Fréttablaðið - 21.09.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500021. september 2008 — 257. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
HANNAÐI
LEGSTEIN RABBA
Friðgerður Guðmunds-
dóttir ekkja tónlistar-
mannsins Rabba, segir
frá lífinu með honum,
sorginni og nýjum
starfsframa sem hönn-
uður. VIÐTAL 10
HITTUST Í SIRKUSPORTINU, SMULLU Í BÓNUS
Lóa Hjálmtýsdóttir og Árni Rúnar Hlöð-
versson eru í hljómsveitinni FM Belfast
sem brátt gefur út sína fyrstu plötu. 12
Alíslenskt kvöld við skjáinn
Fyrsti þáttur Svartra engla fer í loftið á RÚV
í kvöld og strax á eftir hefst fyrsti þáttur
Dagvaktarinnar á Stöð 2.
TÍMAMÓT Tvennir hátíðartónleikar
verða haldnir í dag til heiðurs
Atla Heimi Sveinssyni tónskáldi
sem er sjötugur.
Hátíðardagskrá
verður í Þjóðleik-
húsinu klukkan
fjögur og
hátíðartónleikar í
Salnum í Kópa-
vogi klukkan átta.
Þeir eru liður í
tónleikaröð sem
verður haldin víðs
vegar um
Reykjavík næstu daga.
Þá rifjar Jón Baldvin Hanni-
balsson upp áratuga löng kynni
sín af tónskáldinu á tímamótasíðu
Fréttablaðsins í dag, en hann og
Atli Heimir voru bekkjarfélagar í
Gaggó Vest og MR. -ve / sjá síðu 14
Sjötugu tónskáldi fagnað:
Atli Heimir
heiðraður
ATLI HEIMIR
SVEINSSON
SUNNUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Áætlað er að þátttaka
Íslands í heimssýningunni í Sjang-
hæ kosti 600 milljónir króna.
Ríkisstjórnin ákvað í janúar á
þessu ári að Ísland yrði þátt-
takandi í heimssýningunni Expo
sem verður árið 2010 í Sjanghæ í
Kína.
Samkvæmt greinargerð Júlíus-
ar Hafstein sendiherra er reiknað
með að skáli Íslands á heimssýn-
ingunni verði eitt þúsund fer-
metrar. Framkvæmdastjóri verð-
ur ráðinn fyrir verkefnið og áætlað
er að tvær nefndir komi að málinu,
ein sem heldur utan um fram-
kvæmd og kostnað og önnur nefnd
sem annast skipulag sýningarinn-
ar. Samkvæmt greinargerð Júlíus-
ar, sem send hefur verið Reykja-
víkurborg með ósk um 50 milljóna
króna framlag, hafa nokkur íslensk
fyrirtæki nú þegar staðfest þátt-
töku í heimssýningunni. Það eru
meðal annars viðskiptabankarnir,
Bakkavör og ónefnd orkufyrir-
tæki.
Fram kemur hjá Júlíusi að utan-
ríkisráðuneytið geri ráð fyrir að
ríkissjóður borgi 350 milljónir
króna af áðurnefndum 600
milljónum.
„Þegar hafa náðst samningar um
aðkomu helstu fjármála- og
útflutningsfyrirtækja landsins.
Það er því ljóst að viðlíka fjárfest-
ing í kynningarstarfsemi á þessu
stærsta markaðssvæði heims verð-
ur ekki endurtekin í bráð,“ segir í
greinargerð sendiherrans.
Í umsögn Svanhildar Konráðs-
dóttur, sviðsstjóra menningar- og
ferðamálasviðs, til borgarráðs
segir að mikil tækifæri geti falist í
því fyrir Reykjavíkurborg að taka
þátt í sýningunni í Sjanghæ.
„Sýningin mun ná til mikils
fjölda gesta á markaðssvæði sem
þegar er orðið mikilvægt í öllum
skilningi, ekki síst hvað snertir
orkumál og ferðaþjónustu,“ segir í
umsögn sviðsstjórans.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er ekki vilji hjá borgar-
ráði til að taka þátt í sýningunni.
Ráðið hefur hins vegar sent erindi
utanríkisráðuneytisins til umsagn-
ar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og
Faxaflóahöfnum.
- gar
Verja 600 milljónum
í Íslandsskála í Kína
Þátttaka Íslands í heimssýningunni í Sjanghæ árið 2010 á að kosta 600 milljón-
ir króna. Ríkið leggur fram 350 milljónir og biður Reykjavík um 50 milljónir.
EFNAHAGSMÁL „Við höfum gefist upp á verðmerk-
ingum í íslenskum krónum,“ segir Leifur Örn
Leifsson, framkvæmdastjóri Öskju, söluaðila
Mercedes Benz á Íslandi, sem hefur tekið upp á því
að verðmerkja bíla í evrum. Með þessu sé fyrir-
tækið að bregðast við óstöðugu gengi krónunnar.
„Krónan er handónýtur gjaldmiðill eins og
staðan er í dag,“ segir Leifur Örn. Mikið sé um
sérpantanir á Benz bílum þar sem viðskiptavinir
fái útbúna bíla eins og þeim hentar. Þá sé
afgreiðslufrestur oft langur og með þessu vilji
fyrirtækið tryggja sig og viðskiptavini fyrir
gengissveiflum frá því bíll er pantaður, þar til
hann er afhentur.
Verð á bílum sem seldir eru af lager sé þó enn
gefið upp í krónum enda sé afgreiðslutími þeirra
aðeins örfáir dagar.
„Við höfum þurft að breyta verðmerkingum
daglega og svo þegar kemur að afhendingu bíls
hefur ekkert staðist miðað við það sem talað var
um í upphafi. Þetta er okkar leið til að allir gangi
að hlutunum vísum.“
Leifur Örn segir Öskju hafa tekið þennan
háttinn upp fyrir um tveimur mánuðum. „Við
erum ekki búnir að einsetja okkur að vera með
evruverð til lengri tíma. En á meðan umrót í
gengismálum er svona þá sjáum við okkur ekki
fært að gera annað.“ - ovd
Óstöðugt gengi krónunnar veldur bílasölum miklum erfiðleikum:
Bílasalar gefast upp á verð-
merkingum í íslenskum krónum
BJART EYSTRA Í dag verða yfirleitt
suðvestan 8-13 m/s. Bjart framan
af degi austan til á landinu annars
skúrir. Vaxandi væta með kvöldinu
en þurrt að mestu eystra. Hiti 8-13
stig.
VEÐUR 4
8 10
12
1210
FÖGNUÐUR KR-stelpur fögnuðu bikarmeistaratitlinum í gær eftir 4-0 sigur á erkifjendunum í Val. Afmælisbarnið Hólmfríður
Magnúsdóttir, sem hér sést fyrir miðri mynd, var hetja KR-inga en hún skoraði þrennu í leiknum. Sjá síðu 22 FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KJARAMÁL Kjaradeila Læknafé-
lags Íslands og Ríkisins er í hnút
eftir að sáttafundi í gær lauk án
árangurs. Nýr fundur hefur verið
boðaður 1. október og verkfalls-
boðun liggur í loftinu.
Birna Jónsdóttir, formaður
Læknafélagsins, segir tilboð sem
læknar fengu með öllu óásættan-
legt þrátt fyrir mánaðalangar
samningaviðræður. „Það þýðir að
við verðum að leita annarra leiða
til að leiðrétta kjör okkar en með
samningum.“
Læknafélagið hefur sent út
viðhorfskönnun til lækna þar sem
spurt er til hvaða aðgerða læknar
vilja grípa í framhaldinu.
Spurð hvort verkfall sé
væntanleg niðurstaða segir Birna
að tíðinda sé að vænta af aðal-
fundi Læknafélagsins sem
stendur fyrir dyrum. „Það hefur
ekki samist og við þurfum að
grípa til annarra aðgerða.
Verkfallsboðun er eitt af því sem
verður skoðað.“ - shá
Kjaradeila lækna í hnút:
Verkfallsboðun
ekki útilokuð
26