Fréttablaðið - 11.09.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
11. september 2008 — 247. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
SAMGÖNGUR Nýjum farþegum
hefur ekki fjölgað hjá Strætó bs.
þrátt fyrir hækkun bensínverðs og
þá staðreynd að fólk notar bílana
minna en áður. Námsmenn fá nú
frítt í strætisvagna, en það virðist
ekki hafa skilað nýjum farþegum.
Hins vegar fjölgaði þeim sem
stigu inn í vagnana um 700 þúsund
í fyrra, eða um 10 prósent. Margir
þeirra stigu hins vegar oftar en
einu sinni í vagnana yfir daginn.
Fyrstu tölur benda til þess að þeim
sem nota vagnana hafi fækkað.
Innstigum í vagnana á Akureyri
fjölgaði um 120 prósent á einu ári
eftir að gefið var frítt í strætis-
vagna. - kóp / sjá síðu 18
Farþegar hjá Strætó bs.:
Nýjum farþeg-
um fjölgar ekki
Hvaðan koma peningarnir?
„Viðskiptahallinn er sem fyrr mikill,
en Seðlabankinn getur ekki lengur
gert grein fyrir fjármögnun hans“,
skrifar Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 24
STRÆTISVAGNAR Illa gengur að fjölga
þeim sem nýta sér almenningssam-
göngur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VelduektaMyllu
Heimilisbrauð
- brauðið sem allir
á heimilinu velja
GUÐMUNDUR ÓSKAR GUÐMUNDSSON
Á kanadíska lopapeysu
sem hentar í kuldanum
• tíska • börn • heimili
MIÐJU BLAÐSINS
HEILSA OG LÍFSSTÍLL
Bjóða námskeið í að
nudda sína nánustu
Sérblað um heilsu og lífsstíl
FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VERK AÐ VINNA
Fer að verða léttara
að fá iðnaðarmenn
Sérblaðið Verk að vinna
FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG
heilsa og lífsstíllFIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2008 Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Guðmundur Óskar Guðmundsson, bassaleikari hljómsveitarinnar Hjaltalín, festi kaup á hnaus-þykkri kanadískri lopapeysu síð-astliðið haust sem hann er hæst-ánægður með að geta dregið fram að nýju eftir sumarið. Peysuna keypti hann í Spúútnik og á hann von á því að hún komi að góðum notum næstu mánuðina.
„Það verður gott að eiga svona heimskautapeysu þegar kuldinn skellur á og ekki spillir útlitið
fyrir,“ segir Guðmundur en peys-an er með fallegum kraga sem hann er sérstaklega ánægður með. „Svo er hún rennd sem er mjög þægilegt og nýtist hún því jafnt sem peysa og jakki.“
Guðmundur fer ekki troðnar slóðir þegar kemur að tískunni og segist spá mikið í föt. Hann geng-ur til dæmis í rauðum skóm sem hann keypti í Kronkron en sá litur á fótabúnaði karla sést ekki á hverjum degi.
„Ég kaupi lítið fjöldaframleitt og versla helst úti eða í „second hand“-búðum,“ segir Guðmundur sem festi á dögunum kaup á tweed-jakka og ermahnöppum prýddum íslenska fánanum í Herrafata-verslun Kormáks og Skjaldar. Sá fengur verður eflaust með í för á tónleikaferðalagi um Evrópu sem Guðmundur heldur í á næst-unni ásamt tónlistarmanninum Borkó. vera@frettabladid.is
Hnausþykk haustpeysaFjöldaframleidd föt eru ekki ofarlega á lista Guðmundar Óskars Guðmundssonar sem hefur ávallt viljað vera smart í tauinu. Um þessar mundir heldur hann mikið upp á kanadíska heimskautapeysu.
Guðmundur á von á því að lopapeysan komi að góðum notum næstu mánuðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LEIKLIST, TJÁNING OG SJÁLFSEFLING er námskeið fyrir unglinga á aldrinum 13 til 16 ára sem Mímir símenntun heldur. Þjálf-unin felst í æfingum og leikjum þar sem markmiðið er að hver og einn fái að njóta sín. Námskeiðið stendur í tíu vikur og hefst 30. september næstkomandi. Nánar á www.mimir.is.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.isOpnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Mesta úrval landsins af sófum
kr.130.900,-
þú getur fengið þennan
sófa í yfir 200 útfærslum
verk að vinnaFIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2008
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Heillaði dómnefndina
Kristín Helga Gunnars-
dóttir hlaut barnabóka-
verðlaun Vestnor-
ræna ráðsins.
TÍMAMÓT 56
Flytja Eika Hauks inn
Baggalútsmenn flytja
Eirík Hauksson inn
frá Noregi til að taka
upp söng hans á nýrri
plötu Baggalúts.
FÓLK 50
VIÐSKIPTI „Það er ljóst að vandamál
hjá skuldara er ekki bara vanda-
mál hans, heldur kröfuhafans líka,“
segir Vilhjálmur Bjarnason,
aðjúnkt við Háskóla Íslands.
Tilkynnt hefur verið að
Björg ólfsfeðgar, í félagi við fleiri
fjárfesta, ætli að taka við ábyrgð
sem hvílir á Eimskipafélaginu
vegna láns sem Landsbankinn
veitti. Feðgarnir eiga stóran hlut í
hvoru félagi um sig.
Ábyrgðin nemur yfir 25
milljörðum króna miðað við
núverandi gengi gjaldmiðla.
Markaðsvirði Eimskipafélagsins
við lok markaða í gær var hins
vegar rúmlega 18 milljarðar króna.
- ikh / sjá síðu 22
Ábyrgð vegna lána Eimskips:
Eimskip minna
virði en ábyrgðin
STYTTIR UPP VESTAN til Í dag
verða víðast norðaustan 5-10 m/s.
Rigning eða skúrir en styttir upp
vestan til um hádegi og léttir þá
heldur til. Hiti 10-16 stig.
VEÐUR 4
11 12
12
1213
UMHVERFISMÁL „Tímabært [er] að rétta hlut náttúru-
og umhverfisverndar sem farið [hefur] halloka
gagnvart hagsmunum stóriðju“, segir í skýrslu
Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra.
Skýrsla hennar um umhverfismál, sú fyrsta
sinnar tegundar, verður rædd á Alþingi í dag.
Þórunn telur að náttúra landsins sé auðlind sem
geti skapað meiri varanleg verðmæti en önnur
landnýting. Verndun náttúru teljist því landnýting.
Einnig ræðir ráðherra alþjóðlegan Árósar-
samning og ætlar að „leggja áherslu“ á fullgildingu
hans, en lofar ekki að hann verði fullgildur. „Ísland
er eina landið innan EES, sem ekki hefur fullgilt
þennan samning,“ segir Árni Finnsson, formaður
Náttúruverndarsamtakanna.
Samningurinn sé að mörgu leyti í gildi á Íslandi,
fyrir utan eina meginstoð; aðgengi að réttarúrræði
fyrir umhverfissamtök. „Og það er frá Lands-
virkjun, hún óttast að málaferli tefji virkjunar-
framkvæmdir. Samfylkingin vill efna samninginn,
en Sjálfstæðisflokkur tekur dræmt í það.“
Ekki náðist í Þórunni, en heimild úr þingflokki
Samfylkingar segir samninginn á borði utanríkis-
ráðherra. Hann verði því líklega fullgildur. - kóþ
Fyrsta skýrsla umhverfisráðherra um umhverfismál rædd á Alþingi í dag:
Umhverfisvernd farið halloka
SAMGÖNGUMÁL Íslandspóstur,
hlutafélag í fullri í eigu ríkisins,
hyggur á sókn á flutninga- og sam-
skiptamarkaði og hefur endurskil-
greint hlutverk sitt og starfsemi
frá því að sinna almannaþjónustu
að stærstum hluta. Ráðist hefur
verið í byggingu tíu pósthúsa sem
eru sérhönnuð með þarfir flutn-
ingafyrirtækis í huga og gagnger-
ar endurbætur verða gerðar á sex
öðrum í sama tilgangi. Kostnaður
er áætlaður rúmlega milljarður
króna en 700 milljónir þegar eldri
hús á landsbyggðinni, sem lokað
hefur verið á undanförnum árum,
hafa verið seld.
Íslandspóstur mun opna 16 ný
eða breytt pósthús á þessu ári og
því næsta. Í ársskýrslu fyrirtækis-
ins árið 2007 kemur fram að til-
gangurinn með húsunum sé að
„auka möguleika fyrirtækisins til
muna til sóknar á flutningamark-
aði og öðrum tengdum mörkuðum,
þar sem húsin eru sérhönnuð með
þarfir flutningafyrirtækis í huga“.
Skilgreiningu á hlutverki fyrirtæk-
isins hefur verið breytt í anda
þessa.
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri Íslandspósts, segir rétt að
verið sé að útvíkka starfsemi fyrir-
tækisins verulega og uppbygging
pósthúsanna sé til að auka sam-
keppnishæfni þess við einkaaðila á
flutningamarkaði. „Það var farið í
stefnumótunarvinnu og niðurstað-
an var að auka þjónustuna, fyrst og
fremst til að þjónusta hagsmuna-
aðila fyrirtækisins. Eins til að tak-
ast á við afnám einkaréttar sem
fram undan er 2011 og efla fyrir-
tækið til að takast á við þá breyt-
ingu.“ Skiljanlegt sé að menn spyrji
sig hvort eðlilegt sé að verja
rúmum milljarði til að byggja upp
flutningaþjónustu hjá fyrirtæki í
ríkiseigu en hann telur ekki víst að
flutningaþjónusta Íslandspósts
hamli starfsemi einkarekinna
fyrirtækja. Jörundur Jörundsson,
framkvæmdastjóri innanlands-
sviðs Samskipa, segir það með öllu
ótækt að þurfa að keppa við ríkis-
fyrirtæki. „Þetta er ekki flókið,
skattfé landsmanna er nýtt til að
niðurgreiða samkeppni og byggja
upp flutningafyrirtæki á vegum
ríkisins.“ - shá / sjá síðu 8
Ríkið undirbýr sam-
keppni í flutningum
Íslandspóstur, sem er í eigu ríkisins, hefur útvíkkað hlutverk sitt sem fyrirtæki
í flutninga- og samskiptaþjónustu. Pósthús, sérhönnuð fyrir vöruflutninga, rísa
til að keppa við einkarekin fyrirtæki. Gæti eflt samkeppni, segir forstjóri.
Sárt tap
Íslenska lands-
liðið tapaði fyrir
Skotum, 1-2, á
Laugardalsvelli
í gær.
ÍÞRÓTTIR 46 & 47
STOLTUR SKOTI Skotar unnu sætan sigur á Íslandi, 1-2, á Laugardalsvelli í gær í undankeppni heimsmeistaramótsins. Skoskur
stuðningsmaður réði sér ekki fyrir kæti er Skotar komust í 2-0 og faðmaði skoska markmanninn. Sjá síður 46 og 47.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M