló ganga um götur
bítlabæjarins.
Hinni tölvustýrðu kónguló, sem
er rúmlega fimmtán metrar á
hæð og vegur yfir 37 tonn, var
gefið nafnið „Prinsessan“. Hópur
af frönskum listamönnum sem
kallar sig „La Machine“ vann að
gerð ferlíkisins. Var göngutúrinn
um Liverpool hluti af mikilli
tækniráðstefnu sem fer fram í
borginni í tilefni af því að
Liverpool er menningarhöfuð-
borg Evrópu í ár. - kg
Menningarhöfuðborg Evrópu:
Risakónguló
í Liverpool
PRINSESSAN Tólf menn stýrðu risa-
kóngulónni með fjarstýringum.
NORDICPHOTOS/AFP
Maður skyldi ætla að hagkvæm-
ara væri að kaupa matvöru og
annað í stærri einingum en
minni. Svo er þó aldeilis ekki
einhlítt og enn og aftur gildir að
vera með fullri meðvitund í
búðinni.
Hörður Ágústsson skrifar:
„Ég og konan vorum í Krónunni
í gær að versla inn í ansi tóman
ísskáp. Ekkert er betra en góður
ávaxtasafi á morgnana svo ég
ákvað að kaupa mér Happy Day
appelsínusafa. Ísskápurinn
okkar er rúmgóður og gríp ég
því tveggja lítra fernuna enda er
það augljóst mál að maður spar-
ar á að kaupa stærri einingar...
eða hvað? Ekki í þessu tilviki!
Ég sendi með mynd af Happy
Day djúsfernunum hlið við hlið.
Einn lítri er á 149 krónur, tveir
lítrar á 339 krónur eða 170
krónur lítrinn!“
Árvekni borgar sig í búðinni:
Stærri einingar
eru ekki alltaf
hagkvæmari
EINN LÍTRI EÐA TVEIR Hörður er með
myndavél í símanum og gat því lagt
fram sönnunargagn.
SKIPULAGSMÁL Fjárfestirinn Ing-
unn Wernersdóttir hefur fengið
leyfi skipulagsfulltrúans í Reykja-
vík til að reisa tengibyggingu við
húsið á Þingholtsstræti 29a.
Ætlun Ingunnar er að byggja
tveggja hæða hús norðan við
núverandi hús og tengja húsin
saman. Í nýja húsinu verður meðal
annars vegleg baðstofa á neðri
hæðinni og bílskúr á efri hæð með
aðkomu frá Grundarstíg.
Engar athugasemdir við fram-
kvæmdina bárust meðan hún var í
grenndarkynningu fram til 4. sept-
ember. Stækkunin nemur 245 fer-
metrum og verður eignin með
henni samtals 713 fermetrar. Auk
nýja hússins verða gerðar breyt-
ingar á eldra húsinu, meðal annars
á gluggum og á dyraopum er snúa
íl austur að garðinum.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu hefur Ingunn Wern-
ersdóttir verið að gera upp hið
sögufræga hús á Þingholtsstræti
sem upphaflega var byggt sem
einbýlishús en er þekktast fyrir að
hafa þjónað í áratugi sem aðalsafn
Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Húsið hefur lengst af gengið undir
nafninu Esjuberg en var á sínum
tíma kallað Villa Frida eftir eigin-
konu þáverandi eiganda. - gar
Skipulagsfulltrúi leyfir viðbótarhús við gamla borgarbókasafnið á Þingholtsstræti:
Tengibygging mun rísa við Esjuberg
STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður
VG, gagnrýnir að ráðgjafarfyrirtæki hafi skipulagt
vinnuferð heilbrigðisnefndar Alþingis til Stokk-
hólms.
Fyrirtækið heitir InDevelop og vinnur ráðgjafar-
störf í heilbrigðisráðuneytinu vegna fyrirhugaðra
breytinga á sjúkratryggingakerfinu. Ögmundur
sagði í grein í Fréttablaðinu í gær að ferðin hafi
verið „farin undir handarjaðri verktakafyrirtækis-
ins sem skipuleggur markaðsvæðingarátak heil-
brigðisráðherrans“. Í samtali við Fréttablaðið sagði
Ögmundur óeðlilega að málum staðið. „Það er mjög
óeðlilegt að fyrirtæki sem hugsanlega hefur
hagsmuna að gæta er fengið til að hafa milligöngu
um samtöl þingmanna og viðmælenda þeirra.“
Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar, segir
fyrirtækið hafa annast skipulagningu funda eftir
forskrift hennar sjálfrar. Fyrirtækið hafi aðgang að
því fólki sem kom að innleiðingu nýs sjúkratrygg-
ingakerfis í Svíþjóð auk þess sem það kom á fundum
með stjórnmálamönnum úr ólíkum flokkum. „Það er
ekkert óeðlilegt við þetta, þvert á móti var ferðin
gagnleg og ekki annað að heyra á nefndarmönnum
en að þeir væru ánægðir með fyrirlestrana og
fundina.“ - bþs
Ögmundur Jónasson gagnrýnir fyrirkomulag við Stokkhólmsför heilbrigðisnefndar:
Ráðgjafi heilbrigðisráðherra
skipulagði ferð þingnefndar
PAKISTAN, AP Asif Ali Zardari sór í
gær embættiseið sinn sem forseti
Pakistans. Hann er ekkill Benazir
Bhutto, fyrrverandi leiðtoga
Þjóðarflokks Pakistans, en hún
var myrt seint á síðasta ári.
Zardari hóf embættisferil sinn
á að lýsa því yfir að stríðið gegn
hryðjuverkamönnum geti gefið
landinu tækifæri til að sigrast á
efnahagsörðugleikum.
Hamid Karzai, forseti Afganist-
ans, var viðstaddur þegar Zardari
tók við embætti sínu. Hann
sagðist vona að samstarf þeirra
yrði gott. - gb
Ekkill Benazir Bhutto:
Zardari orðinn
forseti Pakistan
AZIF ALI ZARDARI Við mynd af hinni
myrtu eiginkonu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMFERÐ Ungir ökumenn valda alls
27 prósentum banaslysa í
umferðinni í OECD-löndunum
þrátt fyrir að vera aðeins 10
prósent mannfjöldans.
Þetta kom fram í fyrirlestri
Divera Twisk á fundi Lýðheilsu-
stöðvar, slysavarnaráðs og
umferðarráðs um áhættuhegðun
ungra ökumanna í gær. Twisk er
sviðsstjóri rannsókna á mann-
legri hegðun hjá SWOV, stofnun
um umferðarrannsóknir í
Leidchendam í Hollandi. Hún
segir umferðarslys vera helstu
dauðaorsök fólks á aldrinum 15 til
24 ára innan landa OECD. Helstu
ástæðuna segir hún vera reynslu-
leysi ungra ökumanna. - ovd
Óreyndir ungir ökumenn:
Valda um þriðj-
ungi dauðaslysa
UMFERÐ Óreyndir ökumenn valda
stórum hluta umferðarslysa innan
OECD-landanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sendið umboðsmanni neytenda
ábendingar eða sparnaðarráð á
neytendur@frettabladid.is
ÁSTA MÖLLER ÖGMUNDUR JÓNASSON
BREYTINGARNAR Á ljósmyndinni er
húsið á Þingholtsstræti 29a en teikn-
ingin sýnir hvernig baðhúsi og bílskúr
er bætt til hliðar við húsið.
VEISTU SVARIÐ?