Fréttablaðið - 18.09.2008, Blaðsíða 27
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Móðuramma dansarans Þorleifs
Einarssonar prjónaði á hann
peysu fyrr á árinu sem hann held-
ur mikið upp á.
„Mér þykir mjög vænt um
þessa peysu og er hún tvímæla-
laust uppáhaldsflíkin mín. Hún
hentar auk þess mjög vel nú
þegar farið er að kólna í veðri,“
segir Þorleifur sem almennt er
ekki mjög upptekinn af tískunni.
„Ullin er þó alltaf heit,“ fullyrðir
hann.
„Ég ólst annars upp við það að
erfa föt frá eldri bróður mínum
og gríp yfirleitt bara það sem
hendi er næst. Ég reyni þó að láta
fötin passa saman og spái auðvit-
að eitthvað í þessi mál,“ segir
hann sposkur.
Þorleifur var í samkvæmis-
dönsum í sextán ár en segist ekki
yfirfæra stílinn sem honum fylg-
ir á eigið fataval. „Föt samkvæm-
isdansara þurfa að vera þröng til
að dómararnir geti sem best
greint hreyfingarnar og í sterku
ljósi þurfa strákarnir jafnvel að
vera málaðir,“ segir Þorleifur og
segist hafa tekið út fyrir það á
yngri árum. „Dansinn gefur þó
svo margt annað og lærir maður
bæði að bera virðingu fyrir hinu
kyninu og koma fram. „Ég geng
þó aldrei í níðþröngum fötum og
finnst það vægast sagt óþægi-
legt.“
Þorleifur, sem stundar nám á
listnámsbraut við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti, leikur og
dansar í Ástin er diskó – lífið er
pönk í Þjóðleikhúsinu og er stað-
ráðinn í því að leggja leiklistina
fyrir sig. Hann er auk þess í
hljómsveitinni Hvar er Mjall-
hvít? sem heldur útgáfutónleika í
Iðnó fimmtudaginn 9. október
næstkomandi. vera@frettabladid.is
Ullin er alltaf jafn heit
Þorleifur Einarsson gekk lengi vel í fötum af eldri bróður sínum og segist ekkert of upptekinn af tísk-
unni. Hann heldur allra mest upp á lopapeysu sem amma hans prjónaði.
Þorleifi þykir afar vænt um peysu sem móðuramma hans prjónaði á hann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GAMLAR KRUKKUR er hægt að nota í ýmislegt. Til dæmis undir
kertastubba, sem hefur verið haldið til haga, og setja svo við útidyrnar
þegar von er á gestum og veðrið er tiltölulega stillt. Krukku með log-
andi kerti má einnig koma fyrir innandyra til að skapa góða stemningu.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Mesta úrval landsins
af sófum
kr.130.900,-
þú getur fengið þennan
sófa í yfir 200 útfærslum
Alla miðvikudaga og laugardaga