Fréttablaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 22
„Nornir aðhyllast wikka sem er
heiðin náttúrutrú. Mig langaði að
kynnast þessum hlutum og fór
ásamt vinkonum og dóttur á sam-
komu á Þingvöllum.“ Það er Rakel
Dögg Óskarsdóttir, nemi sem starf-
ar auk þess við höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð, sem segir
frá. „Við vinkonurnar mættum í
sjoppuna og þaðan var haldið í fal-
legan lund þar sem sest var í hring
og norn útskýrði fræðin. Ég hef
alltaf haft áhuga á öllu dulrænu og
þetta var góð stund þarna í náttúr-
unni. Nornirnar hafa einn guð og
eina gyðju og halda í heiðri gamlar
alþýðuhefðir eins og að tigna ork-
una sem fylgir fullu tungli, sólstöð-
um og jafndægrum sem allt minnir
okkur á hina eilífu hringrás.“
Rakel segir börnin hafa þegið
andlitsmálun og horft leikþátt um
sólina og mánann svo dóttir henn-
ar hafi verið ánægð. „Eftir grill
var dansað og kyrjað við brennu
en þá var ég farin heim með þá
stuttu,“ lýsir hún. „Fólk setti jurtir
og fleira á altarið. Svo var dansað-
ur spíraldans, jurtirnar settar á
bálið og kyrjað. Þá var verið að
sýna náttúrunni virðingu og lotn-
ingu.“
Allt sem fram fór þótti Rakel
harla athyglisvert. „Það er mis-
jafnt hvernig fólk lítur á nornatil-
veruna,“ segir hún. „Sumir telja
hana trúarbrögð og aðrir lífsstíl en
ég held mig við mína kristnu trú.“
gun@frettabladid.is
Góð stund í náttúrunni
Samkvæmt ævintýrum og sögum eru nornir ólíkindatól sem hafa örlög manna í hendi sér. Rakel Dögg
Óskarsdóttir nemi sá auglýsta nornaferð fyrir fjölskyldur á Þingvöll og forvitnin dró hana af stað.
Nornin var skartbúin og stendur hér við nokkurs konar altari þar sem fólk setti ýmsar
jurtir þegar á leið samkomuna. Sú stutta undi sér vel.
„Ég held mig við mína kristnu trú,“ segir
Rakel Dögg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FERÐAMÁLASTOFA heldur úti heimasíðunni www.icetourist.is, sem er upp-
lýsingabrunnur um ferðalög um Ísland. Þar er að finna upplýsingar sem
geta nýst Íslendingum við að skipuleggja ferðir um landið. Meðal ann-
ars er fræðsla um áhugaverð svæði, náttúrufar, gönguleiðir og fleira.
Alþjóðleg fræðsla og samskipti
Er skiptinemadvöl eitthva› fyrir flig?
Fjölmörg lönd í bo›i. Ársdvöl, hálfsársdvöl,
3 mána›a dvöl og 4-6 vikna dvöl. Haf›u samband!
Hvalaskoðun Reykjavík
www.elding.is
sími: 555 3565
Öðruvísi og skemmtileg upplifun! Mánudaga og
mmtudaga