Fréttablaðið - 12.09.2008, Blaðsíða 10
12. september 2008 FÖSTUDAGUR
Faxafeni 12, Reykjavík • Glerárgötu 32, Akureyri.
Glymur orðinn frægur!
Jakkinn sem Anita Briem klæðist í myndinni
Journey to the Center of the Earth.
66north.is / Septem
ber 2008
Glymur Softshell,
dömu jakki með hettu
25.500 kr.
15.300 kr.
Glymur Softshell,
herra jakki
25.500 kr.
15.300 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
35
93
0
9/
08
• Austurbæjarskólinn var fyrsta húsið með hitaveitu í Reykjavík. www.or.is
Hellisheiðarvirkjun
að Nesjavalla-
virkjun Laugardaginn 13. september verður farin gönguferð frá Hellisheiðarvirkjun og
til Nesjavallavirkjunar. Gengið verður upp
Sleggjubeinsskarð og upp á Vörðuskeggja sem er 805 metra hár.
Þaðan verður farið niður í Kýrdal og í Nesjavallavirkjun. Gangan
tekur u.þ.b. 6 klst. og er frekar erfið, að jafnaði um brattar fjalls-
hlíðar. Nauðsynlegur búnaður eru góðir gönguskór, góður hlífðar-
fatnaður og nesti. Orkuveita Reykjavíkur leggur til ferðir frá
Reykjavík í Hellisheiðarvirkjun og til baka frá Nesjavallavirkjun og er
mæting í höfuðstöðvar Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 kl. 10:00.
Áætlaður komutími til baka kl. 18:00. Þátttaka er ókeypis og allir
velkomnir. Leiðsögumaður er Hans Benjamínsson kynningarfulltrúi
Hellisheiðarvirkjunar. Ef veður verður tvísýnt verður gengin
auðveldari leið.
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
BANDARÍKIN, AP Barack Obama og
John McCain gerðu hlé á kosninga-
baráttu sinni í gær og tóku
sameiginlega þátt í minningar-
athöfn í New York vegna árásanna
á Bandaríkin 11. september 2001.
Obama gat þó ekki stillt sig um
að skjóta aðeins á George W. Bush
Bandaríkjaforseta með því að
minnast á að enn hefðu Banda-
ríkjamenn ekki haft hendur í hári
þeirra sem bæru ábyrgð á árásun-
um.
Sjö ár voru í gær liðin frá því að
fjórum farþegaþotum var rænt,
tveimur þeirra flogið á Tvíbura-
turna World Trade Center í New
York og einni á Pentagon-bygging-
una í Washington, en sú fjórða
hrapaði á akurlendi í Penn-
sylvaníu.
Þessi hryðjuverk kostuðu nærri
þrjú þúsund manns lífið og urðu til
þess að Bandaríkin hófu, ásamt
bandamönnum sínum, hernað í
Afganistan og hröktu talibana-
stjórnina þar á brott. Einnig not-
uðu bandarísk stjórnvöld hryðju-
verkin til að réttlæta hernað í Írak
vorið 2003. „Sá dagur kemur að
flestir Bandaríkjamenn muna ekki
af eigin raun eftir því sem gerðist
hinn 11. september,“ sagði Bush
forseti í ræðu, sem hann hélt við
Pentagon í gær þar sem nýtt
minnis merki um atburðina var
vígt. „Þegar þeir koma að skoða
þetta minnismerki, þá munu þeir
komast að því að 21. öldin byrjaði
með mikilli baráttu milli frelsis-
afla og ógnarafla.“
Minnismerkið er við Pentagon-
bygginguna og kostaði 22 milljónir
Bandaríkjadala, eða hátt í tvo
milljarða króna. Það samanstend-
ur af 184 bekkjum, jafn mörgum
þeim sem fórust þegar þotu var
flogið á bygginguna. Bekkirnir eru
upplýstir að næturlagi og raðað í
aldursröð þeirra sem létust.
Enn hefur ekki verið lokið við
gerð minnismerkis í New York, en
þar var í gær, eins og undanfarin
ár, kveikt á tveimur ljóssúlum sem
lýstu upp í loftið á sama stað og
Tvíburaturnarnir stóðu. - gb
Obama og
McCain slíðr-
uðu sverðin
Bandaríkjamenn minntust í gær árásanna á Banda-
ríkin hinn 11. september árið 2001. Forsetafram-
bjóðendurnir gerðu hlé á kosningabaráttunni.
VINNUMARKAÐUR Ingibjörg R. Guð-
mundsdóttir, varaforseti Alþýðu-
sambands Íslands, ASÍ, og Gylfi
Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri
ASÍ, hafa bæði ákveðið að gefa
kost á sér í embætti forseta ASÍ.
Því kemur til forsetakjörs á árs-
fundi ASÍ 23.-24. október næst-
komandi. Ekki er neinn framboðs-
frestur, þannig að aðrir
frambjóðendur geta gefið kost á
sér alveg fram að fundinum.
„Við erum lögð upp í þessa veg-
ferð bæði og erum að bítast um
sömu atkvæðin,“ segir Ingibjörg
um forsetakjörið. „Ég er búin að
starfa í verkalýðshreyfingunni í
rúma þrjá áratugi og hef öðlast
mikla reynslu í þessu. Mér hefur
gengið mjög vel að vinna með fólki
frá ólíkum hópum og með ólík
sjónarmið,“ segir hún.
Gylfi segist hafa fundið stuðn-
ing í hreyfingunni við framboð sitt
og því hafi hann ákveðið að taka
skrefið. Hann segir að pólitíkin sé
partur af sögu verkalýðshreyfing-
arinnar en hún spili ekki virkan
þátt í dag. „Framboð mitt er ekki
runnið undan rifjum Samfylkingar-
innar og það væri mikið rangnefni
að tala um pólitísk átök milli okkar
Ingibjargar.“ Gylfi telur ólíklegt
að hann haldi áfram sem fram-
kvæmdastjóri nái Ingibjörg kjöri.
„Við höfum átt gott samstarf og
erum góðir vinir,“ segir hann.
„Mér þætti mjög óþægilegt fyrir
Ingibjörgu að hafa sinn mótfram-
bjóðanda sem sinn nánasta ráð-
gjafa. Ég veit ekki hvort það geng-
ur upp.“ - ghs
INGIBJÖRG GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
GYLFI ARN-
BJÖRNSSON
Tveir frambjóðendur eru til forseta ASÍ á ársfundi í lok október:
Gylfi og Ingibjörg í framboði
Vísindamenn hafa komist að því að Tvíburaturnarnir í New York hrundu vegna
efnabreytinga í sem urðu á burðarstáli þeirra í eldsvoðanum eftir að flug-
vélarnar skullu á þeim. Segulsveiflur í frumeindum þeirra valda verulegum
styrkleikabreytingum á stálinu.
Kenningin um mjúka stálið
Tvíburaturnarnir Stál hefur tvenns konar kristalbyggingu:
1.500°C:
Bræðslumark
Frumeindir
járnsAlfa-járn: Segulmagnað,
ósveigjanlegt og stöðugt. Stálið
mýkist og missir styrk þegar hiti
fer yfir 500°, en bráðnar ekki.
Burðargrind úr
kolefnissnauðu stáli
Kolefni
innan í kristal-
grind herðir
stálið
500°-911° C: Segul-
eiginleikar sameinda
stálsins breytast
Gamma-járn:
Kolefnisfrum-
eindir fara
auðveldlega
inn og út úr
kristalgrind.
Eldþol byggingarinnar getur hafa skaðast
við árekstur vélanna, þegar gríðarlegur hiti
umlykur stálið.
Gamma-járn: Ekki segulmagnað, mjúkt og auðmótanlegt. Breytingar á
kristalbyggingu byrja þear hiti fer yfir 500°C. Kristalbreytingar valda því að
stálgrindin mýkist og hrynur undan þyngd byggingarinnar fyrir ofan.
HEILBRIGÐISMÁL Leiðsöguhundarnir
fjórir; Elen, Exit, Exo og Asita,
verða í dag afhentir eigendum
sínum formlega í Blindrafélaginu.
Lilja Sveinsdóttir, eigandi Asitu,
segir hundana nýtast blindum og
sjónskertum sérlega vel og auka
sjálfstæði þeirra í daglegu lífi.
„Þeir finna göngustíga, leiða
mann fram hjá pollum og holum í
götunni sem maður finnur ekki
endilega fyrir með hvíta stafnum,
svo verja þeir mann einnig fyrir
hindrunum sem eru fyrir ofan
mitti en fyrir þeim finnur maður
ekki heldur með stafnum. Munur-
inn er því mikill.“ Heilbrigðis-
ráðuneytið og Lionshreyfingin á
Íslandi hafa stutt kaup á hundun-
um. - kdk
Blindrafélagið:
Leiðsöguhundar
verða afhentir
LILJA OG ASITA Lilja segir að henni
þyki sem hún sé mun sjálfstæðari með
hundinn sér við hlið. MYND/LILJA SVEINSDÓTTIR