Fréttablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 15. september 2008 21 Jessica Alba hefur vakið tals- verða athygli fyrir þátttöku sína í nýrri herferð sem á að fá ungt fólk í Bandaríkjunum til að nýta sér kosningarétt sinn. Myndirnar sýna leikkonuna hálfbera í bindingum og með límt fyrir munninn. Hún segist þó ekki sjá eftir myndatökunni, sem stjórnað var af ljósmyndaranum Marc Liddel og hún skammast sín ekkert fyrir útkomuna. Haft er eftir henni: „Mér leið ekki illa meðan á myndatökunni stóð. Ég dáist að verkum Marcs því þau segja sögu og hann framkallar alvöru tilfinningar með myndum sínum.“ Þá finnst henni málstaðurinn þess virði að berjast fyrir. „Ef maður skráir sig ekki og kýs ekki til þess að bæta ástandið í landinu, þá er maður í raun að reyra sjálfan sig niður og múlbinda sig.“ Jessica Alba í bindingum ÓHRÆDD Alba hvetur fólk til að nýta sér kosningaréttinn á áberandi hátt. Paris Hilton og Idol-kynnirinn Ryan Seacrest munu leiða saman hesta sína og þróa sjónvarpsþætti. Þeir verða ekki með raunveruleikasniði, eins og flest annað sem parið hefur komið að, heldur verður lagst í handritavinnu. Paris Hilton má bráðlega sjá á MTV þar sem þáttaröðin Paris Hilton‘s My New BFF verður sýnd, en þar leitar hótelerfinginn sér að nýrri vinkonu. Fyrirtæki Seacrests framleiðir hins vegar raunveruleika þættina Keeping Up with the Kardashians, þar sem vinkona Parisar, Kim Kardashian, er í aðalhlutverki. Ekki er vitað um hvað sjónvarpsþáttaröð skötuhjúanna mun fjalla, eða hver kemur til með að skrifa handrit, en þau munu hafa verið í viðræðum um þetta samstarf svo mánuðum skiptir. Paris og Ryan gera þætti FRÁ KIM TIL PARIS Fyrirtæki Ryans Seacrest framleiðir nú raunveruleikaþætti með vinkonu Parisar, Kim Kardashian, í aðalhlutverki. Tískuvikunni í New York er nú lokið og Lond- on tekur við. Á pöllunum í New York-borg sást töluvert af samfestingum í ýmsum mynd- um, sem henta öllu frá afslöppuðum degi heima við til fínustu kvöldverðarboða. Samfestingar fyrir öll tækifæri Flottur samfestingur og jakki í stíl hjá 3.1 Phillip Lim. NORDICPHOTOS/GETTY Marc by Marc Jacobs sýndi þennan sport- lega samfesting fyrir rólega daga. Þessi samfestingur hjá Derek Lam jafnast á við fínasta samkvæmiskjól. Afslappaður samfest- ingur Derek Lam er gerður töffaralegri með vel sniðnum svörtum jakka og hælaskóm.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.