Fréttablaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 20
MARKAÐURINN 17. SEPTEMBER 2008 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T A S K Ý R I N G K auphöllin hefur gert athugasemdir. Fjár- málaeftirlitið hefur að minnsta kosti þrennt til skoðunar. Fyrrver- andi forstjóri hefur stefnt félag- inu. Heilt fyrirtæki hefur verið afskrifað. Tugmilljarða ábyrgð hefur fallið. Eigið fé er með minnsta móti. Stærsta eignin er til sölu og Björgólfsfeðgar sjá fram á yfirtökuskyldu. Félagið hefur tvisvar skipt um nafn. Hér er rætt um stutt skeið í lífi „óskabarns þjóðarinnar“ – Eim- skipafélags Íslands. ERFIÐLEIKAR UPP Á YFIRBORÐIÐ Engan grunaði hvað væri í aðsigi hjá Eimskipafélaginu framan af síðasta ári og í byrjun þessa árs. Félagið hafði orðið hluti af Avion Group-samstæðunni. Þar með var það þátttakandi í flug- rekstri og fleiru. Eignum fjölg- aði, en síðan var hætt í fluginu og áherslan lögð á sjóflutninga og frystigeymslur. Félögin Innovate, Atlas og Versacold voru keypt. Magnús Þorsteinsson, eigandi stærsta hlutarins og stjórnarfor- maður, hættir síðan óvænt, löngu fyrir aðalfund. Í febrúar hættir forstjórinn Baldur Guðnason. Svo var Innovate afskrifað og ábyrgð vegna XL Leisure féll á félagið. GRUGG Í BÓKHALDINU Kauphöllin gerði athugasemd- ir við afskriftirnar á Innovate og það tók Fjármálaeftirlit- ið síðan til rannsóknar. Rann- sóknin stendur enn. Eftirlitið veltir líka fyrir sér hugsanlegri yfirtökuskyldu Björgólfsfeðga á fyrirtækinu, í kjölfarið á stóru gjaldþroti XL Leisure Group, en Eimskipafélagið hafði tekið við ábyrgð á lánum þess við Lands- bankann, þegar stjórnendur þess keyptu félagið. Skýringin, sam- kvæmt heimildum Markaðarins, er einföld: Landsbankinn neitaði að flytja lánið til kaupendanna nema seljandinn ábyrgðist það. Feðgarnir tilkynntu í síðustu viku að þeir myndu ábyrgjast lánið, félli það á Eimskip. Eimskipafélagið gerði Fjár- málaeftirlitinu að fyrra bragði viðvart um athugasemdir sem endurskoðunarfyrirtækið KPMG gerði sumarið 2006, vegna bók- halds Excel Airways, sem síðar varð XL Leisure. Fram kom í fréttum breskra miðla um helg- ina að KPMG hefði sagt sig frá endurskoðun reikninga vegna „tiltekinnar óreiðu“ í bókhaldi XL (þá Excel), vegna samninga við Alpha Airports. „Við tókum þessar ábending- ar mjög alvarlega, þvert á það sem gefið hefur verið í skyn og sendum frá okkur tilkynningu til Kauphallarinnar. Þá hafði ég sjálfur frumkvæði að því að leita til Fjármálaeftirlitsins og skýra þeim frá rannsókn okkar og málavöxtum, enda vildi ég hafa alla þessa hluti á hreinu,“ segir Magnús Þorsteinsson, fyrrver- andi stjórnarformaður Eimskips og Avion Group. Niðurstaða Fjármálaeftirlits- ins var að engin gögn bentu til þess að stjórnendur Avion hefðu átt þátt í eða vitað um óreiðu hjá Excel. HÆGT AÐ VERA VITUR EFTIR Á Varðandi hvort farið hafi verið fram meira af kappi en forsjá í fjárfestingum á vegum Eim- skips, segir Magnús að eflaust megi gagnrýna eitt og annað. „Keypt voru ákaflega mörg félög, tólf til fimmtán á tiltölu- lega stuttum tíma. Flest hafa gengið ljómandi vel og verið fé- laginu til framdráttar. Því miður tókst þetta ekki allt saman og eftir á að hyggja, hefði maður vitað að ekki yrði hægt að fá lánaða peninga nokkurs stað- ar í veröldinni, hefði verið rétt að fara einhvers staðar aðeins hægar yfir.“ STJÓRNIN RANNSAKAR MAGNÚS Stjórn Eimskips tilkynnti á dög- unum að fram færi rannsókn á ýmsum þáttum „sem tengjast rekstri félagsins frá fyrri tíð“, eins og segir í tilkynningu. Magnús segist engar athuga- semdir gera við rannsóknina á þáttum í rekstrinum meðan hann var þar stjórnarformaður. Hann kveðst gjarnan vilja að allt komi upp á yfirborðið, hann hafi ekkert að fela. „Stjórn er valin af hluthöfum og ber skylda til að kanna hvort eitthvað hafi verið athugavert við fyrri störf stjórnenda, vakni spurningar um slíkt,“ segir hann. Allar ákvarð- anir hafi verið teknar í fullu um- boði og unnar í samræmi við það sem alvanalegt er. „Ég var þarna stjórnarformaður, en sá ekki um daglegan rekstur. Forstjórinn sinnti þeim störfum.“ HVER Á EIMSKIP? Ekki hefur verið talið fullvíst hver fari í raun með þriðjungs- hlut í Eimskipafélaginu, sem skráður er á félag Magnúsar Þorsteinssonar, Frontline Hold- ing. Jafnvel hefur verið talið að hann sé í höndum Landsbank- ans. Fjárfestingarfélagið Grettir á svo annan þriðjung. Þar ræður Björgólfur Guðmundsson mestu. Magnús segist enn eiga þriðj- ungshlut sinn í Eimskip og hafn- ar því að Björgólfsfeðgar eða Landsbankinn fari með þann hlut, eins og fullyrt hefur verið. „Ég held á þessum hlut og þannig er það,“ segir hann og neitar því um leið að hann sé alfarinn úr landi. „Ég sinni mínum fjárfest- ingum úti um allan heim og dvel í Rússlandi þeirra vegna stór- an hluta í hverjum mánuði. Mitt heimili og varnarþing er á Ak- ureyri.“ RANGFÆRSLUR BALDURS Í bréfi sem upplýst hefur verið að Baldur Guðnason, fyrrver- andi forstjóri, hafi sent stjórn félagsins fyrir síðustu áramót, kemur fram að hann hafi varað við flugrekstrinum og ætlað þá að segja upp störfum sínum af þeim sökum. „Þetta er innan- hússplagg sem ég harma, Bald- urs vegna og félagsins, að hann hafi birt. Það er mikið af rang- færslum í þessu bréfi og ég hef í sjálfu sér ekkert meira um það að segja,“ segir Magnús. Þá telur hann óréttmætt að draga upp þá mynd að hefðbund- inn flutningarekstur Eimskips blæði nú fyrir fjárfestingar í flugrekstri sem alltaf hafi verið tap á. „Þegar Avion keypti Eim- skip voru innan þess félög á borð við Atlanta og XL að hluta til. Atlanta hafði gengið misvel eins og gengur, en rekstur XL hafði gengið ljómandi vel tvö árin á undan og mjög fínn hagnaður af rekstri þess. Á þeim tíma, eða fyrir þremur árum, voru því engin teikn um annað en þetta gæti lukkast mjög vel og styrkt hvert annað. En ef kristalskúl- an hérna á borðinu mínu væri aðeins skýrari en hún er, hefði maður ekki verið jafn stór í flug- rekstri og raun bar vitni. Að- gangur að lánsfjármagni hefur hins vegar gjörbreyst, olíuverð margfaldast og allar aðstæður eru nú aðrar.“ ENGINN TAPAÐ MEIRU Magnús vill taka skýrt fram, að honum þyki mjög miður hvernig málum er komið. Hann segir, að- spurður, að enn ríki full vinátta milli sín og Björgólfsfeðga. „Það er ekkert illt á milli okkar feðga. Við erum enn þá viðskiptafélag- ar á ýmsum stöðum. Samgang- ur eða samskipti eru ekki eins og þau voru, þegar við rákum fyr- irtæki beinlínis saman, en það er ástæðulaust að lesa eitthvað í það.“ Magnús segir vel hægt að rétta við rekstur Eimskipafélagsins og ekki trúa öðru en núverandi stjórn og hluthafar einhendi sér í að hjálpa þessu fornfræga félagi. Spurður hvort hann sé reiðu- búinn að koma að þeirri endur- skipulagningu, jafnvel með nýtt fjármagn, segir hann að slíkt megi vel skoða. „Ég tek afstöðu til þess eftir því hvernig það liggur á hverjum tíma,“ segir hann og kveðst tilbúinn að gera það sem hann getur til að hjálpa. „Þessi staða er auðvitað alvar- leg. Það er alvarleg staða í við- skiptalífi heimsins yfirhöfuð og áföll dynja yfir á öllum sviðum. Engum þykir staða Eimskipa- félagsins nú leiðinlegri heldur en mér og enginn hefur tapað meiri peningum á þessu en ég, það er ágætt að menn geri sér grein fyrir því,“ segir Magnús, en þriðjungshlutur hans í félag- inu, sem metinn var á 25 millj- arða í fyrra, er nú tæplega fjög- urra milljarða króna virði. „Það tapaði enginn meiri peningum á þessu en ég“ Markaðsvirði Eimskips hefur hrunið á árinu. Avion-ævintýrið virðist hafa verið óskabarni þjóðarinnar fjötur um fót. Stjórnendur þess reyna nú að færa rekstur þess nær því sem áður var. Björn Ingi Hrafnsson og Ingimar Karl Helgason ræða við Magnús Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformann félagsins og helsta eiganda þess, og fara yfir stöðu mála.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.