Fréttablaðið - 10.09.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 10.09.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Gulltrygg aðferð til að gefa sjálf-um sér jákvæðar strokur er að kaupa fallega skó. Sumum kann að virðast þetta heldur þunnildisleg sálfræði en reynslan hefur marg- sannað að glæsilegt skótau getur þurrkað upp vægan lífsleiða í einu vetfangi. Þannig get ég léttilega fært fyrir því rök að skóbúðaferðir mínar hafi í raun og veru sparað heimilinu háar fjárhæðir sem annars hefðu farið í jóga og sjálfs- hjálpar bækur. Vel heppnuð skó- kaup duga í marga hamingjudaga séu skórnir nógu sjúklega flottir. ANNAÐ slagið ranka ég við mér og uppgötva að allt of langur tími hefur liðið síðan síðast og þá á grá- móska tilverunnar sér strax skýr- ingar. Því miður kemur gengisfall krónunnar nú illa við þá sem hafa unun af hollri dægradvöl, því skór sem áður kostuðu bara nóg til að kitlandi gæsahúð hríslaðist niður bakið eru nú orðnir svo dýrir að hárin rísa á höfðinu. ÞEGAR guð útbýtti hagsýni og ráðdeild kom ég sennilega of seint því hann sleppti líka að splæsa á mig stundvísi. Því var það ekki meðfædd skynsemi sem um dag- inn kom í veg fyrir að ég keypti dásamlega en sérlega ópraktíska samkvæmisskó sem fóru mér ó! svo vel, heldur tilhugsunin um parið sem ég átti ennþá ónotað inni í skáp frá síðustu skóbúðar- ferð. Samkvæmislífið er greini- lega í sorglegri rénun. UM helgina hafði skókaupaþörf- inni því ekki verið fullnægt þegar ég fékk SMS frá velunnara um ægilega skóútsölu í Perlunni. Öfugt við ferðalög í rándýrar skó- búðir eru útsölumarkaðir kvöl og pína. Skylduræknin rak mig samt af stað og með bæði litlu börnin undir handleggnum tróðst ég gegn- um þvöguna í þeim göfuga tilgangi að gera góð kaup. Strax við inn- ganginn svipti múgsefjunin mig hæfileikanum til að greina á milli góðs og ills og rúin dómgreind var ég fyrr en varði farin að máta slísí rauð lakkstígvél. Ekki fyrr en ég sá að fatafella úr hverfinu var að prófa sams konar skó laust þeirri hugmynd niður að þeir væru ekki mjög nytsamlegir minni jarð- bundnu persónu. ÞANNIG ráku fordómarnir okkur mæðgur upp í ísbúðina á fjórðu og þaðan á sögusýninguna þar sem svarti dauði og grimmdarlegir böðlar hræddu líftóruna úr bless- uðum börnunum. Afraksturinn fokdýrir sandalar á fimm ára sem munu duga fínt í snjónum í vetur. Húsráð gegn grámósku tilverunnar 6.37 13.25 20.10 6.18 13.09 19.58 Í dag er miðvikudagurinn 10. september, 254. dagur ársins. FRYSTIKISTUR Whirlpool frystikistur Lítrar nettó Hæð í sm Breidd í sm Dýpt í sm Körfur Skilrúm Ljós Frystig. 24 klst. Orkufl. FRÁBÆRT VERÐ AFG610MB 103 85 53 58 1 Nei Nei 7,5 kg B Kr. 44.995 AFG6142B 138 86,5 57 65 1 Nei Nei 11 kg B Kr. 49.995 AFG6222B 212 86,5 81 65 1 Nei Nei 14 kg B Kr. 54.995 AFG6262B 258 88,5 95 66 1 Nei Já 18 kg B Kr. 59.995 AFG6323B 320 88,5 112 66 1 Nei Nei 24 kg B Kr. 64.995 AFG6392B 320 88,5 112 66 3 Já Já 24 kg B Kr. 69.995 AFG6492B 400 88,5 134 66 4 Já Já 25 kg B Kr. 79.995 AFG6592B 503 88,5 163 66 5 Já Já 30 kg B Kr. 89.995 Beko þvottavélar Snún- ingar Stærð: HxBxD Þvotta- magn Ísl. leiðarv. Ullar- kerfi Hrað- kerfi Þvott- hæfni Orku- nýting Vindu- hæfni FRÁBÆRT VERÐ WMD25100T 1000 85/60/60 5 kg Já Já Já A A C Kr. 59.995 WMD26140T 1400 85/60/60 6 kg Já Já Já A A B Kr. 69.995 Indesit þvottavél + þurrkari Snún- ingar Stærð: HxBxD Þvotta - / þurrk- magn Ísl. leiðarv. Ullar- kerfi Hrað- kerfi Þvott- hæfni Orku- nýting Vindu- hæfni FRÁBÆRT VERÐ WIDL126 1200 85/60/60 5/3 Já Já Nei A B B Kr. 99.995 WIDLXXL146 1400 85/60/60 7/5 Já Já Nei A B B Kr. 114.995 ÚRVALIÐ ER HJÁ OKKUR REYKJAVÍK AKUREYRI HÚSAVÍK SELFOSS SUÐURLANDSBRAUT 26 SÍMI 569 1500 GLERÁRGÖTU 36 460 3380 GARÐARSBRAUT 18A 464 1600 EYRARVEGI 21 480 3700 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT ÞVOTTAVÉLAR *AWOD6730 - 6th Sense með klukku - tækni sem skynjar óhreinindi í vatninu og flýtir þvottatíma. Whirlpool þvottavélar Snún- ingar Stærð: HxBxD Þvotta- magn Ísl. stjórnb. /leiðarv. Ullar- kerfi Hrað- kerfi Þvott- hæfni Orku- nýting Vindu- hæfni FRÁBÆRT VERÐ AWOD4516 1200 85/60/60 6 kg Já Já Já A A B Kr. 79.995 AWOD4726 1400 85/60/60 6 kg Já Já Já A A B Kr. 84.995 AWOD6730* 1400 85/60/60 6 kg Já Já Já A A B Kr. 89.995

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.