Fréttablaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
17. september 2008 — 253. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Karl Sverrisson á nokkur óhefð-bundin ferðalög að baki og starf-aði meðal annars hjá Stefáni Hrafni Magnússyni, hreindýra-bónda á Grænlandi, sumarið 2003. „Það kom þannig til að kunningi minn sem var að vinna hjá Stefánihafði samb d
en þeim fjölgar svo í kringum sláturtíð,“ útskýrir Karl, sem segir einsemdina í óbyggðunum ekki hafa fengið á sig og að hann hafi komið endurnærður til baka„Yfir sumarið v
hönd, skreið yfir hálfan dalinn og skaut dýrið á meðan við héldum áfram að borða.“Karl lumar á fleiri æ i ýen h
Ævintýralegt sumar í óbyggðum GrænlandsVélstjórinn Karl Sverrisson fer ekki troðnar slóðir þegar hann ferðast út í heim og gauki einhver að hon-
um skemmtilegri ævintýrahugmynd slær hann gjarnan til.
Karl Sverrisson á nokkur óhefðbundin ferðalög að baki.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
• 5 tímar í skvass• 5 tímar í Golf
• máltíð á BK Kjúkling• 5 tímar í ljós
• frítt í allar ÍTR sundlaugarnar• frír mánuður fyrir vin• tækjakennsla
• bolur
• brúsi
SportKlúbburinn
BremsuhlutirDi
DVD-SPILARI er tilvalinn í bílinn þegar leggja á af stað í lengri
ferðalög með fjölskylduna. Þá getur yngsta kynslóðin haft gaman
af því að horfa á myndir eins og Bubbi byggir í spilaranum á
meðan sú eldri getur notið alls þess sem íslenskt landslag
hefur upp á að bjóða.
VEÐRIÐ Í DAG
Trukkabílstjórar
skemmta sér
Dóri tjakkur býst við
þúsund bílstjórum
á Players um
helgina.
FÓLK 30
ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR
Leikarar keppa í tetris
með lifandi þátttakendum
Safna fé fyrir mænuskaddaða.
FÓLK 30
Hendrix í
Hafnarfirði
Tónlistarmannin-
um Ágústi Erni
Gústafssyni er líkt
við Jimi Hendrix.
FÓLK 24
Íslenska „kreppan“
„Það er ólíku saman að jafna
ástandinu sem ríkti hér á landi fyrir
tuttugu árum í aðdraganda þjóðar-
sáttarinnar og stöðunni í dag,“
skrifar Víglundur Þorsteinsson.
UMRÆÐAN 17
VIÐSKIPTI „XL fékk tilboð í endurfjármögnun um mitt
síðasta sumar, en því var ekki tekið af því að menn
töldu að betri kjör gætu fengist annars staðar.
Skömmu síðar lokuðust allir lánsfjármagnsmarkað-
ir,“ segir Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður
XL Leisure Group og fyrrverandi stjórnarformaður
Eimskips.
Rekstur XL Leisure gekk illa og fór félagið í þrot
fyrir helgi. Þar með féll ríflega 25 milljarða króna
ábyrgð á Eimskipafélagið. Fram hefur komið að
stjórnendur reyndu að endurfjármagna félagið fram
á síðasta dag. Björg ólfsfeðgar segjast munu taka
ábyrgðina yfir svo hún falli ekki á félagið. Það kann
að baka þeim yfirtökuskyldu í Eimskipafélaginu,
eftir því sem Fjármálaeftirlitið segir.
Magnús Stephensen, einn eigenda XL og stjórnar-
maður, kannast ekki við að neinum tilboðum um
endurfjármögnun félagsins hafi verið hafnað. „Allar
tillögur voru á umræðustigi,“ segir Magnús Steph-
ensen. Þær hafi allar verið háðar skilyrðum um
rekstur sem félagið hefði ekki endilega getað
uppfyllt. - ikh / sjá Markaðinn
Stjórnarformaður XL og stjórnarmaður segja ólíkar sögur um endurfjármögnun:
Segir XL hafa hafnað boði
um endurfjármögnun í fyrra
HVASST AUSTAN TIL Í fyrstu verð-
ur sunnan stormur austan til á land-
inu annars 8-15 m/s. Lægir heldur í
dag. Mikil rigning á SA-landi annars
skúrir en yfirleitt þurrt norðaustan
til. Hiti 10-17 stig.
VEÐUR 4
11 15
14
12
12
KARL SVERRISSON
Átti ævintýralegt
sumar á Grænlandi
• ferðir • bílar
Í MIÐJU BLAÐSINS
KAMILLA INGIBERGSDÓTTIR
Frumkvöðlastarf í fjöl-
menningarsamfélagi
Alþjóðahúsið hefur opnað útibú í Breiðholti.
TÍMAMÓT 20
RÁN Í VERSLUN Í KÓPAVOGI Rán var framið í Skólavörubúðinni í Kópavogi í gærdag. Lögreglan rannsakaði verksummerki í
versluninni. Eftir greinargóða lýsingu starfsfólks hafði lögregla upp á mönnunum síðdegis í gær. Sigurbjörg Jóhannesdóttir hafði
afskipti af mönnunum í versluninni og ógnuðu ræningjarnir henni með hnífi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLUMÁL Þrír menn stálu
fartölvu í Skólavörubúðinni við
Smiðjuveg í Kópavogi í gær.
Þeir komu inn í verslunina með
nokkrum bægslagangi um
klukkan 14.30 og dvöldu þar
nokkra stund. Einn þeirra
laumaði síðan fartölvu inn á sig.
Sigurbjörg Jóhannesdóttir varð
vitni að því og hafði afskipti af
mönnunum.
„Ég hrópaði á þá og spurði
hvað þeir væru að gera. Þá
barði einn þeirra mig í hand-
legginn og annar ógnaði mér
með hníf. Þá bakkaði ég frá og
leyfði þeim að hlaupa út með
tölvuna. Þetta var alveg
skelfilegt og ég titra öll og
skelf,“ segir Sigurbjörg.
Þetta er annað ránið í
Skólavörubúðinni á skömmum
tíma.
Lögregla handtók þrjá menn
grunaða um verknaðinn um
klukkan 17 í gær. -kóp / sjá síðu 4
Rán í Skólavörubúðinni:
Afgreiðslukona
titraði og skalf
EFNAHAGSMÁL Sé ætlunin að nota
áfram íslenska krónu er nauðsyn-
legt að búa henni styrkari
umgjörð er nú er. Meðal annars
þyrfti að stórauka gjaldeyrisvara-
forða Seðlabankans. Slíkt, eitt og
sér, kostar minnst 25 milljarða
króna á ári.
Að þessu kemst gjaldmiðils-
nefnd Framsóknarflokksins sem í
gær kynnti skýrslu um greiningu
á gjaldmiðilsmálum þjóðarinnar
og kosti og galla í þeim efnum.
Við það tilefni lýsti Gylfi
Magnússon, hagfræðingur og
dósent við HÍ, sögu krónunnar
sem nánast einni samfelldri
hrakfallasögu. Lykill að farsælli
siglingu út úr ágjöfinni sé
trúverðug stefna til langtíma,
ekki smáskammtalækningar á
borð við þær sem stundaðar hafi
verið áður fyrr.
- bþs / sjá síðu 12
Efling gjaldeyrisvaraforðans:
Kostar 25 millj-
arða króna á ári
Gerrard sá
um Frakkana
Ensku liðin Chel-
sea og Liverpool
byrjuðu vel í
Meistaradeildinni.
ÍÞRÓTTIR 26
KJARAMÁL Verkfalli ljósmæðra,
sem átti að hefjast á miðnætti í
gær, var aflýst eftir að Ásmundur
Stefánsson ríkissáttasemjari lagði
fram miðlunartillögu í kjaradeilu
þeirra og ríkisins. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins átti
Ásmundur fund með Árna M.
Mathiesen fjármálaráðherra um
kjaramál ljósmæðra í fyrradag og
var miðlunartillagan borin fram í
framhaldi af þeim fundi.
Kveðið er á um að trúnaður
gildi um tillöguna þar til atkvæði
hafa verið greidd um hana. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins eykst
kostnaður ríkisins vegna nýs
samnings við ljósmæður um 21
prósent.
Mismunandi er hve mikið ljós-
mæður hækka í launum en sam-
kvæmt heimildum fá ákveðnir
hópar þeirra allt að 21 prósents
kauphækkun. Ljósmæður höfðu
krafist 25 prósenta hækkunar. Þá
gerir tillagan ráð fyrir því að ríkið
kaupi af þeim Vísindasjóð en ekki
fengust frekari upplýsingar um
hvernig staðið yrði að þessum
breytingum.
Guðlaug Einarsdóttir, formaður
Ljósmæðrafélagsins, vildi ekki
tjá sig um útfærslu tillögunnar
þegar Fréttablaðið hafði samband
við hana eftir fund í gærkvöldi.
Hún sagði þó: „Þetta er alls ekki
það sem við settum upp sem okkar
kröfu og við náum engan veginn
þessum launamun sem er á okkur
og öðrum sambærilegum stéttum.
En við höfum talað fyrir þessari
tillögu og verðum að sjá hvort
ljósmæður kjósa hana eða hafna
henni.“
Ásmundur minnti á að tillagan
hefði verið neyðarúrræði ríkis-
sáttasemjara.
„Ég gerði mér grein fyrir að
málið var komið í fullkominn
hnút.“
Tillögurnar voru kynntar ljós-
mæðrum á fundi í Reykjavík í
gærkvöldi og til stendur að kynna
þær ljósmæðrum á Akureyri
klukkan 11 í dag. Rafræn kosning
hefst svo um tillöguna um hádegi
í dag og stendur hún til hádegis á
föstudag. Einnig var samþykkt að
féllust ljósmæður á tillöguna yrði
málshöfðun fjármálaráðherra
gegn ljósmæðrum vegna meintra
ólögmætra uppsagna látin niður
falla enda hafi Ljósmæðrafélagið
hvatt til þess að uppsagnirnar
yrðu dregnar til baka.
- kdk
Ljósmæður fá allt að
21 prósents hækkun
Verkfalli ljósmæðra var aflýst í gærkvöldi eftir að ríkissáttasemjari bar fram
miðlunartillögu. Formaður Ljósmæðrafélagsins segir tillögurnar alls ekki í
samræmi við þeirra kröfur. Formaðurinn talar samt fyrir tillögunni.