Fréttablaðið - 22.09.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 22.09.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Í dag er mánudagurinn 22. september, 266. dagur ársins. 7.12 13.20 19.27 6.56 13.05 19.12 Eitt höfuðeinkenni góðrar stjórnsýslu er að menn staldri stutt við á valdastólum. Enginn ráðherra á að gegna sama ráð- herraembætti lengur en fjögur ár né vera ráðherra lengur en átta ár samtals - átta ár eru hryllilega langur tími. Svipað á að gilda um stjórnendastöður hjá Ríkinu. Fjög- urra ára ráðningartími og fram- lengdur um tvö til fjögur ár ef frammistaðan er almennt talin hafa verið frábær - en auðvitað auglýsa embættið eftir fjögur ár. ÞETTA fyrirkomulag mundi draga úr spillingu. Allir stjórnendur vissu að þeir væru ráðnir til tak- markaðs tíma, og mjög líklegt að eftirmaðurinn færi með logandi ljósi ofan í saumana á öllum gjörn- ingum fyrirrennara síns til að finna þar eitruð peð og fara með í afeitrun. Sumir forstjórar sem ættu „ónotuð stjórnarár” eftir á C.V.-inu sínu gætu leitað í önnur fyrirtæki og stofnanir. En víða væru starfandi litlir hópar fyrr- verandi forstjóra, þekkingar- og reynslubankar, sem stjórnendur fyrirtækisins gætu leitað í eftir þörfum. ÞAÐ þarf engu að breyta nema smotteríi. Í fyrsta lagi að auglýsa stöður án tillits til hvort ráðherra er samflokksmaður eða andstæð- ingur, frændi eða sonur, það er árangur í starfi sem telur. Það vantar alls staðar gott fólk og hitt fólkið á ekki í vandræðum með að finna sér störf við hæfi í einka- eða opinbera geiranum. Sýslu- mannsembætti í Keflavík er eftir- sótt, margir um hituna, og sá sem hefur gegnt því með sóma hefur hlotið mikinn starfsheiður. ÞAÐ auma við starfslok sýslu- manns í Keflavík er að sá sem réði hann til starfa er enn í embætti - það er bara talað í véfréttar stíl um hvort viðkomandi muni draga sig í hlé að aftöku lokinni og eftirláta eftirmönnum sínum að framfylgja lögunum í þeim anda sem þeim var komið á; sem sé til að skipta oft um stjórnendur, ekki til að geta komið óvinum sínum fyrir kattarnef heldur vegna þess að við þurfum marga stjórnendur en ekki fáa. Það er forsenda þess að lýðræðið þróist úr höndunum á fámennum valdaklíkum. Við þurf- um ekki nautsterka leiðtoga. Við þurfum valddreifingu og marga leiðtoga. Það er lýðræði. Að granda sýslumanni - mannfórn í Keflavík

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.